Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.04.2014, Blaðsíða 30

Fréttatíminn - 11.04.2014, Blaðsíða 30
Veitingar við öll tækifæri veisluþjónusta RESTAURANT- BAR Tapas barinn Tapas snittur, spjót og tapas í boxi. Girnilegir smá-borgarar og eftirréttir. Kíktu á tapas.is, sendu línu á tapa@tapas.is eða hringdu í síma 551 2344. Við hjálpum þér að gera þína veislu ógleymanlega. fara að ferma um helgina svo það er bannað að halda útgáfutónleika á sunnudeginum,“ minnir Heiðar restina af hljómsveitinni á. „Í síðustu viku var ég heima tvö kvöld og það var bara algjört met. Þá vann ég til sex, eins og venju- lega, kom svo heim og fór ekkert út að æfa. Það var mjög óvenjulegt,“ segir Arnar sem trommar í mörg- um vinsælustu hljómsveitum lands- ins. „Núna spila ég með Dr. Spock, Mugison, Ensími, Pétri Ben, Polla- pönki og svo spila ég líka með Láru Rúnars, konunni minni, og reyndar tengdapabba líka, Rúnari Þóris- syni úr Grafík. Ég mæti auðvitað miklum skilningi heima fyrir þar sem við Lára deilum sama áhuga- málinu. En þetta getur orðið flókið þegar við þurfum bæði að vera frá en þar kemur fjölskyldan sterk inn. Gott bakland skiptir öllu máli,“ segir Arnar og allir jánka því. „En ég verð að segja fyrir mitt leyti þá er tónlistin fyrst og fremst áhuga- mál, ef það koma einhverjar krónur inn þá er það bara frábært. Ég er í þessu af því mér finnst það bara svo hrikalega skemmtilegt. Þess vegna er maður til í að eyða svo miklum frítíma í þetta, því þetta er alltaf jafn gaman,“ segir Arnar og allir samþykkja það. „Og svo er bara fullkomið þegar hægt er að sameina músíkina og fjölskyld- una,“ bætir hann við. „Við náðum nú í alveg frábært sumarfrí síðasta sumar þar sem við náðum að sameina músíkina fjölskyldunni þegar við sigldum með Húna í kringum landið,“ segir Guðni sem deilir öllum hljóm- sveitunum, nema Pétri Ben, með Arnari. „Við Arnar hittum hvorn annan meira en konurnar okkar. Við vinnum saman allan daginn og erum saman í öllum þessum hljómsveitum. Þetta er eins og hvert annað hjónaband, það kemur stundum upp pirringur en það er ekkert til að tala um,“ bætir hann við og Arnar tekur undir með hlátursroku. Þrátt fyrir alla vinnuna sem félagarnir leggja í tónlistina segja þeir ekki möguleika að lifa af henni. „Það væri kannski mögu- leiki að lifa af í þessum bransa núna í þessum mánuði fyrir Euro- vision,“ segir Guðni. „Það er svo mikið af spiliríi í kringum það. En maður væri nú svo sem löngu hætt- ur ef maður væri að þessu fyrir peningana. Þá værum við kannski búnir að stofna sveitaballahljóm- sveit, en við erum bara ekkert þar. Málið er bara að búa til músík og hafa gaman af.“ Eurovision frábær vettvangur fyrir Pollapönk Lagið „Enga fordóma“ hefur slegið rækilega í gegn og varla er til það barn sem ekki kann textann og ekki það foreldri sem hefur ekki fengið það á heilann. „Það er auð- vitað bara frábært,“ samþykkja allir sem einn. „Þessi tugga er aldrei nógu oft tuggin. Mér fannst virkilega gaman að heyra af því um daginn að það sé verið að nota lagið á leikskólum til að kenna börnum um fordóma,“ segir Arnar. Allir Pollapönkararnir hafa áður tekið þátt í Eurovision. Halli og Heiðar með Botnleðju en Guðni og Arnar með Dr. Spock. Það liggur því beinast við að spyrja hvort Euro- vision-draumurinn sé langþráður? „Það þurfti nú aðeins að draga mig í þetta fyrst með Dr. Spock. Og ég skal bara viðurkenna það að ég hafði smá fordóma fyrir Eurovision. En þeir eru auðvitað löngu horfnir,“ segir Guðni. „Það eitt að keppa í músík meikar auðvitað ekkert sens í sjálfu sér, en ef þú lítur fram hjá þeirri staðreynd og horfir á þetta bara fordómalaus þá er þetta bara gaman,“ bætir Arnar við. „Þetta er náttúrulega frábær vettvangur fyrir Pollapönk,“ segir Heiðar. „Fjölskylduskemmtun þar sem allir koma saman með snakk og vogaídífu er kjörið tækifæri til að koma góðum boðskap á fram- færi. Því miður erum við öll með fordóma og áttum okkur bara ekki á því. Það er frábært að upplifa það í mínu starfi hvað börn eru fordóma- laus, það eru auðvitað við foreldr- arnir sem plöntum fordómum í börnin. Ég held það sé bara hollt og gott fyrir alla að horfa inn á við og velta fyrir sér sínum eigin fordóm- um. Til dæmis var hann Guðni okk- ar með fordóma gagnvart Eurovisi- on en hann áttaði sig sem betur fer á því,“ segir Heiðar og allir skella upp úr. „Þetta Eurovision-dæmi er nú töluvert meiri vinna en ég bjóst við. Þetta átti að vera létt grín en nú höfum við fengið prógrammið í hendur og þetta er bara risa doðrantur,“ segir Guðni þá og hlær. „Planið var að gera fjölskylduferð úr þessu öllu saman en við erum að sjá það núna að það eigi ekki alveg eftir að ganga upp. Reyndar fá kon- urnar að koma með en börnin verða skilin eftir hjá ömmu og afa,“ segir Arnar. „Þetta verður bara stans- laust prógram en við erum nú vanir því og hlökkum bara mikið til.“ Þegar viðtalinu lýkur setjast fjöl- skyldufeðurnir við hljóðfærin og byrja að æfa. En ekki fyrir Euro- vision heldur fyrir tónleika sem verða á Akureyri í lok mánaðarins í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Þeir stefna á að æfa fram eftir kvöldi líkt og þeir gera flest öll kvöld en það er greinilegt að þeir hafa gaman af því sem þeir gera. Enda væru þeir ekki að þessu annars. Pollapönkararnir, Haraldur Gíslason, Arnar Gíslason, Guðni Finnsson og Heiðar Örn Kristjánsson, munu halda útgáfutónleika þriðju plötunnar sinnar, „Be be be Besta Pollapönkið“ í Smáralind næstkomandi laugardag, 12. apríl, klukkan 14. 30 viðtal Helgin 11.-13. apríl 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.