Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.04.2014, Qupperneq 38

Fréttatíminn - 11.04.2014, Qupperneq 38
Styrkir úr Tónlistarsjóði 2014 H N O TS KÓ G U R g ra fí sk h ön nu n Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr tónlistarsjóði til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu 1. júlí 2014 til 31. desember 2014. Hlutverk tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra. Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild. Upplýsingar og umsóknargögn eru að finna á www.rannis.is. Umsóknum skal skila á rafrænu formi. Næst verður auglýst eftir umsóknum í nóvember 2014 vegna verkefna á fyrri hluta árs 2015. Umsóknarfrestur 15. maí 2014 A fkomendur Ketils Greips-sonar, bróður Sigurðar Greipssonar sem kenndur var við Geysi í Haukadal, hafa ekki fengið arf eftir Ketil og hefur jörð- inni Haukadal því ekki verið skipt milli réttmætra erfingja. Börn Ketils, sem voru fjögur en eru nú öll látin, hófu undir lok níunda áratugarins á liðinni öld að grafast fyrir um arf sinn. Í ljós kom að faðir þeirra, Ketill Greipsson, hafði verið þurrkaður út úr kirkjubókum og engar heimildir voru að finna um tilvist hans. Barátta barnanna fyrst um sinn, snerist því fyrst og fremst um að sanna tilvist föður síns, sem loks tókst. Fréttatíminn er með undir höndum gögn frá afkomendum Ketils sem sýna fram á að þau eiga hlut í óskiptu búi að Haukadal. Barnabörn Ketils hafa nú tekið málið upp að nýju og íhuga að leita réttar síns. Ketill var frumburður Greips Sigurðssonar og Katrínar Guð- mundsdóttur, sem bjuggu í Hauka- dal í Biskupstungum. Hann átti sex yngri systkini, fimm systur og einn bróður, Sigurð Greipsson sem kenndur hefur verið við Geysi. Ketill kvæntist Þórunni Jóns- dóttur og eignuðust þau fjögur börn, Valdimar, Katrínu, Sigríði og Greip. Ketill fórst með flutninga- skipi út af Reykjanesi árið 1917, þá 35 ára að aldri. Flest barna Þór- unnar voru tekin af henni eftir lát eiginmannsins og þau sett á sveit- ina því hún var talin ófær um að sjá þeim farborða. Yngsta barnið, Greipur, fór til að mynda ársgamall í fóstur til vandalausra en var tíu ára sendur til föðurbróður síns, Sigurðar Greipssonar. Katrín bjó í óskiptu búi allt til dauðadags árið 1940. Sam- kvæmt skjali frá sýslumanninum á Selfossi frá árinu 1991 verður ekki séð að dánarbúi Katrínar og Greips hafi verið skipt eftir andlát hennar. Í gögnum frá 1923 kemur hinsvegar fram að fjórar af fimm systrum Ketils og Sigurðar hafi selt Sigurði erfðahlut sinn í Hauka- dal, 4 af 28 hlutum jarðarinnar. Greipur SiGurðSSon fæddist í Haukadal í Biskupstungum árið 1885 og kvæntist Katrínu Guðmundsdóttur. Greipur lést árið 1910. Þau eignuðust átta börn en eitt þeirra fæddist andvana eða lést skömmu eftir fæðingu. Þau sem lifðu hétu Ketill (1882-1911), Jóhanna (1884-1924), Katrín (1886-1924), Þórunn (1888-1911), Sigríður (1891-1961), Guðbjörg (1893-1973) og Sigurður (1897-1985). Telja sig eiga land við Geysi Afkomendur Ketils Greipssonar, bróður Sigurðar Greipssonar sem kenndur var við Geysi í Haukadal, telja sig eiga tilkall til hluta jarðarinnar við Geysi. Samkvæmt opinberum skjölum var dánarbú foreldra Sigurðar, Ketils og fimm systra þeirra aldrei gert upp, en Ketill lést ungur af slysförum. Börn hans fengu aldrei föðurarfinn. Níu árum áður hafði Katrín selt tengdasyni sínum, Kristjáni Lofts- syni, eiginmanni Guðbjargar, 13 af 28 hlutum jarðarinnar. Árið 1935 seldi Kristján Loftsson Sigurði Greipssyni helming jarðarinnar. Árið 1938 höfðu mæðginin Katrín og Sigurður selt dönskum athafna- manni, Kristian Kirk, hluta jarðar- innar sem hann gaf Skógrækt ríkisins. Öll þessi viðskipti áttu sér stað án þess að búið hafi verið gert upp. Börn Ketils höfðu ekki fengið neinn arf eftir föður sinn. Árið 1991 leituðu afkomendur Ketils lögfræðiaðstoðar vegna hugsanlegs eignarhluta í jörðinni Haukadal í tengslum við fyrirhug- uð kaup ríkisins á Geysissvæðinu. Ekkert varð úr kaupunum. Um aldamótin kom aftur upp umræða um kaup ríkisins á Geysissvæðinu og stofnaði þáverandi umhverfis- ráðherra, Siv Friðleifsdóttir, nefnd um málið. Að nýju sendu afkom- endur Ketils bréf til ríkisins með tilstuðlan lögfræðings þar sem ráðuneytinu var tilkynnt um erfða- hluta í þeim hluta Geysissvæðisins sem ríkið á ekki. Eins og ljóst er varð ekkert úr kaupum ríkisins á Geysissvæðinu. Í september árið 2012 stofnuðu landeigendur Haukadalstorfunnar, að ríkinu undanskildu, Land- eigendafélag Geysis ehf. Ríkið á 35 prósent af landinu en aðrir 65 prósent. Afkomendur Ketils eru ekki skráðir meðal landeigenda en telja sig eiga tilkall til hluta þeirra 65 prósenta sem landeigendafélag- ið telur sig eiga. Ekkert samband var haft við afkomendur Ketils við stofnun félagsins. Að sögn Vigdísar Greipsdóttur, dóttur Greips, yngsta barns Ketils, leituðu faðir hennar og systkini hans sér lögfræðiaðstoðar með það fyrir augum að vita réttar- stöðu sína og fá upplýsingar um hversu stór hluti landsins tilheyrði þeim systkinunum. Úr því var ekki skorið og börn Ketils eru nú öll látin. Barnabörn Ketils, sem Fréttatíminn hefur rætt við, hafa ekki tekið ákvörðun um hvort leitað verði til dómstóla til að fá úr því skorið hversu stór hlutur af Haukadalsjörðinni tilheyri þeim en hyggjast skoða málið vandlega. Sigurður Skagfjörð Sigurðsson, varaformaður Landeigendafélags Geysis, kannast ekki við málið. „Við þekkjum ekki þetta mál og höfum í sjálfu sér enga skoðun á því. þetta er ekki hluti af okkar umhverfi í augnablikinu. Þetta snertir okkur í raun ekki, ef fólk telur sig eiga kröfu þá sækir það rétt sinn til viðkomandi yfirvalda og dómsvalda,“ segir Sigurður. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Afkomendur Ketils Greipssonar í Haukadal hafa ekki fengið arf eftir Ketil sem lést ungur af slysförum. Móðir Ketils lifði frumburð sinn og bjó í óskiptu búi í áratugi. Eftir lát hennar fékk ekkja Ketils engan arf eftir eiginmann sinn né heldur börn Ketils. Í hnotskurn  Greipur Sigurðsson lést 1910 og lét eftir sig eiginkonu og sjö börn. Þar á meðal Ketil.  Ketill Greipsson lést 1911 og lét eftir sig eiginkonu og fjögur börn.  Árið 1914, fjórum árum eftir andlát Greips eiginmanns Katrínar, seldi hún tengda- syni sínum, Kristjáni Loftssyni, eiginmanni Guðbjargar, 13 hundruð úr jörðinni Haukadal.  Árið 1923 seldu fjórar systur Sigurðar honum erfðahlut sinn í Haukadal, sem þá var metinn á fjögur hundruð „að fornu mati“.  Árið 1938 seldu Katrín og Sigurður, sonur hennar, Kristian Kirk hluta jarðarinnar sem Kirk gaf Skógrækt ríkisins. Mynd af Geysissvæðinu í Haukadal. Hvíta svæðið er sameign ríkisins og aðila sem stofnað hafa Landeigendafélag Geysis ehf. Afkomendur Ketils Greipssonar telja sig eiga tilkall til hvíta landsins 38 fréttaskýring Helgin 11.-13. apríl 2014
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.