Fréttatíminn - 11.04.2014, Blaðsíða 16
Erla
Hlynsdóttir
erla@
frettatiminn.is
sjónarhóll
Árið 2013 er
komið á netið
Kynntu þér ítarlegar upplýsingar um starfsemi og afkomu
Landsvirkjunar á landsvirkjun.is/arsskyrsla2013.
Rafræn ársskýrsla Landsvirkjunar 2013 er komin út. Þetta er
í fyrsta sinn sem ársskýrsla fyrirtækisins er eingöngu gefin út
á rafrænu formi. Með þessu viljum við tryggja betra aðgengi
að árlegu uppgjöri Landsvirkjunar.
Á árinu kannaði Landsvirkjun hagkvæmni vindorku.
Meðalnýting vindmyllna Landsvirkjunar er um
eftir eitt ár í rekstri. Meðalnýting á
heimsvísu er 28%.40%
É g keypti hlaupahjól handa dóttur minni á dögunum, eða réttara sagt keypti ég hlaupahjól fyrir
pabba minn handa dótturdótturinni
svo því sé nú haldið til haga. Þetta væri
kannski ekki í frásögur færandi nema
að hlaupahjólið var pakkað inn í kassa
og voru umbúðirnar í raun fyrirferðar-
meiri en hjólið sjálft. Fyrir nokkrum
árum hefði ég ekki einu sinni
velt þessu fyrir mér, farið heim
alsæl með hjólið í kassanum og
hent honum svo í ruslið.
Íbúum Reykjavíkur stendur
til boða, gegn greiðslu, að vera
með bláa tunnu við heimili sitt
en hjá mér er engin blá tunna
heldur fer ég með allan papp-
írsúrgang á næstu grenndar-
stöð. Ég hreinlega svitnaði yfir
því að þurfa að geyma kassann
heima þangað til ég færi næst
í endurvinnsluna. Því spurði
ég afgreiðslumanninn hvort ég
mætti skilja kassann eftir og
það var alveg sjálfsagt.
Mér varð hugsað til Facebook-síðunn-
ar „Bylting gegn umbúðum“ sem Mar-
grét Gauja Magnúsdóttir stofnaði eftir að
hafa keypt staka ostaslaufu í risastórum
plastumbúðum. Síðunni er ætlað að
skapa umræðu og vekja bæði neytendur
og framleiðendur til umhugsunar um
óþarfa umbúðir. Þarna hefur fólk sent
inn myndir af vörum í fyrirferðarmiklum
umbúðum og má sjá brot af því í um-
fjöllun um endurvinnslu hér í blaðinu:
„Þriðjungur borgarbúa forðast miklar
umbúðir.“ Í umfjölluninni er vitnað í nið-
urstöður nýrrar viðhorfskönnunar með-
al íbúa á höfuðborgarsvæðinu þar sem
27% segjast sneiða hjá vörum
í fyrirferðarmiklum
umbúðum og 40%
segjast vel geta
hugsað sér að
forðast slíkar
vörur þó þeir
geri það ekki í
dag. Ég hugs-
aði líka um
þessar niður-
stöður þegar ég
fór í matvöruversl-
un í fyrrakvöld og
keypti tvö avókadó
sem ekki bara voru í
plastbakka heldur var
einnig plast utan um
herlegheitin. Ég keypti þau því ég kaupi
alltaf akkúrat svona avókadó en þegar
ég kom heim og tók þau úr umbúðunum
fékk ég gríðarlegt samviskubit, sér í
lagi af því ég var nýbúin að skila af mér
umfjöllun um umhverfismál og endur-
vinnslu. Næst kaupi ég avókadó frá
öðrum framleiðanda. Nóg er nú úrvalið
og bæði hægt að fá avókadó stakt eða í
neti.
Við þurfum ekki að taka nema lítinn
rúnt í næstu verslun, hvort sem það er
matvörubúð eða annað, til að sjá hversu
gríðarlegt magn af umbúðum er utan
um vörurnar og það er sannarlega
ekki í undantekningartilfell-
um sem umbúðirnar eru
fyrirferðarmeiri en
varan sjálf. Þetta
snýst auðvitað
ekki bara um
aukaferðir í endur-
vinnsluna heldur
snýst þetta um
hugarfarsbreytingu
til framtíðar. Bara í
síðustu viku tóku sveit-
arfélögin Garðabær og
Hafnarfjörður mikil-
væg umhverfisvæn skref
til að sporna við notkun
innkaupapoka úr plasti
en slíkir pokar geta dagað
uppi í náttúrunni í hundruð
ára, oft í formi örsmárra plas-
tagna sem geta verið skaðleg,
ekki síst fyrir lífríki hafsins. Þess í
stað er hvatt til notkunar á fjölnota inn-
kaupapokum, og undir ruslið er í helstu
stórverslunum hægt að kaupa lífræna
maíspoka sem eyðast auðveldlega í nátt-
úrunni.
Það er að mörgu að huga, en eins og
allar byltingar þá hefst þessi hjá sjálfum
okkur. Því held ég hér blákalt fram, um-
búðalaust.
Stór hluti íbúa á höfuðborgarsvæðinu hefur efasemdir um fyrirferðarmiklar umbúðir
Ég hreinlega svitnaði yfir því að þurfa að geyma kassann heima þangað til ég
færi næst í endurvinnsluna.
Umbúðalaust
umsóknir um 9 störf framkvæmda-
stjóra hjá RÚV voru birtar á
mánudag, 78 frá konum og 97 frá
körlum. Margir drógu umsóknir til
baka áður en nöfnin voru birt.
140 bílaleigur eru með starfsleyfi á Íslandi. Þeim hefur fjölgað um
120% á síðustu sex
árum.
sorphirðubílum var komið fyrir við höfuð-
stöðvar fjölmiðlafyrirtækisins 365 í gær þar
sem fréttaflutningi Vísis var mótmælt. Tugir
sorphirðumanna mótmæltu vinnubrögðum
fréttamanna miðilsins.
8
4–5,5
175
milljarða króna er
Útvarpshúsið í Efsta-
leiti metið á, að því
er Viðskiptablaðið
greinir frá.
16 viðhorf Helgin 11.-13. apríl 2014