Fréttatíminn - 11.04.2014, Blaðsíða 62
62 ferming Helgin 11.-13. apríl 2014
Fermingarmyndir Facebook-síða Fréttatímans
sími: 588 8998
Steinbökuð gæðabrauð
að hætti Jóa Fel
é g fermdist þann 24. maí 1970 í Nes-kaupstað í Norðfjarðarkirkju,“ segir Fanney S. Jóhannsdótttir, sigur-
vegari í fermingarmyndaleik Fréttatímans
og var hin glæsilegasta á fermingardaginn
eins og sjá má.
Leikurinn fór fram á Facebook-síðu
Fréttatímans og gekk út á að fólk sendi
inn fermingarmyndir af sér. Fanney var
ein þeirra sem tók þátt og var dregin út
úr pottinum. Hlýtur hún að launum tíu
þúsund króna gjafabréf á veitingastaðinn
Sushi Samba.
Fanney var í stórum árgangi og voru
þau 42 sem fermdust þetta árið. Að athöfn-
inni lokinni var blásið til veislu á heimili
Fanneyjar þar sem móðir hennar hafði
bakað fyrir kaffihlaðborð. „Ég man að það
var peruterta og líka bananaterta. Þessar
kökur voru í miklu uppáhaldi hjá mér. Síð-
an voru heimatilbúnar smurbrauðstertur
og flatkökur með hangikjöti,“ segir Fann-
ey sem var hæstánægð með þessar góðu
veitingar. Gestir voru nánustu ættingjar
og vinir, kannski 35-40 manns, og gjöfin
sem flest fermingarbörn fengu á þessum
tíma var armbandsúr. „Ég fékk arm-
bandsúr og Kodak-myndavél. Mér er líka
minnisstætt að ég fékk Nýja testamentið
og það var búið að grafa nafnið mitt í það.
Síðan fékk ég hringa og aðra skartgripi og
mér barst mikið af skeytum.“
Hún segir að fermingardagurinn hafi
verið afar fallegur og fermingarbörnin full
gleði og eftirvæntingar að morgni dags.
„Þegar ég var unglingur fannst mér reynd-
ar þessi fermingarmynd alveg skelfileg
en ég hef gaman af henni í dag. Ég sendi
hana inn því maður þarf að hafa húmor
fyrir sjálfum sér,“ segir Fanney sem síðan
þá hefur leitt þrjú börn til fermingar.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Fanney sigurvegari
í fermingarleik
Fanney S. Jóhannsdóttir er sigurvegari í fermingarmyndaleik Fréttatímans. Hún fermdist í Nes-
kaupstað árið 1970 og var fermingunni fagnað með perutertu og bananatertu sem báðar voru í
miklu uppáhaldi.
Fanney S. Jóhannsdóttir á fermingardaginn, 24. maí 1970.
Ég man
að það var
peruterta og
líka banana-
terta. Þessar
kökur voru
í miklu upp-
áhaldi hjá
mér.
Við borgaralegar fermingar hjá
Siðmennt hefur skapast sú hefð
að valinkunnir einstaklingar haldi
ræðu við athöfnina og tali til ferm-
ingarbarnanna. Við borgaralega
fermingu í Háskólabíói um síðustu
helgi kom það í hlut rithöfundar-
ins Kristínar Tómasdóttur að halda
ræðuna en sjálf fermdist hún borg-
aralega árið 1997.
Í ræðu sinni hvatti Kristín ferm-
ingarbörnin til að gera ekki óraun-
hæfar kröfur, hvorki til sjálfra sín
né annarra og að brjóta sig ekki
niður fyrir mistök. Hún sagði betra
að íhuga hvort þau hafi gert sitt
besta og geti mögulega gert betur
og þannig lært af mistökum. Í ræðu
Kristínar kom jafnframt fram að
hún hafi þurft að rífast margoft við
foreldra sína áður en hún fór að fíla
þá og hafi fallið í mörgum prófum
áður en hún fann námstækni sem
hentaði og varð stúdent. Kristín
lauk ræðunni á orðunum „það er
enginn fullkominn og það er full-
komlega eins og það á að vera.“
Um síðustu helgi var borgaraleg
ferming á Flúðum og talaði Þor-
grímur Þráinsson þá til fermingar-
barnanna og á Höfn í Hornafirði
var það íþróttamaðurinn Ólafur
Stefán Flóventsson.
Kristín Tómasdóttir talaði til
fermingarbarna
„Það er enginn fullkominn og það er
fullkomlega eins og það á að vera,“
sagði Kristín Tómasdóttir í ræðu sinni
til fermingarbarna.