Fréttatíminn - 11.04.2014, Blaðsíða 34
Hátún 6a • 105 Rvk • Sími: 552 4420 • fonix.is
Mikið úrval af heimilistækjum
Kæli og frystiskápar
Spanhelluborð
Blástursofnar
Uppþvottavélar
„Við fundum aldrei tíma
saman þannig að hún bauð
mér bara að koma í matar-
boð sem hún var með eitt
kvöldið með vinum og ætt-
ingjum,“ segir Elías. Kristín
horfir laumulega á eigin-
manninn og segir að hann
hafi aldrei farið heim það
kvöld: „Ég ákvað bara að
drífa í að hitta hann og bauð
honum að vera með. Þegar
hann mætti með gítar á
bakinu og kyssti mig beint
á munninn vissi ég að þetta
yrði eftirminnilegt.“ Elías
afsakar sig með því að hann
hafi verið með gítar því hann
var nýkominn úr afmæli.
„Hann sat svo við matar-
borðið og starði á mig allan
tímann. Mér fannst þetta
mjög vandræðalegt,“ segir
Kristín en Elías spyr hissa:
„Fannst þér þetta vandræða-
legt?“ Hún játar því og bætir
við að henni hafi raunar
fundist enn vandræðalegra
þegar hann hafi byrjað að
stíga í vænginn við hana
fyrir framan gestina. „Sér-
staklega þegar hann tók
fram gítarinn og byrjaði
að syngja mér mansöngva.
Vinum mínum fannst þetta
bráðfyndið. Hann kvaddi
síðan alla gestina eins og
hann væri húsbóndinn á
heimilinu,“ segir Kristín.
Elías er hissa á þessu
öllu saman og segir að hún
hefði vel getað beðið hann
um að fara ef hún vildi ekki
að hann væri áfram. Kristín
viðurkennir þá að hún hafi
innst inni alls ekki langað
til þess að hann væri. „Þetta
bar afskaplega brátt að en
mig langaði ekki að henda
honum út. Ég stóðst bara
ekki þennan „seasoned
lothario,“ segir hún. Ég
veit að hún er hálf ensk og
starfar við þýðingar og vona
að ég sé ekki að opinbera
fávisku mína þegar ég spyr
hvað þetta þýði eiginlega.
„Það þýðir í rauninni bara
reyndur flagari,“ segir hún
en í sögunni um Don Kíkóta
má meðal annars lesa um
Lothario nokkurn sem og
annars staðar í heimsbók-
menntunum og allir eru þeir
sérlega kvensamir.
„Þú sagðir líka við mig að
þér fyndist rökrétt fyrir þig
að eiga kærustu á einhverf-
urófinu,“ segir Kristín og
beinir orðum sínum til Elías-
ar en heldur svo áfram: „Út
frá kaldri rökfræði fannst
mér líka rökrétt að eiga kær-
asta með Asperger. Það er
rökrétt að vera í nánum sam-
skiptum við fólk sem skilur
hvernig maður er víraður.
Og svo varð ég mjög fljótt
Hjónin Elías Halldór Ágústsson og Kristín Vilhjálmsdóttir ásamt þriggja ára syni
þeirra, Vilhjálmi Stefáni. Fyrir á Elías þrjú börn og Kristín tvíbura. Ljósmynd/Hari
34 viðtal Helgin 11.-13. apríl 2014