Fréttatíminn - 11.04.2014, Blaðsíða 28
V ið mælum okkur mót í Hljóðfærahúsinu, þar sem helmingur hljóm-sveitarinnar, Arnar
trommari og Guðni bassaleikari,
vinna sína dagvinnu. Þangað ætlar
hinn helmingur hljómsveitarinnar,
Heiðar söngvari og Halli gítarleik-
ari, að mæta eftir sína dagvinnu, til
að æfa. Reyndar mætir Halli ekki
fyrr en eftir viðtalið og rétt nær
í myndatökuna. Honum er samt
fljótt fyrirgefið þar sem hann var
fastur í barnastússi.
Heimilisiðnaður sem vatt upp
á sig
Pollapönk byrjaði sem útskriftar-
verkefni Halla og Heiðars í Kenn-
araháskólanum árið 2006. „Þetta
var samt alls ekki hugsað sem
hljómsveit sem átti að spila út um
allan bæ í upphafi. Þetta voru lög
og textar sem við tókum bara upp
í stofunni heima og svo fylgdi
skýrsla um barnamenningu með
lokaverkefninu. Þetta var bara
svona heimilisiðnaður sem vatt upp
á sig,“ segir Heiðar. „Svo vantaði
ykkur hljóðfæraleikara þegar þið
voruð beðnir um að koma í Kastljós
og þá komum við inn í myndina,
var það ekki?,“ spyr Arnar sem er
yngri bróðir Halla. Jú, þannig var
það og hann kom inn sem tromm-
ari en Guðni, sem hefur spilað á
bassa með Arnari í flestum hljóm-
sveitum landsins, varð bassaleikari
Ekkert minna
rokk að spila fyrir börn
Hljómsveitin Pollapönk keppir fyrir Íslands hönd í lokakeppni Eurovision í Kaupmannahöfn í næsta mánuði.
Pollapönkarar fá aldrei leið á því að spila saman þrátt fyrir að hafa verið í rokkinu frá unglingsaldri. Þeir segja það
ekki minna rokk en annað að vera í jogginggalla og spila fyrir börn, jafnvel bara meira. Það sé þó
töluvert erfitt að samhæfa rokklífið fjölskyldunni.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Heiðar Örn
Kristjánsson
Blár polli
Aldur: 39 ára.
Búseta: Hafnarfjörður.
Aðrar hljómsveitir: Botnleðja, The Viking Giant Show.
arnar Þór
Gíslason
Bleikur polli
Aldur: 36 ára.
Búseta: Hafnarfjörður.
Aðrar hljómsveitir:
Dr. Spock, Mugison, Pétur Ben,
Ensími, Lára Rúnars
Haraldur
Freyr Gíslason
rauður polli
Aldur: 39 ára.
Búseta: Hafnarfjörður.
Aðrar hljómsveitir: Botnleðja.
Guðni Finnsson
Gulur polli
Aldur: 43 ára.
Búseta: 108 Reykjavík.
Aðrar hljómsveitir:
Dr. Spock, Ensími,
Mugison.
hljómsveitarinnar og Pollapönk
varð til. Það eru hæg heimatökin í
litlum bransa á litlu landi.
Eftir fyrstu heimagerðu plötuna
hafa bæst við tvær plötur og nú
er á leiðinni sú þriðja, „Be be be
Besta Pollapönkið“, sem inniheldur
Eurovision-lagið í þremur útgáfum
og eitt nýtt lag auk bestu gömlu
laganna. „Fyrir þessar tvær plötur
sem við Guðni tókum þátt í fórum
við allir saman upp í bústað og
sömdum alveg helling af músík.
Það var mjög skemmtilegt, bara
grill og góður matur,“ segir Arnar.
„Já, það var svo skemmtilegt, get-
um við ekki gert það aftur?,“ biður
Guðni og allir lofa þeir honum því.
Meira rokk að spila fyrir börn
Það er nú ekki beint ímynd rokk-
arans að vera í jogginggalla upp
í bústað að semja barnalög, eða
hvað? „Æ, við erum bara orðnir
svo gamlir,“ segir Guðni hrumur
og allir hlæja. „Nei, nei, það er bara
enginn munur á því að semja fyrir
börn eða fullorðna. Það sama á við
um spiliríið. Við spilum alveg eins
hvort sem það er um miðja nótt í
einhverri annari hljómsveit eða um
miðjan dag á leikskóla fyrir börnin.
Við leggjum alltaf sama metnaðinn
í það sem við erum að gera. Ég
held líka að það sé enginn úr þeim
stóra hópi tónlistarmanna sem við
þekkjum eitthvað að gera grín að
okkur fyrir að vera í þessum bún-
ingum og spila fyrir börn,“ segir
Guðni. „Ekki nema þá á bak við
okkur,“ bætir Arnar þá við og allir
skellihlæja.
„Nei, svona í alvöru þá finnst
mér bara vera meira rokk að spila í
bleikum galla fyrir hóp af börnum,“
segir Arnar. „Ég klæðist gallanum
bara gríðarlega stoltur og ég veit
að dóttur minni finnst ég flottur.
Reyndar er hún komin yfir bleika
stigið núna, svo kannski er ég ekk-
ert svo svalur lengur.“ „Það er líka
svo frábært að spila fyrir börn því
þau eru svo einlæg og heiðarleg,“
bætir Heiðar við. „Já, og láta þig
vita um leið ef þau fíla þig ekki.
Ég var í sundi um daginn og hitti
þar einn lítinn sem kannaðist við
mig úr Pollapönki og heilsaði upp
á mig,“ segir Arnar. „Ég spurði
hann þá hvort hann væri ekki bara
ánægður með okkur, en nei, það
var hann sko ekki. Sagði bara beint
út að sér þætti við alveg hundleiðin-
legir.“
Músíkin er tímafrekt áhugamál
„Ég væri alveg til í að sinna meiri
tónlist en það er bara ekki tími til
þess. Það er auðvitað fjölskyldan
og vinnan sem gengur fyrir,“ segir
Heiðar en þeir eru allir eru sam-
mála um það að sameina þessa
helstu ástríðu sem músíkin er, fjöl-
skyldunni og vinnunni, sé erfitt.
Arnar og Guðni vinna í Hljóðfæra-
húsinu, Heiðar á leikskóla og Halli
er formaður Félags leikskólakenn-
ara. „Þetta er bara ekki hægt, þetta
er soldið eins og sjómennska,“
segir Heiðar, „maður er bara aldrei
heima. Maður fylgir börnunum í
skólann, stoppar rétt við eftir vinnu
og er svo farinn út strax eftir mat
til að æfa og stússast eitthvað. Svo
eru þau sofnuð þegar maður kemur
heim.“
„Langbest er auðvitað þegar
hægt er að taka börnin og fjöl-
skylduna með. Við vorum til dæmis
að spila í Reiðhöllinni í gær og öll
börnin komu með,“ segir Guðni
sem á þrjú börn eins og Halli en
Heiðar á tvö og Arnar eitt en annað
er á leiðinni. „Ég verð nú að viður-
kenna að þau eru ekki jafn æst og
þau voru til að byrja með. „Ohhhh,
nei pabbi, ekki aftur Pollapönktón-
leikar“,“ segir Heiðar og allir fara
að skellihlæja. „En svo er ég líka að
Framhald á næstu síðu
28 viðtal Helgin 11.-13. apríl 2014