Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.04.2014, Síða 35

Fréttatíminn - 11.04.2014, Síða 35
– G Ó Ð U R Á B R A U Ð – Í S L E N S K U R GÓÐOSTUR ógurlega skotin í honum,“ segir Kristín brosandi. Bókstaflega gaf símann Elías tekur til við að viðra vangaveltur sínar: „Ég hef velt því fyrir mér hvort hún sé nokkuð svo einhverf. Það vantar til dæmis í hana allan verkfræðilegan þankagang. Allir karlmenn í minni ætt eru kerfishugsuðir. Mér finnst hún oft heldur ekki taka mig nógu bókstaflega,“ segir hann en Kristín bendir á að athyglisbresturinn hjá henni hafi líka sitt að segja. Hún rifjar þó upp dæmi þar sem hún tók hlutunum mjög svo bókstaflega. „Ég var í partíi og þar sem hópurinn var að fara í bæinn og myndi eitthvað dreifast bendir vin- kona mín á vin minn við hliðina á mér og segir mér að gefa honum símann minn. Mitt fyrsta verk er þá að draga upp símann og rétta honum, sem auðvitað var gap- andi hissa og skildi ekki af hverju ég var að gefa honum símann minn,“ segir Kristín sem hefur sannarlega húmor fyrir eigin misskilningi. Þriggja ára sonur þeirra er byrjaður á leikskóla og virðist eiga frekar gott með samskipti en engu að síður er fylgst með því hvort hann sýni einkenni einhverfu. „Það er alltaf gert þegar börn eiga eldra systkini með ein- hverfu og mér finnst það bara alveg eðlilegt. Hann er með seinkaðan málþroska en ég hef samt litlar áhyggjur af honum. Ég hef orðið vitni að svo fallegum augnablikum á leikskólanum þar sem hann fær hópknús frá hálfri leik- skóladeildinni. Hann nær vel að tengja við hin börnin og leikur sér við þau. Hann vill samt ekki að þau fari of mikið inn á hans rými. Eldri bróðir hans sem er einhverfur lék sér alltaf einn úti í horni og þeir eru mjög ólíkir,“ segir Kristín. Rekinn inn í miðjum fyrirlestri Hún rifjar upp að sem barn vildi hún helst fá að vera ein í friði og vissi til að mynda fátt verra en fjölmennar veislur. „Það var þekkt á mínu heimili að í jólaveislum læsti ég mig alltaf inni í herbergi, en hurðin var brotin upp og mér sagt að koma fram og heilsa fólki,“ segir Kristín. Elías hefur aðra sögu að segja. „Ég hef alltaf kunnað vel við mig í veislum og var í raun algjört partíljón. Ég kom mér oft fyrir meðal fólks og fór að halda fyrirlestra um eitthvað sem ég hafði lesið um. Fólki fannst þetta kannski sniðugt til að byrja með en ég var svo rekinn inn í herbergi í miðjum fyrirlestri.“ Bæði eru þau sannfærð um að fjöldi fólks í samfélaginu sem komið er á fullorðinsaldur sé á einhverfurófinu jafn- vel þó það hafi aldrei fengið greiningu. „Ég held að það séu sumir á okkar aldri sem myndu frekar láta draga úr sér allar tennurnar án deyfingar en að láta greina sig með ein- hverfu,“ segir Elías og er hann til að mynda handviss um að þriðji hver prófessor við há- skólann sé með Asperger. „Ég vil reyndar ganga svo langt að segja að allir sem eru með skapandi hugsun, hvort sem það eru listamenn eða fræði- menn, séu á einhverfurófinu,“ segir hún. Þau eru bæði stolt af því að vera einmitt eins og þau eru og þótt það verði stund- um árekstrar í félagslegum samskiptum þá er það bara þannig. Að viðtali loknu þurfti aðeins að finna tíma og stað fyrir myndatöku. „Ég hef ekki forsendur til að ákveða þetta,“ segir Elías þegar ég hef sam- band við hann síðar vegna myndatökunnar en Kristín gekk svo í málið. Þetta tókst allt að lokum. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is viðtal 35 Helgin 11.-13. apríl 2014
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.