Fréttatíminn - 14.02.2014, Blaðsíða 6
Átaksverkefninu Konur í tækni
var hleypt af stokkunum til höfuðs
þeirri mýtu að tæknistörf séu fyrst
og fremst fyrir karlmenn. Upphafs-
konur verkefnisins eru þær: Armina
Ilea, Auður Alfa Ólafsdóttir og Paula
Gould sem allar starfa hjá GreenQlo-
ud og vilja byggja upp samfélag á Ís-
landi sem byggist á samvinnu og
er til þess fallið að styðja við konur
í tæknigeiranum. Þær standa fyrir
mánaðarlegum viðburðum með það
að markmiði að hvetja konur til þess
að leggja fyrir sig nám í tæknigrein-
um, efla konur innan tæknigeirans
og styrkja tengslanet sitt.
Aðstandendur átaksverkefnisins,
Armina Ilea og Auður Alfa Ólafs-
dóttir ásamt Nancy Valenttina Griff-
in, Guðrúnu Laugu Ólafsdóttur og
Ragnheiði Halldórsdóttur frá Marel
komu saman fyrr í vikunni en næsti
viðburður verkefnisins verður hald-
inn í Marel 19. febrúar. Þar munu
Guðrún Lauga Ólafsdóttir, Rósa
Björg Ólafsdóttir og Gunnlaug Otte-
sen deila reynslu sinni af tækniheim-
inum, að því er fram kemur í tilkynn-
ingu frá Marel.
„Það er mikilvægt að efla umræðu
og vitund um tækni og nýsköpun í
samfélaginu og hvetja konur til að
taka þátt í þeirri umræðu og deila
reynslu sinni. Sömuleiðis að styrkja
samböndin og læra af öðrum,“ segir
Ragnheiður Halldórsdóttir, gæða-
stjóri Marel.
„Við sjáum mikil verðmæti í því
að fara í samstarf við fleiri fyrir-
tæki sem geta haldið viðburði og
tekið þátt en það mun koma til með
að styrkja verkefnið á marga vegu,“
segir Armina, fulltrúi viðskiptaþró-
unnar GreenQloud.
Nánari upplýsingar er að finna á
marel.is og Facebook síðu Konur í
tækni en þar er hægt að skrá sig á
viðburði félagsins. Marel er í hópi
stærstu útflutningsfyrirtækja Ís-
lands og í fararbroddi í þróun og
framleiðslu á háþróuðum búnaði og
kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og
kjúklingi. -jh
Biskupsstofa
hyggst auglýsa
eftir fagaðilum
til að reka
veitinga- og
gistiþjónustu
í Skálholti en
reksturinn er
nú í höndum
Þjóðkirkjunnar.
Vígslubiskup
hefur frá upp-
hafi gagnrýnt
fyrirhugaða
leigu á rekstr-
inum og telur
honum best
komið hjá
kirkjunni.
B iskupsstofa undirbýr gerð auglýs-ingar þar sem óskað er eftir tilboð-um í rekstur veitinga- og gistiþjón-
ustu í Skálholti en reksturinn heyrir nú
undir þjóðkirkjuna. Kirkjuráð samþykkti
um mitt síðasta ár að fela framkvæmda-
stjóra og fjármálastjóra að vinna tillögur að
því að reksturinn í Skálholti verði leigður
út, þar sem ákveðin tímabil eru ætluð fyrir
kirkjuleg námskeið og ráðstefnur. „Ekki er
ljóst hvaða dag auglýsingin verður birt en
það fer að líða að því. Búið er að fara yfir
öll helstu atriði sem hafa þarf í huga áður
en af því verður,“ segir Agnes M. Sigurðar-
dóttir, biskup Íslands, sem ennfremur er
formaður kirkjuráðs.
Fyrirhuguð leiga hefur frá upphafi mætt
mikilli andstöðu Kristjáns Vals Ingólfs-
sonar, vígslubiskups í Skálholti. „Þetta er
stórmál sem bara vefur utan á sig og er
engan veginn lokið. Ég lýsti því strax yfir
að ég væri algjörlega mótfallinn þessum
áformum og ég tel að þau spilli fyrir þeirri
starfsemi sem við erum með á vegum
kirkjunnar í Skálholti. Ég hef líka lýst því
yfir að það fari illa á því að vera með hótel
undir kirkjuveggnum,“ segir hann.
Skálholtsskóli hefur um árabil rekið
gistiþjónustu og samkvæmt vefsíðu
Skálholts eru þar 23 herbergi til leigu, 11
herbergi í Skálholtsbúðum auk þriggja
orlofshúsa. Kristján Valur segir þá þjón-
ustu af allt öðrum toga en hefðbundin
gistiherbergi og sé rekin á grundvelli sér-
stakra laga um Skálholtsskóla. „Okkar
leyfi byggir á því að ef ekki er starfsemi
á vegum kirkjunnar þá eru herbergi látin
eftir ferðamönnum og við höfum þá haft
sama háttinn á og gert er á Hótel Eddu á
Laugarvatni og fleiri stöðum,“ segir hann.
Séra Gunnlaugur Stefánsson situr
einnig í kirkjuráði og lítur svo á að þjóð-
kirkjan standi í hótel- og veitingarekstri.
„Auk þess hefur verið tap á þessum rekstri
og það er ekki forsvaranlegt fyrir kirkjuna
að niðurgreiða hótel- og veitingarekstur
þegar kristilegt menningarstarf líður fyrir
fjárskort,“ segir hann.
Biskup tekur undir að aðalástæðan
séu fjárhagsleg sjónarmið en leggja þurfi
áherslu á helgi staðarins. „Skálholt er sér-
stakur staður, þetta er helgistaður, sögu-
staður, ferðamannastaður, kyrrðarsetur og
fræðasetur, og sá sem leigir verður að taka
tillit til þess sem þarna fer fram,“ segir Ag-
nes. Hún segir að það sé vissulega óheppi-
legt að leiga á rekstrinum sé ekki í sátt
við vígslubiskup í Skálholti. „Þegar gera
á breytingar er auðvitað best að það náist
samstaða um það hjá öllum aðilum sem að
málinu koma. Hins vegar er það þannig að
kirkjuráð ber ábyrgð á Skálholti, og þar
með fjárhagslega ábyrgð, og kirkjuráð þarf
að standa undir þeirri ábyrgð,“ segir hún.
Í dag, föstudag, er fyrirhugaður óform-
legur vinnufundur þar sem biskup og
fjármálastjóri Biskupsstofu hitta skólaráð
Skálholtsskóla og vígslubiskup í Skálholti
fara yfir hvar málið er statt.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
TæknisTörf sTuðningur við konur í Tæknigeiranum
Marel og konur í tækni í samstarf
Ragnheiður Halldórsdóttir, Guðrún Lauga Ólafsdóttir, Nancy Valenttina Griffin, Auður
Alfa Ólafssdóttir og Armina Ilea.
Verið velkomin!
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
laugard. 11-16
Basel
Torino
SÓFAR
Í MIKLU ÚRVALI
20% afsláttur
af öllum sófum / sófasettum
í völdum áklæðum
Sófinn þinn útfærður eftir þínum óskum
Sjónvarpsskápur
55.900
Skenkar
77.000
Barskápur
89.000
Kemur næst út 14. mars
Deilt um rekstur gisti-
þjónustu í Skálholti
Þjóðkirkjan hefur um árabil séð um gistingu- og veitingarekstur í Skálholti en kirkjuráð hefur af fjárhagsástæðum samþykkt að
auglýsa eftir tilboðum frá fagaðilum í reksturinn. NordicPhotos/Getty
skálholT ekki ríkir eining um veiTingareksTur og gisTingar
6 fréttir Helgin 14.-16. febrúar 2014