Fréttatíminn - 14.02.2014, Side 18
Frjálst val hverrar konu eða vændi?
S taðgöngumóðir er kona sem gengur með barn fyrir annan en sjálfa sig. Verðandi for-eldar barnsins eru oftast pör sem eiga við ófrjósemi að stríða. Stundum er egg stað-
göngumóður frjóvgað með sæði frá verðandi föður
en oftast er notast við frjóvgað egg verðandi móður
og þá er talað um „fulla“ staðgöngumæðrun. Helga
bendir á að hugmyndir fólks virðast skiptast aðal-
lega í þrjá hópa. Stuðningsmenn telja flestir að konur
séu best fallnar til þess sjálfar að taka ákvörðun um
að gerast staðgöngumæður en finnst þó flestum að
slíkt eigi bara að leyfa í velgjörðarskyni. Andstæð-
ingar lögleiðingar telja engan hafa rétt til að nýta sér
líkama annarra, hvorki með greiðslum né félags-
legum þrýstingi. Svo eru það þeir sem ekki taka
afstöðu og telja þörf á meiri umræðu og auknum
rannsóknum.
Frjálsar og fórnfúsar konur
Yfirskrift fyrirlestursins var „Staðgöngumæður:
Frjálsar og fórnfúsar konur“. „Yfirskriftin kemur frá
þessari staðalímynd sem sumir draga upp af stað-
göngumæðrum. Annars vegar eru það þeir sem sjá
staðgöngumæður fyrir sér sem frjálsar konur og
fórnfúsar því hvatinn hjá þeim sé hjálpsemi, og hins
vegar er það hugmyndin um konur sem verkfæri
fyrir aðra, segir Helga Finnsdóttir mannfræðingur.
Helga segir eitt helsta ágreiningsmálið snúast um
það hvort hægt sé að draga skýr mörk milli stað-
göngumæðrunar í velgjörðarskyni eða hagnaðar-
Staðgöngumæður miSjafnar Skoðanir á umdeildu málefni
Flestir hafa mjög sterka skoðun á staðgöngumæðrun. Stuðningsmenn telja hana eiga að vera frjálst val hverrar
konu á meðan hörðustu andstæðingar telja hana vera eina birtingarmynd vændis. Eitt er þó víst og það er að
málefnið veltir fram mörgum siðferðislegum álitamálum. Helga Finnsdóttir mannfræðingur og Jónína Einarsdóttir,
prófessor í mannfræði við félags-og mannvísindadeild Háskóla Íslands, hafa rannsakað staðgöngumæðrun og
hugmyndir íslenskra fjölmiðla og áhugafólks um staðgöngumæðrun. Þær kynntu niðurstöður sínar á fyrirlestri á
vegum MARK, Miðstöðvar margbreytileika-og kynjarannsókna við Háskólann, í Árnagarði í vikunni.
Halla
Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Vitað er til þess að
nokkrir Íslendingar
hafi fæðst með
aðstoð staðgöngu-
mæðra en engar
opinberar tölur
eru til um fjöldann
þar sem ferlið er
ólöglegt.
Ljósmynd/Getty
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
Láttu þér líða vel. ŠKODA Rapid er nýr og glæsilega hannaður fjölskyldubíll
frá ŠKODA sem uppfyllir kröfur þeirra sem vilja gott innanrými og mikil
þægindi fyrir fjölskylduna. Heildarlengd Rapid er 4,48 metrar, haganleg
hönnun gefur gott rými fyrir fimm farþega og farangursrýmið rúmar 550
lítra sem er með því besta sem gerist í þessum stærðarflokki.
Komdu víð í HEKLU eða hjá umboðs mönnum um allt land og reynsluaktu
nýjum og frábærum ŠKODA Rapid.
Nýr ŠKODA Rapid kostar aðeins frá:
3.090.000,- m.v. ŠKODA Rapid Ambition 1.2TSI,
86 hestöfl, beinskiptur.
Velkomin í reynsluakstur
á frábærum fjölskyldubíl
5 stjörnur í árekstrar
prófunum EuroNcap
Eyðsla frá 4,2 l/100 km CO2 frá 114 g/km
SIMPLY CLEVER
NÝR ŠKODA RAPID
18 fréttaskýring Helgin 14.-16. febrúar 2014