Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.02.2014, Side 19

Fréttatíminn - 14.02.2014, Side 19
skyni. Áhugavert sé að það virðist vera gerður greinarmunur á staðgöngumæðrun gegn greiðslu eftir því hvort hún er framkvæmd á Vesturlöndum eða í fátækum löndum. Umræð- an virðist snúast upp í tvo andstæða póla. „Það virðist vera gerður greinarmunur á siðferði- legum vandamálum eftir því hvar greiðslan er framkvæmd, bæði í rannsóknum og skrifum en einnig í fréttaumfjöllun. Það virðist frekar samþykkt að vestrænar konur séu færar um að þessa ákvörðun, hvort sem það er gegn greiðslu eða ekki, en í fátækari löndum sé frekar reiknað með þvingun kvenna, þrátt fyrir að innan rannsóknanna séu líka til indverskar konur sem segjast vilja gera þetta af fórnfýsi eða til að hjálpa fjölskyldunni. Erkitýpan af hinni þvinguðu konu er indversk, en það er sjaldan rætt að á Indlandi eru ekki bara stað- göngumæður heldur líka indverskt fólk sem nýtir sér þjónustu þeirra. En auk þess má nefna að ásókn í þjónustu indverskra stað- göngumæðra hefur aukist í löndum eins og Bretlandi og Ástralíu eftir að hún hefur verið lögleidd. Þannig að lögleiðing kemur ekki til með að koma í veg fyrir að þjónustu stað- göngumæðra sé leitað erlendis, með tilheyr- andi vandamálum eins og að koma barninu heim.“ Andstæðir pólar úr öllum áttum Á Íslandi virðist mikil áhersla vera lögð á vel- gjörð sem aðalhvata staðgöngumæðra. „Já, okkur Jónínu finnst áherslan á velgjörð vera leið til að draga það fram að konur séu í raun að velja þetta því þær virkilega vilji það. Ég ræddi við nokkrar manneskjur sem eru femín- ískt þenkjandi og þær bentu á að ef þetta er í lagi og ef konur eru að gera þetta einungis í velgjörðarskyni, af hverju má þá ekki umbuna þeim fyrir þetta erfiða verk.“ En svo eru það þeir sem telja staðgöngumæðrun vera eina birtingarmynd kúgunar kvenna, og sumir tala um leigu á legi og vændi. „Já þau sjónarmið eru hér til staðar. Ég bendi á pistil um stað- göngumæðrun sem birtist fyrst 2007 en vakti nánast enga athygli þá. Hann var svo dreginn upp á frekar ósanngjarnan hátt og settur í sam- Það virðist vera gerður greinar- munur á siðferðileg- um vanda- málum eftir því hvar greiðslan er fram- kvæmd, bæði í rann- sóknum og skrifum en einnig í fréttaum- fjöllun. hengi við Jóelsmálið sem kom upp 2011 og vakti þá gífurlega hörð viðbrögð. Í þeim pistli kom fram að samfélagið gæti sett fram mikla pressu á konur til að verða við ósk um staðgöngu- mæðrun ef hún væri lögleg. Þannig séu konur í raun aldrei alveg frjálsar þar sem samfélagið hafi alltaf mótandi áhrif á gjörðir þeirra. Lögleiðing myndi þannig búa til pressu á kon- ur sem annars er ekki til staðar. Höfundar áfangaskýrslu sem unnin var fyrir heilbrigðisráðuneytið bentu á sömu hættu. Svo eru líka til femínistar sem telja þessa tækni hafa í för með sér aukið frelsi kvenna og að staðgöngumæðrun sé bara öllum til hagsbóta. Það eru andstæðir pólar úr öllum áttum þegar kemur að þessu málefni.“ Sárvantar rannsóknir Helga segir furðulítið vera til af rannsóknum, hvort sem er á staðgöngumæðrunum sjálfum eða á börnunum, mögulega vegna þess hversu nýlega tæknifrjóvgun blandaðist inn í. Verið sé að vinna langtímarannsókn í Bretlandi þar sem fylgst verður með börnum, fæddum með aðstoð tæknifrjóvg- unar. Nýjustu niðurstöður, á börnunum sem eru þriggja ára, virðast jákvæðar. Það sé þó nauðsyn- legt að framkvæma fleiri og ítarlegri rannsóknir til að fá betri skilning á öllu ferlinu og líðan þeirra sem að því koma. Vitað er til þess að nokkrir Íslendingar hafi fæðst með aðstoð staðgöngumæðra en engar opinberar tölur eru til um fjöldann þar sem ferlið er ólöglegt. Árið 2008 lagði Ragnheiður Elín Árnadóttir fram fyrirspurn til Alþingis um staðgöngumæðrun og í kjölfarið var stofnaður vinnuhópur sem skilaði áfangaskýrslu. Niðurstaða hópsins var að leggja til að stað- göngumæðrun yrði ekki heim- iluð að svo stöddu. Árið 2010 var lögð fram þingsályktun- artillaga þar sem lagt var til að staðgöngumæðrun yrði heimiluð í velgjörðarskyni. Í janúar 2013 stofnaði Guð- bjartur Hannesson, þá- verandi velferðarráðherra, vinnuhóp sem skyldi vinna að gerð lagafrum- varps. Niðurstöðu hóps- ins er enn beðið. Helga Finnsdóttir mann- fræðingur segir áhersluna á staðgöngumæður sem fórnfúsar velgjörðarkon- ur áberandi í íslenskri orðræðu. Hún segir sárvanta rannsóknir til að fá betri skilning á öllu ferlinu. Ljósmynd/Hari Háhraðatenging fyrir stór og lítil heimili Með Ljósnetinu fær heimilið örugga háhraðatengingu fyrir sjónvörpin, tölvurnar, snjalltækin, netleikina, tónlistina, matarbloggið, kosningabaráttuna, kærustuna hinum megin á hnettinum og yfirleitt flest það sem fjölskyldan vill gera á netinu. Sterkara samband á heimilinu með Ljósneti Símans www.siminn.is/ljosnet Yfir 70% íslenskra heimila geta tengst Ljósnetinu. Kynntu þér möguleikana á siminn.is eða í 800 7000. N M 61 45 2 fréttaskýring 19 Helgin 14.-16. febrúar 2014

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.