Fréttatíminn - 14.02.2014, Síða 36
36 matur & vín Helgin 14.-16. febrúar 2014
vín vikunnar
The Wolftrap
Gerð: Hvítvín.
Þrúgur: Viognier,
Chenin Blanc,
Grenache Blanc.
Uppruni: Suður-
Afríka, 2012.
Styrkleiki: 13,5%
Verð í Vínbúðunum:
2.199 kr. (750 ml)
Umsögn: Létt og
ávaxtaríkt hvítvín
frá Suður-Afríku.
Gott vín til að hefja
Valentínusardags-
kvöldið á.
Beronia Viticultura
Ecologica
Tempranillo
Gerð: Rauðvín.
Þrúga: Tempranillo.
Uppruni: Spánn,
2010.
Styrkleiki: 13,5%
Verð í Vínbúðunum:
2.298 kr. (750 ml)
Umsögn: Ís-
lendingar ættu að
kunna ágætlega við
þetta Beronia-vín
enda er það frá hinu
sívinsæla Rioja-svæði
á Spáni. Eins og flest
vín þaðan er það úr
Tempranillo-þrúgunni
en að þessu sinni er
hún lífrænt ræktuð.
Það finnst kannski ekki
beinlínis á bragðinu en
þetta er engu að síður
skemmtilegt Rioja-vín.
Alamos
Chardonnay
Gerð: Hvítvín.
Þrúga: Chardonnay.
Uppruni: Argentína,
2012.
Styrkleiki: 13,5%
Verð í Vínbúðunum:
2.098 kr. (750 ml)
Umsögn: Þetta er
létt og fersk týpa af
víni úr Chardonnay-
þrúgunni þar sem
sítrus og sýra er
áberandi. Hentar vel
með feitari fiski og
öðru sjávarmeti.
Dansar í takt við ástarhitann
Dagur heilags Valentínusar er í dag. Við Íslendingar kunnum svo sem
lítið sem ekkert að fara með þennan mikla markaðsdag ástarinnar en
neitum okkur ekki um gott tilefni til að lyfta okkur upp. Og í dag er
tilvalið að pör taki frá tíma til að njóta saman.
Það er ekki einfalt að velja vín
ástarinnar enda gerum við ekki
tilraun til þess hér. Þessi ágæta
rauðvínsblanda frá Kaliforníu stendur
aftur á móti vel fyrir sínu og er ekki
verri amorsdrykkur en hver annar.
Gnarly Head Authentic Red er stórmerkileg blanda af fjórum
þrúgum. Blandan skilar merkilega mjúku víni þrátt fyrir að vera
töluvert alkóhólrík.
Gnarly Head yljar fólki vel um hjartaræturnar og hinn kryddaði
keimur þess dansar í takt við hitann í ástinni.
Gnarly Head Authentic Red
Gerð: Rauðvín.
Þrúgur: Zinfandel, Merlot, Cabernet
Sauvignon, Petite Sirah.
Uppruni: Bandaríkin, 2010 .
Styrkleiki: 14,5%
Verð í Vínbúðunum: 2.699 kr. (750 ml)
Höskuldur Daði Magnússon
Teitur Jónasson
ritstjorn@frettatiminn.is
Fréttatíminn mælir með
Uppskrift vikunnar
Sjóðheitt ástarkonfekt
Á degi ástarinnar er tilvalið
að pör reiði fram eitthvað
rómantískt saman í eld-
húsinu. Til að prófa eitthvað
nýtt væri ekki vitlaust að
gera saman konfekt. Opn-
aðu góða rauðvínsflösku og
njóttu kvöldsins.
Halldór Kristján Sigurðs-
son, lærður bakari og kondi-
tor, hefur haldið námskeið í
konfekt- og kransakökugerð
um árabil og leggur hér til
tvær sjóðheitar uppskriftir
að Valentínusardags-
konfekti. Halldór kennir á
næstunni námskeið bæði í
páskaeggjagerð og kransa-
kökugerð. Kransakök-
unámskeiðin eru á vegum
Blómavals og fara fram nú í
febrúar. Nánari upplýsingar
má finna á blomaval.is.
Páskaeggjanámskeiðin fara
fram í mars. Upplýsingar
um þau má finna á alltikoku.
is.
Ástarjátning
Innihald:
100 g möndlur
Hunang
150 g Carletti Nougat
Dökkt súkkulaði
Aðferð:
Húðið möndlurnar með
hunangi, setjið þær síðan
inn í ofn við um 180c hita
í um 10-15 mín, takið út
úr ofninum og látið kólna
vel. Myljið síðan niður
með kökukefli í litla bita,
blandið síðan saman við
nougat og kælið, búið síðan
til ástarkúlur er þetta er
orðið kalt, húðið með dökku
súkkulaði.
Karamellu losti
Innihald:
100 g Karamellu Pipp
60 g rjómi
Kakó
Aðferð:
Bræðið Karamellu Pipp í
potti eða örbylgju, látið
suðuna koma upp í rjóm-
anum, hellið honum síðan
yfir bræddu karamelluna í
smá skömmtum, látið sam-
lagast vel, kælið. Formið
síðan að vild í t.d. kúlur og
veltið upp úr kakó.
Delicato Shiraz
Gerð: Rauðvín.
Þrúgur: Shiraz.
Uppruni:
Bandaríkin, 2010.
Styrkleiki: 13,5%
Verð í Vínbúð-
unum: 1.999 kr.
(750 ml)
– fyrst og fre
mst
– fyrst og fre
mst
ódýr!
299
kr.
pk.
Verð áð
ur 492
kr. pk.
Kókómj
ólk, 6 í
pk.
DÚNDUR 39%
afslátturTILBOÐ!
Hámark
1 kassi
á mann meðan birgðir endast!
bakaðar kjúklingabringur
Prófaðu bökuðu kjúklingabringurnar, fylltar með
ferskum kryddjurtum og rjómaosti. Gottimatinn.is
Kemur næst út 14. mars