Fréttatíminn - 14.02.2014, Síða 52
52 bíó Helgin 14.-16. febrúar 2014
Von Trier
dugði ekk-
ert minna
en fimm
og hálf
klukku-
stund til
þess að
segja sögu
kynlífs-
fíkilsins
Joe.
Lars von Trier HneyksLar og kæTir
D anski leikstjórinn Lars von Trier virðist fá mikið út úr því að ganga fram af fólki og myndir hans eru
sjaldnast auðveldar á að horfa. Í Nympom-
aniac gengur hann lengra en nokkru sinni
fyrr í bersöglum kynlífsatriðum. Myndin er
stjörnum prýdd og leikstjórinn leggur ýmis-
legt á leikara sína en til þess að hlífa þeim við
því að þurfa beinlínis að hafa samfarir fyrir
framan myndavélarnar skeytir hann nær-
myndum af kynfærum klámmyndaleikara
inn í grófustu atriðin.
Trier lítur á Nympomaniac sem loka-
kafla þríleiks sem einnig telur Antichrist
og Melancholia en Charlotte Gainsbourg
leikur í þeim öllum. Honum dugði þó ekkert
minna en fimm og hálf klukkustund til þess
að segja sögu Joe, konu sem greinir sig sjálf
sem kynlífsfíkil, og hann fór því sömu leið
og Quentin Tarantino gerði með Kill Bill og
skiptir Nymphomaniac í tvo hluta, Volume I
og Volume II.
Nyphomaniac hefst á því að kynlaus fræði-
maður, sem Stellan Skarsgård leikur, kemur
á köldu vetrarkvöldi að Joe (Gainsbourg),
illa á sig kominni og sundurbarinni. Hann
skýtur yfir hana skjólshúsi og gerir að sárum
hennar og hún rekur fyrir honum lífshlaup
sitt sem kynlífsfíkill frá æsku til fimmtugs.
Óhætt er að segja að þar komi margir og
ólíkir bólfélagar við sögu en í stórum leik-
hópi eru meðal annarra Stacy Martin, Shia
LaBeouf, Christian Slater, Jamie Bell, Uma
Thurman, Sophie Kennedy Clark, Connie
Nielsen og Udo Kier.
Nyphomaniac Volume I verður frumsýnd
á Íslandi í dag, föstudag, en Volume II kemur
í bíó þann 14. mars. Í myndunum segir Joe
sögu sína í átta köflum og í fyrri hlutanum
leikur Stacy Martin hana á yngri árum en
Gainsbourg tekur síðan við og ríkir yfir síð-
ari hlutanum.
Lars von Trier mætti með helstu leikurum
með Nymphomaniac á Kvikmyndahátíðina
í Berlín þar sem henni var vel tekið. Gagn-
rýnendur hafa keppst við að ausa myndina
lofi. Trier er sagður vera í toppformi og að
Nymphomaniac sé með hans betri myndum.
Hann bregði á leik, húmorinn sé góður og
að hann flétti hugmyndum um kynvitund
kvenna saman við fluguveiðar og þrátt fyrir
bersöglina og klámfengin atriðin verði áhorf-
andinn þegar upp er staðið miklu fróðari um
fluguveiðar en kynlíf.
Hinn sérlundaði danski leikstjóri Lars von Trier hefur í gegnum tíðina með verkum sínum, orðum
og æði hneykslað fólk hressilega. Nýjasta kvikmynd hans, Nyphomaniac, mun óhjákvæmilega
ganga fram af einhverjum en þar gefur leikstjórinn ekkert eftir í opinskáum kynlífsatriðum sem
skilja nákvæmlega ekkert eftir fyrir ímyndunaraflið. Myndin hefur þó fengið stórgóða dóma víða
um lönd og ljóst má vera að þrátt fyrir allt er saga hinnar brókarsjúku Joe, sem von Trier rekur í
myndinni, eitthvað annað og meira en bara ómerkilegt klám.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Joe brókar var með sótt
Kynlífsfíkillinn Joe, sem Charlotte Gainsbourg, lendir í klónum á sadista sem hinn sakleysislegi leikari Jamie Bell
leikur.
FrumsýnD roboCop
Vélvæðing lögreglunnar
Hollenski leikstjórinn Paul
Verhoeven gerði RoboCop
1987, ofbeldisfulla og hressi-
lega spennumynd sem hefur
fyrir löngu öðlast ákveðinn
sess í hasardeildinni. Í
myndinni lék Peter Weller
fyrirmyndarlögguna Alex
Murphy sem glæpahyski
nánast drepur.
Vísindamönnum tekst að
tjasla honum saman með því
að hlaða utan á hann brynju
og alls konar vélbúnaði
þannig að upp rís véllöggan
RoboCop. Innra með honum
leynast þó mannlegar tilfinn-
ingar og minningar Murphys
sem eiga eftir að flækja
málin og setja strik í reikninga
gróðafyrirtækisins sem hann-
aði RoboCop.
Leikurinn hefur nú verið
endurtekinn með endurgerð
myndarinnar. Í þessari um-
ferð leikur sænski leikarinn
Joel Kinnaman, sem gerði það
til dæmis gott í Snabba cash,
RoboCop. Fjöldi góðra leikara
er með Svíanum í endurgerð-
inni svo sem Gary Oldman,
Michael Keaton, Miguel
Ferrer, Samuel L. Jackson,
Abbie Cornish, Jennifer Ehle
og Jackie Earle Haley.
Aðrir miðlar: Imdb: 6,7.
Rotten Tomatoes: 55%. Me-
tacritic: 51%
RoboCop
hefur
verið
poppaður
aðeins
upp í
endur-
gerðinni.
Frelsi til að kubba
Fljótt á litið mætti ætla að ekki væri hægt að fá
heimskulegri hugmynd en að gera bíómynd um
ævintýri LEGO-kubbakarla en það virðist hafa
verið afsannað með miklum glæsibrag í The Lego
Movie. Myndin hefur gert stormandi lukku og fengið
glimrandi dóma ytra þannig að þegar er farið að
huga að framhaldi.
Hér er á ferðinni léttleikandi ævintýri um
verkakubbakarlinn Hemma sem er ósköp venjulegur
kubbari. Fyrir misskilning er hann talinn hæfileikarík
kubbafrelsishetja og andspyrnulið fær hann til þess
að kubba án leiðbeininga í andófi gegn illum harð-
stjóra sem bannar frjálst kubberí.
Hemmi á framan ef erfitt með að fóta sig í hetju-
hlutverkinu en sem betur fer búa alls konar hetjur
í Lego-heiminum þannig að Batman, The Green
Lantern og Superman eru á meðal þeirra sem leggja
honum lið.
Aðrir miðlar: Imdb: 8,7. Rotten Tomatoes: 95%,
Metacritic: 82%
Hemmi þarf heldur betur að taka á honum stóra
sínum.
FrumsýnD THe Lego movie
SKÓLANEMAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR & KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS - MIÐASALA: 412 7711
MIELE (16)
SÝNINGARTÍMAR Á MIDI.IS
DONNIE DARKO (16)
SUN: 20.00
DIRECTOR’S CUT
sem mýkist
Laugavegi 176 & Glerártorgi Akureyri www.lindesign.is
Gefðu gjöf
ár eftir ár