Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.02.2014, Síða 67

Fréttatíminn - 14.02.2014, Síða 67
3 Kristín A. Árnadóttir gegndi stöðu sendiherra í Kína í rúm þrjú ár. Hún segir landið í hröðu umbreytingarferli, þar leynist tækifæri en á móti þurfi stjórn- völd að taka á áskorunum. „Kína er stærsta þróunarríki heims og samstarf við landið get- ur skilað sér,“ sagði Kristín A. Árnadóttir, fyrrum sendiherra Ís- lands í Kína, í ræðu sem hún hélt í tilefni af 90 ára afmæli Komm- únistaflokksins þar í landi. „Það verður líklega ekki hægt að finna stærri hóp neytenda næstu áratugi þegar hagvöxtur eykst og almenn- ingur fer að hafa fé á milli hand- anna í ríkari mæli. Ég hef trú á að Ísland geti flutt út matvæli, tækni og þekkingu.“ Kína er heimur út af fyrir sig Kristín A. Árnadóttir gegndi emb- ætti sendiherra í Kína frá upphafi árs 2010 til miðbiks árs 2013. Hún tók vel í að segja frá starfi sínu og lífi í Kína. „Kína er heimur út af fyrir sig, land í hröðu um- breytingaferli og eins frábrugðið okkar samfélagi og hugsast getur. Það var ómetanleg reynsla og um leið mikil áskorun að búa þar og starfa í nokkur ár, kynnast landi og þjóð og vinna að framgangi hagsmunamála fyrir Ísland og Ís- lendinga.“ Krafa um aukin mannréttindi Í ræðu sinni talaði Kristín um þær umbætur sem hafa verið í landinu frá því það var opnað seint á ní- unda áratugnum og en í kjölfarið hafa skapast atvinnutækifæri fyrir hundruðir milljóna. Að auki hef- ur tekist að sporna við sárri fátækt sem snert hafa um 500 milljónir manna. Þrátt fyrir þessar fram- farir segir Kristín ýmsar áskoranir enn vera fyrir hendi, til að mynda þegar kemur að mannréttindum og stöðu kvenna. Tækifærum fylgja áskoranir Kristín býst við að í kjölfar þessara breytinga komi krafa um breytingar á stjórnarfari og aukin mannréttindi. „Með vaxandi hag- sæld og framförum koma nýjar hugmyndir, neysla eykst og tæki- færum fjölgar. Einnig fylgja nýjar áskoranir í alþjóðamálum svo sem að takast á við loftslagsbreytingar, aukna orkuþörf, ógnir við matar- öryggi, heilsufarsvandamál og annað í þeim dúr. Hlutverk Kína á alþjóðavettvangi hefur breyst umtalsvert og hraðar en nokkur gat séð fyrir en á skömmum tíma hefur landið orðið annað stærsta hagkerfi heims,“ segir Kristín. Um þau stóru viðfangsefni sem Kína þarf að takast á við í fram- tíðinni segir Kristín að fyrir utan það að halda hagvexti áfram þurfi að bæta lífsgæði íbúa með jöfn- uði, styrkingu velferðarkerfisins, gagnsæi innan ríkistjórnarinnar og skiptingu á milli dómsvalds og stjórnmála. Hundruð nýta sér þjónustuna Um hlutverk sitt sem sendiherra Íslands segir Kristín að starfið hafi helst falist í því að vera stjórn- arerindreki og fulltrúi íslenskra stjórnvalda í ríkinu. „Margvísleg- um erindum þarf að sinna milli ríkjanna, sérstaklega þegar sam- starf er að aukast á öllum svið- um og unnið er að samningum um fjölbreytt mál.“ Meðal þeirra samninga sem ritað var undir á meðan hún gegndi embætti í Kína var fríverslunarsamningur sem var undirritaður í byrjun árs 2013 og nýlega samþykktur af Alþingi. „Mikil vinna fólst í því að að- stoða fólk og fyrirtæki, en sendi- ráðið rekur viðskiptaþjónustu, borgaraþjónustu, menningar- þjónustu og gefur út vegabréfsá- ritanir til Íslands. Fjölmiðlar eru líka mjög áhugasamir um Ísland og töluverð vinna að sinna viðtöl- um og fyrirspurnum.“ Kristín segir hundruð nýta sér þjónustu sendiráðsins en sendi- herra Kína er ekki einungis stjórnarerindreki þar í landi held- ur einnig í Ástralíu, Nýja Sjálandi, Mongólíu, Laos, Kambódíu, Ví- etnam, Tælandi, Suður-Kóreu og Norður-Kóreu. Kristín segir að mörg erfið mál hafi komið upp í þessum ríkjum vegna slysa, óhappa, og fangelsisvistunar og þeim málum hafi hún, starfsfólk sendiráðsins og utanríkisráðu- neytið sinnt með aðstoð ræðis- manna Íslands í viðkomandi ríkj- um. Margir þekkja Bing Dao Kristín segir Íslendinga sem búa í Kína halda hópinn, sérstaklega í Sjanghæ og Peking þar sem flestir búa. Þar er starfsrækt Íslendinga- félag ásamt því að sendiráðið heldur hópnum saman. Aðspurð um hvort Kínverjar þekki Ísland segir Kristín að það sé mesta furða. „Ótrúlega margir þekkja Ísland sem er eitt af fáum ríkjum sem á sitt eigið nafn á kínversku Bing Dao sem þýðir íseyjan.“ -Hrefna Rós Matthíasdóttir Ómetanleg reynsla og áskorun að starfa í Kína Kristín A. Árnadóttir Herdís Ólína Hjörvarsdóttir hefur æft Qigong í rúmt ár. Hún kom nýverið heim með gullverðlaun frá alþjóðlegu Qigong móti í New York. „Qigong og aðrar kínverskar íþróttir sem ég stunda veita mér mikla ánægju og mér líður mjög vel í því umhverfi sem fylgir æfingun- um. Mér finnst þær hjálpa líkamanum að nýta þá orku sem í honum býr til að takast á við daglegar áskoranir,“ segir Herdís Ólína Hjörvarsdóttir 22 ára háskólanemi sem vinnur við aðhlynningu á Hrafnistu. Herdís byrjaði að æfa Qigong, tai-chi og kung-fu fyrir rúmlega ári. „Það sem er svo yndislegt við Qigong er að allir geta stund- að þessa íþrótt og það er aldrei of seint að byrja. Ég get æft Qigong eins lengi og ég lifi,“ segir Herdís sem leggur stund á íþróttina í Heilsudrekanum í Skeifunni. Lífskraftur og nákvæmar hreyfingar Undirstaðan í Qigong er agaður líkams- burður, öguð öndun og öguð hugsun eða einbeiting. Hreyfingarnar eru léttar og endurteknar. Þær henta vel eldra fólki, fólki með líkamlega fötlun og þeim sem eru að jafna sig eftir meiðsli. Æfingarnar styrkja og teygja á líkamanum. Starfsmenn Heilsu- drekans segja Qigong auka vellíðan og lífs- þrótt, draga úr þrálátum sársauka, stuðla að betra blóðstreymi, dragi úr spennu og byggi upp sjálfsvirðingu með því að leyfa sér að líða vel og þægilega. Frá heimspekilegu sjónarhorni er litið á Qigong sem leið til að þróa þá möguleika sem manneskjan býr yfir þar sem hún nær æðri vitund og hið raunverulega eðli henn- ar vaknar. Með nákvæmum, yfirveguðum og síendurteknum hreyfingum samtaka því að einbeita sér inn á við að ákveðnum svæðum líkamans má öðlast aukna með- vitund um orkuna sem þar leynist. Heilsu Qigong er yfir 5.000 ára gamalt kínverskt æfingakerfi. Þar fer sem saman „qi“, sem merkir lífs- kraftur, bæði sá kraftur sem býr í líkaman- um og krafturinn sem býr í alheiminum, og „gong“ sem merkir nákvæmar æfingar. Íslendingar misduglegir í Qigong Kennslan í Qigong fer ýmist fram á íslensku eða kínversku. Það gengur í bylgjum hversu duglegir Íslendingar eru að sækja tímana að sögn Herdísar. „Fólk fer og kemur aft- ur eins og það lystir, stundum erum við tíu og stundum þrjátíu eða fleiri og allt þar á milli,“ segir Herdís. Hún hvetur alla til þess að kynna sér íþróttina og finna hvað í henni býr. „Það er erfitt að útskýra með orðum hvernig manni líður eftir hverja æfingu öðruvísi en að segja að manni líði einfald- lega vel.“ Kennt í Heilsudrekanum í 15 ár Qigong er kennt í Heilsudrekanum í Skeif- unni ásamt kung-fu og tai-chi. Qigong og tai-chi eru mjög skyldar æfingar. Heilsu- drekinn hefur verið starfræktur síðan 1998. En það var Dong Qing Guan sem stofnaði hann. Hún nam íþrótta- og heilsufræði í háskóla í Peking í Kína og flutti til Íslands fyrir 19 árum. Í Heilsudrekanum er einnig ýmislegt dekur og nudd sem stuðla að líkamlegri og aldlegri vellíðan. Þar eru stundum kynn- ingar á ýmsu sem tengist kínverskri menn- ingu. -Árdís Ósk Steinarsdóttir Ég get æft Qigong svo lengi sem ég lifi Mynd: Herdís Ólína Hjörvarsdóttir Mynd: Heilsudrekinn Herdís vann gull á alþjóðlegu móti í New York. Agaður líkamsburður er undirstaða í Qigong en hreyfingarnar eru léttar og endurteknar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.