Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.02.2014, Side 68

Fréttatíminn - 14.02.2014, Side 68
4 Guðný Anna Vilhelmsdóttir, viðskiptafræðingur og fjölskylda hafa verið búsett í rúm fimm ár í Shenzhen. Sú borg er á megin- landi Kína, í um það bil klukku- stundar fjarlægð frá Hong Kong. Guðný Anna segir það hafa verið skyndiákvörðun á sínum tíma, að flytjast búferlum úr sveitusælunni í Borgarnesi, til annarrar heimsálfu. Hún þurfti að byrja á því að draga fram landakortið og fletta Shenzhen upp, þar sem hún hafði ekki hug- mynd um hvar borgin var. Guðný Anna fór fyrst sem ferða- maður, í vikuferð til Kína árið 2005, ásamt eiginmanni sínum Trausta Magnússyni flugstjóra. Þremur árum síðar, eða í lok árs 2007, fékk Trausti um stöðu flug- stjóra hjá flugfélagi í eigu Luft- hansa og Air China. Í kjölfarið var búslóðinni pakkað niður og geymd í bílskúr í Borgarnesi. Keyptur var flugmiði til Hong Kong snemma vors árið 2008, og varð sú dvöl að rúmum fimm árum. Guðný Anna segir að undir- búningurinn fyrir það að flytja með fjölskylduna í annan heim hafi ekki verið mikill. „Það var hvorki legið á Google og lesið sér til um stað og menningu, né reynt að hafa uppi á fólki sem þekkti þarna til, heldur var bara látið vaða. Trausti var þegar far- inn út og byrjaður að vinna þegar við mæðgur fórum. Ég fór til hans í eina viku og nýttum við þann tíma til að finna húsnæði og skóla fyrir dæturnar,“ segir Guð- ný. Eftir það var ekki aftur snúið og héldu þær mæðgur á vit æv- intýranna með þrjár ferðatöskur í farteskinu. Borgin okkar Shenzhen Stórborgin Shenzhen liggur á landamærum meginlandsins og norðursvæðis Hong Kong, og er ein vestrænasta borg Kína. Gríðarleg uppbygging hefur orðið á skömmum tíma, en árið 1979 var borgin aðeins fámennt fiskiþorp. „Í dag er áætlað að íbúatala sé á bilinu 13-18 milljónir manna. Á síðastliðnum 30 árum eða svo, hófu kínversk stjórnvöld upp- byggingu á svokölluðu Special Economic Zone eða sérstöku efnahagssvæði. Mikið af erlendri fjárfestingu hefur farið í fram- leiðslu og þjónustugreinar og eru þar höfuðstöðvar fjölda hátækni- fyritækja.“ Guðný Anna segir að mikið flæði fjármagns sé í umferð í Kína og gríðarlegur uppgangur. „Þeir sem sakna 2007 stemmningarinnar ættu að fara til Kína. Shenzhen er ein af helstu útflutningsborgum Kína og eru laun hvergi hærri en á þessu svæði. Þangað flykkist ungt fólk í atvinnuleit. Allir vilja læra ensku því góð enskukunnátta er oft ávísun á vel borgaða vinnu. Vestrænir veitingastaðir og bar- ir spretta upp eins og gorkúlur. Margar verslanir selja vestrænar vörur og hef ég aldrei séð eins mikið úrval af Betty Crocker eins og þarna,“ segir Guðný Anna og bætir jafnframt við að vörur sem þessar, séu helmingi dýrari þarna en á Íslandi, vegna hárra tolla á allar innfluttar vörur. Engin uppþvottavél Guðný Anna lætur vel af aðstæð- um og segir að hún og hennar fjölskylda hafi búið á góðum stað. Þau bjuggu vestast í borginni í hverfi sem heitir Shekou. Þar bjuggu einnig mjög margir útlendingar og allir mjög hjálp- samir. „Fólk var langt frá sínum heimahögum og samheldni var því mjög mikil. Trausti var í góðri vinnu, við bjuggum í góðu húnæði og stelpurnar gengu í góðan bandarískan skóla. Við bjuggum í blokkum og nutum vestrænna þæginda. Við vorum með hefðbundið klósett, loft- kælingu og gátum kynnt íbúðina yfir vetrarmánuðina, en hinn al- menni Kínverji er ekki með slíkt. Kínverjar nota almennt ekki loftkælingu þó að hún sé fyrir hendi,“ segir Guðný Anna. Guðný Anna segir að bygginga- kranar hafi verið víða, en það sé algengt að byggðar séu blokk- ir allt upp í 50 hæðir og heilu hverfin eru rifin til að byggja nýtt. „Viðhald þarna er mjög l élegt og rúmlega 30 ára gömul hús líta út eins og þau séu að hruni kom- inn. Lyktin og rakinn í húsum er mikill.“ Guðný Anna segir að þau hafi ekki skort neitt. „Hinsvegar saknaði ég mikils að hafa ekki uppþvottavél, en þær þekkjast varla þarna. Sjá má heilu stafl- ana af óhreinu leirtaui fyrir utan veitingahús sem bíða eftir að vera þvegin upp úr köldu vatni, en heitt vatn er ekki notað í þrif eins og við eigum að venjast.“ Snakk úr fuglsfótum og þara Kínverskur matur féll í kramið hjá Guðnýju Önnu og er eitt af því sem hún saknar frá dvöl sinni þar. En í fyrstu gekk brösulega að kaupa inn. „Fyrsta innkaupaferð okkar mæðgna var á þá leið að við gengum um búðina og var þar meðal annars hægt að finna ýmislegt snakk úr þurrkuðum fuglsfótum og þurrkaðan þara. Síðan stóð kjötiðnaðarmaðurinn fyrir innan kjötborðið að höggva hausinn af kjúklingnum. Við gengum út með þrjú box af skyndinúðlum.“ Guðný Anna segir að hinar ótrúlegustu skepn- ur hafi hangið fyrir utan veitinga- hús til þurrks, allt frá fuglslöpp- um til hunda, sem stungu í augun í upphafi. „Ég keypti nú aldrei annað en grænmeti og ávexti á markaðnum en þar lá svínakjöt- ið við hliðina á hundakjötinu og lifandi fuglar í búrum þar við hliðina.“ Ólík lífsviðhorf Guðný Anna segir að munur á menningu og viðhorfi sé afar mikill og að oft hafi komið upp árekstrar vegna tungumálaörð- ugleika og menningarmunar. „Hugsunarhátturinn var svo ólík- ur að tungumálakunnáttan dugði ekki alltaf til. Orðin skiljast en ekki hugsunin. Erfitt getur verið að bjarga sér og gera sig skiljan- legan með handa látbragði, því í Kína er þeirra „fingramál“ allt annað en okkar. Lífsviðhorf okkar og Kínverja eru mjög ólík í mörgu, enda að- stæður okkar og umhverfi gjör- ólík. Það sem okkur finnst í lagi finnst þeim ekki og svo öfugt.“ Guðný Anna segir að eftir því sem árunum úti fjölgaði hafi fjöl- skyldan haldið að ekkert gæti komið þeim á óvart lengur en raunin hafi verið önnur. „Fram á síðasta dag kom eitt- hvað upp á sem gerði mann al- veg orðlausan og maður skildi ekki upp eða niður í. En það er jú einmitt það sem gerir þetta svo skemmtilegt.“ Lærdómsríkur tími Eftir rúmlega fimm ára búsetu í Kína, sækir fjölskyldan nú von bráðar á önnur mið og flytur sig yfir til Abu Dhabi vegna vinnu Trausta. „Á þessum rúmum fimm árum í Kína var ég vör við mikar breytingar á öllu. Margar hverjar mjög góðar, en mér finnst slæm þróun að verið sé að búa til „Ameríkur“ út um allt.“ Guðný Anna segir að mikil verð- hækkun hafi orðið á öllu meðan fjölskyldan bjó í Kína. „Eflaust hefur ein mesta hækkunin orðið í Shenzhen sem er ein dýrasta borg landsins. Verðlagið rauk upp úr öllu, hvort sem um var að ræða hrísgrjón eða húsnæði, það er bara ofboðsleg þensla á öllu þarna.“ Hún segir að margt hafi komið sér á óvart, enda þekkti hún lítið sem ekkert til lands eða þjóðar áður en hún fór. „Ég ætla ekki að reyna að telja þér trú um að ég hafi verið dansandi í rósóttum kjól á sóleyjarengi allan tímann.Nei, við áttum öll okkar China Moment, en það orðatil- tæki er notað um erfiðar stundir meðal okkar útlendingana. Fyrir óþolinmóða manneskju eins og mig var þetta mjög lærdómsríkt. Eftir að ég fór að geta talað við innfædda komst ég að því að Kín- verjar eru mjög almennilegir og eins og við Íslendingar, glaðir að heyra að manni líkaði við landið þeirra og leið vel í því. Þessi tími var alveg ómetanlegur. “ Guðný Anna segir að það sé ekkert eitt sem standi upp úr eftir dvölina í Kína. „Að búa við svona ólíkan menningarheim minnkar fordóma hjá manni, við erum svo mikið forréttindafólk hér og auð- velt er að sitja heima og dæma hitt og þetta sem við höfum aldrei þurft að takast á við sjálf. Þessi tími skilur eftir sig ljúfar minningar,“ segir Guðný Anna að lokum. -Drífa Viðarsdóttir Upplifði ótrúlegar breytingar í Kína „Sjá má heilu staflana af óhreinu leirtaui fyrir utan veitingahús sem bíða eftir að vera þvegin upp úr köldu vatni en heitt vatn er ekki notað í þrif eins og við eigum að venjast.“ Myndir: Guðný Vilhelmsdóttir

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.