Fréttatíminn - 14.02.2014, Side 74
— 2 — 14. febrúar 2014
Blaðra í magann
gegn offitu
Tafla sem breytist í blöðru í
maganum er nú komin á markað
frá bandaríska lyfjaframleiðand-
anum Obalon Therapeutics.
Þegar blaðran er í maganum fær
líkaminn þau skilaboð að maginn
sé fullur svo fólk borðar minna og
léttist.
Taflan er sett í magann með
legg og geta læknar blásið
hana upp með sérstöku gasi og
verður blaðran þá á stærð við
epli. Mánuði síðar er önnur blaðra
sett í magann til að gera seddu-
tilfinninguna enn meiri. Blöðr-
urnar eru í maganum í 12 vikur
og þá fjarlægðar af lækni upp um
meltingarveg.
Blaðran er markaðssett sem
skjótvirk lausn við aukakílóunum
og segja gagnrýnendur að til-
koma hennar gæti haft þau áhrif
að fólk leitist síður við að breyta
mataræðinu og hreyfa sig og vilji
frekar slíka skyndilausn. Evrópsk
rannsókn á 100 konum á fimm-
tugsaldri sýndi að hver missti að
meðaltali 8 kíló þá þrjá mánuði
sem þær voru með blöðrurnar í
maganum.
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300.
Ritstjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@
frettatiminn.is. Ritstjórnarfulltrúi: Dagný Hulda
Erlendsdóttir dagnyhulda@frettatiminn.is. Fram-
kvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgis-
son valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur
Jónasson teitur@frettatiminn.is . Líftíminn er gef-
inn út af Morgundegi ehf., prentaður í 85.000
eintökum í Landsprenti og dreift mánaðarlega
með Fréttatímanum og á heilbrigðisstofnanir.
Lúsasjampó
eyðir höfuðlús og nitV
irk
ni s
tað
fes
t í
klín
ísk
um
pró
fun
um
*
Öflugt - fljótvirkt - auðvelt í notkun
Virkar í einni meðferð
Fljótvirkt: Virkar á 10 mínútum
100% virkni gegn lús og nit
Náttúrulegt, án eiturefna
* Abdel-Ghaffar F et.al; Parasitol Res. 2012 Jan; 110(1):277-80. Epub 2011 Jun 11.
FÆST Í ÖLLUM APÓTEKUM
Fyrir 2 ára og eldri
Mjög
auðvelt
að skola
úr hári!
Íslenskar upplýsingar er að
finna á www.licener.com/IS
Gagnrýnendur segja hættu á því að
fólk vilji síður breyta mataræði sínu
og hreyfa sig þegar slík skyndilausn
við aukakílóunum, eins og blaðran,
er í boði.
750 milljóna sparnaður á ári ef
tíðni sykursýki II lækkar um 10%
Kostnaður heil-
brigðiskerfisins
vegna meðferðar
á sykursýki II, eða
áunninni sykursýki,
er að meðaltali hálf
milljón á ári á hvern
sjúkling. Ef tíðni
sjúkdómsins myndi
lækka um 10 prósent
yrði hægt að spara
750 milljónir á ári.
Heilbrigðisráðherra
segir mikilvægt að
hver og einn taki
ábyrgð á eigin heilsu
og bindur miklar
vonir við góðan
árangur af innleið-
ingu hreyfiseðla.
Dagn ý HulDa Er lEnDsDót tir
Á ætlað er að hér á landi séu um 15.000 manns með áunna sykursýki eða syk-
ursýki II. Kostnaður heilbrigðiskerf-
isins við hvern sjúkling er að
meðaltali hálf millj-
ón á ári og því
væri hægt
að spara
um 750
milljónir
á á r i
ef t i l -
fellum
syk-
ur-
sýki
II
yrði
fækkað um tíu prósent,“ segir Krist-
ján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra.
Hann kveðst bjartsýnn á að á næstu
árum verði viðsnúningur hér á landi
og að tíðni offitu og ofþyngdar fari
lækkandi. „Það hefur náðst árang-
ur við lækkun á tíðni ofþyngdar hjá
börnum svo það er ástæða til bjart-
sýni. Hreyfiseðlar hafa nú verið inn-
leiddir í heilbrigðiskerfinu og ég bind
miklar vonir við notkun þeirra til að
minnka tíðni sykursýki II. Rannsókn-
ir sýna að fækka má sjúklingum með
sykursýki II um 80 prósent eingöngu
með hreyfingu og breyttu mataræði.
Þá hefur einnig verið sýnt fram á að
skipulögð hreyfing sé öflug leið til að
vinna gegn öðrum sjúkdómum eins
og langvarandi verkjum, kransæða-
sjúkdómum, hjartabilunarsjúkdóm-
um, kvíða, depurð, háum blóðþrýst-
ingi og fleiru,“ segir hann.
Markmið Kristjáns Þórs með inn-
leiðingu hreyfiseðlanna er að þeir
verði hluti af meðferðarúrræðum
hjá læknum á heilsugæslustöðvum
og öðrum stofnunum um allt land.
„Notkun hreyfiseðlanna hefur aukist
jafnt og þétt sem er mjög ánægjulegt.
Víða erlendis eru hreyfiseðlar orðnir
eðlilegur hluti af meðferð sjúkdóma
með góðum árangri.“
Kristján Þór leggur áherslu á að
þó kostnaður heilbrigðiskerfisins við
sykursýki II sé hár beri sjúklingarnir
sjálfir mesta kostnaðinn þar sem sjúk-
dómurinn hafi alvarleg áhrif á heilsu.
„Þess vegna er afskaplega mikilvægt
að allir, bæði heilbrigðisstarfsfólk og
sjúklingar, taki þeirri áskorun sem
felst í innleiðingu hreyfiseðla. Þetta
snýr ekki síður að einstaklingnum
sjálfum sem á skilyrðislaust að taka
ábyrgð á eigin heilsu. Þetta er eitt-
hvert besta dæmið um það og segir
manni að mikilvægt sé að hver og
einn beri ábyrgð á sinni hreyfingu og
mataræði.“
Kristján Þór
Júlíusson heil-
brigðisráðherra.
Talið er að hér á landi séu
um 15.000 manns með
sykursýki II eða áunna
sykursýki en sjúkdómur-
inn er ein algengasta
afleiðing offitu.
PILLA
BLAÐRA
MAGI