Fréttatíminn - 14.03.2014, Síða 4
Héraðsdómur af
Lækjartorgi
Borgarráð hefur skipað viðræðuhóp til að
ræða mögulegan flutning Héraðsdóms frá
Lækjartorgi. Þetta var gert eftir að Hanna
Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra
sendi borgarráði bréf þar sem hún tók vel
í ósk meirihlutans um að flytja starfsemi
Héraðsdóms af torginu. Lengi hafa verið
uppi hugmyndir um að flytja Héraðsdóm af
Lækjartorgi til að glæða torgið lífi en það
var Andri Snær Magnason rithöfundur sem
stakk fyrst upp á því að flytja Héraðsdóm
í miðbæjarsamkeppni Landsbankans
árið 2004, og vann til verðlauna fyrir
vikið. Dagur B. Eggertsson telur að önnur
starfsemi við Lækjartorg muni auka líf í
miðbænum og að Héraðsdómur væri betur
settur við Hlemm.
Marokkóbúar stofna félag
Sendiherra Marokkó á Íslandi, sem hefur
aðsetur í Noregi, Souad Alaoui, kemur
í heimsókn hingað til lands um helgina
og hittir meðal annars stofnendur nýs
félags, Ísland-Marokkó, félags um sam-
skipti og skoðanaskipti, að því er fram
kemur í tilkynningu frá félaginu.
Um 500 Marokkóbúar búa nú á Íslandi
og hafa sumir þeirra búið hér í fjölda
ára, og áratugi. Flestir Marokkóbúar á
Íslandi eiga fjölskyldu hér á landi, stunda
atvinnu og taka þátt í Íslensku samfé-
lagi. Sumir starfrækja eigin fyrirtæki
og taka þannig þátt í atvinnusköpun.
Margir þeirra eru tilbúnir til að leggja
sitt af mörkum til að kynna land sitt fyrir
Íslendingum.
sda
N iðurskurðurinn kemur mjög þungt niður á okkur eftir það sem á undan er
gengið. Eigi þjónustustýringin að
ganga upp þarf þvert á móti að efla
heilsugæsluna hvað varðar mann-
skap og fjárveitingar því hún mun
væntanlega taka við verkefnum
annars staðar frá. Við getum ekki
bætt við okkur umfram það sem
við höfum í dag,“ segir Svanhvít
Jakobsdóttir, forstjóri Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins, aðspurð
um fyrirhugaða þjónustustýringu
þar sem heilsugæslunni er ætlað
að gegna lykilhlutverki í veitingu
á grunnþjónustu og er stefnt að
betra aðgengi og styttri biðtíma
eftir þjónustu.
Í tillögum vinnuhóps um þjón-
ustustýringu felst einnig að allir
eigi sinn heimilislækni og að ein-
staklingar eigi kost á þjónustu-
stjóra, sem í flestum tilfellum verð-
ur heimilislæknir. Þá stendur til að
mynda þjónustuteymi til að mæta
þörfum sjúklingahópa, ásamt sam-
fellu í þjónustu.
Þórarinn Ingólfsson, formaður
Félags íslenskra heimilislækna,
segir breytingarnar jákvæðar en
að ýmislegt þurfi að koma til eigi
heilsugæslan að þjónusta fleiri.
Til dæmis þurfi að bæta vinnuum-
hverfi og laun svo brottfluttir
heimilislæknar flytji aftur til Ís-
lands því sérfræðingar sæki ekki
um lausar stöður. „Stétt heimilis-
lækna er að eldast og eftir fimm
til sex ár verður staðan orðin mjög
slæm. Við þurfum að vona að þeir
eldri vilji vinna til sjötugs en hætti
ekki 67 ára.“ Laun heimilislækna
voru lækkuð um 15 prósent að
meðaltali árið 2009 og hafa ekki
enn verið leiðrétt.
Nánar er fjallað um þjónustu-
stýringu og niðurskurð hjá Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins í Líf-
tímanum sem fylgir Fréttatímanum
í dag. Þar er einnig viðtal við Guð-
björgu Vignisdóttur, sem er í sér-
námi í heimilislækningum í Gauta-
borg í Svíþjóð. Hún lýkur námi síðar
á árinu og ætlar ekki að flytja til Ís-
lands eins og kjör og starfsaðstæður
eru í dag. Launin í Svíþjóð eru tals-
vert hærri en á Íslandi, eða á bilinu
1,1 til 1,5 milljón á mánuði fyrir dag-
vinnu miðað við 600 þúsund krónur
á mánuði á Íslandi.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagny@frettatiminn.is
Heilsugæsla lykilHlutverk gruNNþjóNustuNNar
Niðurskurður úr takti við
fyrirhugaðar breytingar
Frá árinu 2009 hefur verið skorið niður um 400 milljónir hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Í ár bætist við 100 milljóna niðurskurður svo útlit er fyrir að skerða þurfi síðdegisvaktir á
heilsugæslustöðvum, ásamt öðru. Á sama tíma kynna yfirvöld umfangsmiklar breytingar á heil-
brigðiskerfinu sem meðal annars fela í sér þjónustustýringu þar sem heilsugæslunni er ætlað að
leika lykilhlutverk.
Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir að efla þurfi heilsugæsluna eigi
þjónustustýring að ganga upp en í henni felst meðal annars að allir geti leitað til
heilsugæslunnar. Ljósmynd/Hari.
Þórarinn Ingólfsson er heimilislæknir og formaður Félags íslenskra heimilislækna. Ljósmynd/Hari.
veður Föstudagur laugardagur suNNudagur
N 5-13 M/s. Él NorðaNtil EN lÉttir til s-laNDs
þEgar líður á DagiNN. Vægt frost.
HöfuðborgarsVæðið: N 5-10 M/S.
SKýjAð og HItI 0 tIL 3 StIg.
sV 10-18 M/s og slyDDa Eða rigNiNg EN úrkoMu-
lítið Na-til fraM Eftir DEgi. HlýNaNDi.
HöfuðborgarsVæðið: SV 10-15 M/S og rIgNINg .
HItI 1 tIL 4 StIg.
V 8-15 M/s og Él EN úrkoMulítið austaNtil.
Vægt frost EN frostlaust syðst.
HöfuðborgarsVæðið: V 8-13 M/S og éL.
HItI UM FroStMArK.
Vestlægar áttir með
rigningu á morgun og
sunnudag
Það gengur ýmislegt á í veðrinu þessa
dagana, hver lægðin rekur aðra. Það er
jú ennþá vetur og vissara að
vera vel búin í ferðalögum
og útivist. Í dag fer lægð
skammt suður af landinu,
önnur strax í kjölfarið
svo á morgun og sú
skilur eftir sig vest-
anátt með éljagangi
á sunnnudag.
3
-1 -1
-2
4
2
-2 -4 -3
0
-1
-2 -4 -4
-1
Elín björk Jónasdóttir
vedurvaktin@vedurvaktin.is
4 fréttir Helgin 14.-16. mars 2014