Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.03.2014, Blaðsíða 20

Fréttatíminn - 14.03.2014, Blaðsíða 20
Menn með kynferðislegar langanir til barna geta leitað sér meðferðar Maðurinn í næsta húsi A uðvitað viljum við ekki búa í sama bæjarfélagi og barnaníðingur. Við viljum ekki búa nálægt honum því við viljum ekki að hann sé nokkurs staðar nálægt barninu okkar. Menn sem beita börn kynferðisofbeldi eru lægst settu brotamenn samfélagsins. Ímyndin af barnaníðing- um, nauðgurum og öðrum kynferðisbrotamönnum er sú að þetta séu hrylli- legir menn sem stökkva á fórnarlamb sitt þegar síst skyldi. Ímyndin er yfirleitt mjög fjarri raunveruleik- anum. Fjölmörg dæmi hafa komið upp bæði hér á landi og erlendis þar sem í ljós kemur að barnaníð- ingurinn er vel liðinn, kurteis og almennilegur karl- maður sem virðist hafa sér- stakan áhuga á að hjálpa börnum og gleðja þau. Þessir menn njóta jafnvel virðingar í þjóðfélaginu einmitt fyrir það sem birtist öðrum sem óeigingjarnt starf í þágu barna. Það kallast á ensku „groom- ing“ en má þýða sem tælingu þegar níðingar koma sér í kynni við börn og reyna að byggja upp trúnað, traust og vináttu barns- ins, til dæmis með því að hrósa barninu eða sýna því umhyggju. Barnaníðingar reyna einnig gjarnan að koma sér í mjúkinn hjá fjölskyldu barnsins, vinna sér inn traust hennar, og skapa þannig aðstæður til að hann geti verið einn með barninu. Oft reyna þeir frekar að komast í kynni við börn sem búa við slakar félagslegar aðstæður, börn sem eru móttækilegri fyrir vinahóti ókunnugs fullorðins karlmanns. Þórarinn Viðar Hjaltason sál- fræðingur hefur um áratugs reynslu af starfi með karlmönn- um sem hafa kynferðislegar langanir til barna og í viðtali við Fréttatímann í desember sagði hann frá því að sumir þeirra sem haldnir eru barnagirnd og vinna markvisst með að vinna sér trúnað fjölskyldu barnsins, auk barnsins sjálfs, njóti mjög þess tímabils – líkt og þeir séu veiði- menn að nálgast bráð sína. Það er því sannarlega ekki í myrkum húsasundum sem barnaníðinga er að finna heldur sækjast þeir í að vera nálægt börnum; við kennslu, í kirkju, við hjálparstarf og uppfræðslu ung- menna sem hafa leiðst af beinu brautinni, jafnvel við matar- borðið á heimili barnsins því þeir hafa myndað góð tengsl við for- eldrana. Því fer þó fjarri að flestir sem sækjast í að vinna með börnum hafi illt eitt í huga, og mikilvægt er að minnast þess í allri þessari umræðu. Meirihluti fólks er gott fólk og það er hreinlega óheil- brigt gera ráð fyrir að níðingar séu á hverju horni. Líf í ótta er ekkert líf. Það sem skiptir máli er að gera sér grein fyrir að menn sem níðast á börnum koma í ýmsum myndum. Að því sögðu er við hæfi að vitna aftur í Þórarin Viðar, sem ásamt þeim Önnu Kristínu New- ton sálfræðingi og Ólafi Erni Bragasyni sálfræðingi, er með stofu þar sem þau meðal annars sinna mönnum með kynferðis- legar langanir til barna. Hann segir að í starfinu sam- þykki hann aldrei verknað níðinganna þó hann samþykki þá sem manneskjur, enda sé það grundvöllur þess að þeir sjái ástæðu til betrunar. „Mikið af þessum mönnum óttast sjálfa sig hins vegar mest af öllu og vilja koma í veg fyrir að þeir brjóti af sér,“ segir Þórarinn. Menn sem hafa kynferðislegar langanir til barna en hafa aldrei brotið af sér geta einnig leitað sér meðferðar og það er vitanlega óskastaðan fyrir alla að þeir nái að hafa hemil á hvötum sínum og engin börn verði fyrir skaða. Meirihluti fólks er gott fólk og það er hreinlega óheil- brigt gera ráð fyrir að níðingar séu á hverju horni. Horft til framtíðar í uppbyggingu raforkuflutningskerfisins Landsnet býður til fundar um stöðu og framtíðaruppbyggingu flutningskerfis raforku á Íslandi. Einnig verður staða jarðstrengjamála rædd og kynnt fyrirkomulag þeirra mála í Danmörku og Noregi. Fundarstaður: Hilton Reykjavík Nordica, 1. hæð, 20. mars 2014 kl. 9:00-11:30. Morgunhressing frá 8:30 og á fundi. Skráning á www.landsnet.is eða í síma 563 9430. Allir velkomnir! Áskoranir næstu ára Geir A. Gunnlaugsson, stjórnarformaður Landsnets.  Grundvöllur bættra lífskjara er aukin verðmætasköpun.  Dreifing raforku um landið í ljósi umræðu um verndun náttúrunnar.  Hvaða breytingar þurfa að verða á rekstrarumhverfi Landsnets til að auka hagkvæmni flutningskerfisins. Þyngri rekstur, ný kynslóð mannvirkja Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets.  Óviðunandi rekstur raforkukerfisins – aðgengi að öruggri raforku háð búsetu.  Nútímalegri hönnun háspennumastra og tengivirkja. Flutningskerfið þarf að styrkja í sátt við samfélagið Guðmundur I. Ásmundsson, aðstoðarforstjóri Landsnets.  Forgangsröð framkvæmda – Sprengisandslína?  Jarðstrengir – mismunandi útfærslur sem koma til greina á Íslandi. Opinn kynningarfundur Landsnets Dagskrá: Stefna Noregs í jarðstrengjamálum Tanja Midtsian, frá NVE (Orkustofnun Noregs).  Loftlínur á hærri spennustigum.  Skipulagsvald raforkumála á einni hendi. Stefna Danmerkur í jarðstrengjamálum Jens Møller Birkebæk, frá Energinet.dk.  Þéttbýlt land sem gengur hvað lengst í heiminum í lagningu jarðstrengja.  400 kV í loftinu í dag – gætu farið í jörð í framtíðinni. Ávarp Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Fyrirspurnir og umræður Fundarstjóri: Þorgeir J. Andrésson, skrifstofustjóri Landsnets. Bein útsending á www.landsnet.is AT H YG LI Erla Hlynsdóttir erla@ frettatiminn.is sjónArhóll 37 2,2 milljónir króna kosta endurbætur á rafkerfi í æfingahús- næði hljómsveitarinnar Of Monsters and Men í Garðabæ. Sveitin hefur óskað eftir því að Garðabær taki á sig þennan kostnað. Vikan í tölum 8 mánaða fangelsi var niðurstaða Hæstaréttar í máli Lýðs Guðmunds- sonar vegna brota hans á lögum um hlutafélög. Þar af eru fimm mánuðir skilorðsbundnir. Bjarnfreður Ólafsson fékk sex mánaða fangelsisdóm, þar af þrjá mánuði skilorðsbundna. 100 milljónir króna greiddi Þor- steinn B. Friðriksson, forstjóri Plain Vanilla, fyrr tvær íbúðir við Ægisíðu 96. Þorsteinn verður nágranni Bjarkar Guðmunds- dóttir sem býr á númer 94. 21.000 sjónvarpstæki voru flutt inn til landsins á síðasta ári. færri störf verða í utanríkisráðu- neytinu í árslok en voru á fyrri hluta síðasta árs. 20 viðhorf Helgin 14.-16. mars 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.