Fréttatíminn - 14.03.2014, Blaðsíða 64
Paul Potts varð stjarna á einni nóttu
þegar hann söng fyrir Simon Cowell
í sjónvarpsþættinum Britain´s Got
Talent.
Frumsýnd One ChanCe
Afgreiðslumaðurinn sem varð óperustjarna
Kvikmyndin One Chance segir
ævintýralega sögu Britain´s Got
Talent stjörnunnar Paul Potts. Paul
var feiminn og óheppinn afgreiðslu-
maður í lítilli símabúð á daginn en
dreymdi stóra drauma um að verða
óperusöngvari. Hann sló í gegn
þegar hann sýndi Simon Cowell
hvað í honum bjó í þáttunum Brita-
in´s Got Talent árið 2007 og varð
umsvifalaust að Youtube-stjörnu.
Leið hans á toppinn var þó þyrn-
um stráð þar sem hann var utan-
garðs í litlum iðnaðarbæ og lagður í
einelti þar sem hann söng hástöfum
öllum stundum. Hann mátti líka
til að sitja undir háðsglósum föður
síns í tíma og ótíma, en karlinn vildi
að hann fari að vinna með hinum
körlunum í kolanámunum. Þegar
hann hitti loks Julie-Anne, sem
hafði óbilandi trú á honum, öðlast
hann kjark til að elta drauminn um
að þenja raddböndin á sviðinu.
Potts var einn jólagesta Björg-
vins Halldórssonar á tónleikum
2010 og er því mörgum á Íslandi að
góðu kunnur. Kvikmyndin um hann
þykir um margt minna á bresku
myndina Billy Elliot sem sagði
einnig frá breskum lítilmagna sem
lét draum sinn rætast.
menningarmiðstöð Frá 101 austur Fyrir Fjall
Taka Eyrarbakka með trompi
Valgeir Guðjónsson og Ásta Kristrún Ragnarsdóttir keyptu virðulegt hús á Eyrarbakka og munu
reka þar menningar- og fræðslutengda ferðaþjónustu. Upptakturinn verður sleginn með tón-
leikum Valgeirs, Ragga Bjarna og Jóns Ólafssonar.
h jónin Valgeir Guðjóns-son tónlistarmaður og Ásta Kristrún Ragn-
arsdóttir námsráðgjafi hafa
um árabil staðið fyrir menn-
ingardagskrá fyrir ferðamenn
á höfuðborgarsvæðinu en
flytja sig nú um set, frá 101
Reykjavík austur á Eyrar-
bakka. „Við fundum tæplega
hundrað ára gamalt steinhús
sem var byggt bæði sem versl-
unar- og íbúðarhúsnæði og
stendur við Eyrargötu, megin-
götuna á Eyrarbakka. Húsið
heitir Búðarhamar en við nefnum starfsemina Bakka-
stofu,“ segir Valgeir.
Á Eyrarbakka ætla þau hjón að halda áfram þar
sem frá var horfið í borginni og koma á fót miðstöð
sem hefur að markmiði að miðla og skapa ferskar
leiðir í menningar- og fræðslutengdri ferðaþjónustu
árið um kring. Menning, náttúra og menntun verður
leiðarljósið en markhópurinn er hópferðalangar sem
gera stans á áhugaverðum stöðum, auk Íslendinga
sem vilja næra andann. Menningardagskrár fara
fram að hluta eða öllu leyti í Búðarhamri og auk
jarðhæðarinnar verða bókastofur á miðhæð nýttar
en það fer eftir hópastærð og tegund dagskrár. Sam-
starf er við þjónustuaðila á Suðurlandi þegar um er að
ræða stærri hópa. Valgeir og Ásta segja að hvort sem
gestir komi frá Reykjavík, Reykjanesi eða að austan
úr lengri ferðum og endi ferðina á Suðurlandi geti
innihaldsrík dagskrá á upphafs- eða lokadegi höfðað
til margra. Að morgni sé síðan kjörið að nýta nýja
Suðurstrandarveginn með hugsanlegri viðkomu í
Bláa lóninu á leið til Leifsstöðvar.
Samstarf við kirkjuna á Eyrarbakka um tónleikaröð
hefst laugardaginn 29. mars og sunnudaginn 30. mars
en þá standa yfir sérstakir dagar á Suðurlandi sem
fengið hafa heitið Leyndardómar Suðurlands. Haldið
verður áfram með tónleika-
röðina átta sunnudaga í
röð en þar leiða saman
hesta sína Valgeir, Ragnar
Bjarnason og Jón Ólafsson.
Ragnar hefur nýlokið við að
syngja inn á hljómdisk þar
sem Jón stýrði upptökum.
Nokkrar af perlum Valgeirs
er að finna á þeim diski. „Við
höfum trú á því,“ segir Ásta
Kristrún, „að tónleikaröðin
geti verið gefandi upptaktur
fyrir menningarverkefnin
sem við Valgeir stefnum á að
sinna á Eyrarbakka á næstu árum.
Við höfum mótaðar dagskrár sem við bjóðum
smáum og stórum hópum, en ætlum ekki að reka
opið kaffihús eða gistiheimili. Þá bjóðum við aðstöðu
fyrir námskeið og fundi fyrir þá sem leita eftir óhefð-
bundnum aðstæðum. Aðstaða okkar sjálfra er á ris-
hæð Búðarhamars en fyrsta og önnur hæð þjóna sem
aðstaða undir Bakkastofudagskrár af ýmsu tagi.“
Eyrarbakki hefur verið í hugskotum Ástu Krist-
rúnar og Valgeirs til margra ára. Gamalgróinn menn-
ingarstaður með merka sögu í sögufrægu héraði.
Sterk og lifandi fjölskyldutengsl Ástu Kristrúnar við
Húsið, sem nú er Byggðasafn Árnesinga, alveg frá
því á 19. öld, lifa meðal afkomenda stórfjölskyldurnar
sem á uppruna sinn að rekja til Hússins. Langalangafi
og amma Ástu Kristrúnar, Guðmundur og Silvía
Thorgrímssen, gerðu garðinn frægan með frum-
kvöðlastarfi sínu á sviði mennta, lista og verslunar og
safnið í Húsinu er afar áhugavert heim að sækja.
Þeir sem vilja heimsækja Bakkastofu bóka fyrir-
fram í síma, á heimsíðu Bakkastofu eða í gegnum
ferðaþjónustufyrirtæki.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Hjónin Valgeir Guðjónsson og Ásta Kristrún Ragnarsdóttir flytja sig frá miðborg Reykjavíkur austur á Eyrarbakka. Þar hafa
þau keypt hús og verða með menningar- og fræðslutengda þjónustu árið um kring.
Búðarhamar er í stuttu göngufæri frá Húsinu á
Eyrarbakka og strandlengjunni.
HVERFISGATA 19 551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Mið 19/3 kl. 19:30 77.sýn Mið 26/3 kl. 19:30 Aukas. Sun 30/3 kl. 20:00 Lokas.
Sun 23/3 kl. 19:30 81.sýn Lau 29/3 kl. 19:30 Aukas.
Veilsa aldarinnar - leikrit ársins 2013. Síðustu sýningar!
SPAMALOT (Stóra sviðið)
Fös 14/3 kl. 19:30 9.sýn Fös 21/3 kl. 19:30 12.sýn Fim 3/4 kl. 19:30 16.sýn
Lau 15/3 kl. 19:30 10.sýn Lau 22/3 kl. 19:30 13.sýn Fös 4/4 kl. 19:30 17.sýn
Sun 16/3 kl. 16:00 Aukas. Fim 27/3 kl. 19:30 14.sýn Lau 5/4 kl. 19:30 18.sýn
Fim 20/3 kl. 19:30 11.sýn Fös 28/3 kl. 19:30 15.sýn
Dásamleg, fáránleg della - óbærilega fyndinn nýr söngleikur!
Svanir skilja ekki (Kassinn)
Fös 14/3 kl. 19:30 7.sýn Fös 21/3 kl. 19:30 10.sýn Fim 3/4 kl. 19:30 14.sýn
Lau 15/3 kl. 19:30 8.sýn Lau 22/3 kl. 19:30 11.sýn Fös 4/4 kl. 19:30 15.sýn
Sun 16/3 kl. 19:30 Aukas. Fim 27/3 kl. 19:30 13.sýn Lau 5/4 kl. 19:30 16.sýn
Fim 20/3 kl. 19:30 9.sýn Fös 28/3 kl. 19:30 12.sýn Sun 13/4 kl. 19:30 17.sýn
Nýtt verk eftir Auði Övu Ólafsdóttur um undarlegt eðli hjónabandsins.
Áfram Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 14/3 kl. 20:00 34.sýn Lau 22/3 kl. 19:30 Aukas. Lau 29/3 kl. 20:00 44.sýn
Fös 14/3 kl. 22:30 35.sýn Lau 22/3 kl. 22:30 Aukas. Lau 29/3 kl. 22:30 45.sýn
Mið 19/3 kl. 20:00 36.sýn Mið 26/3 kl. 20:00 40.sýn Fim 3/4 kl. 20:00 46.sýn
Fim 20/3 kl. 19:30 37.sýn Fim 27/3 kl. 20:00 41.sýn Fös 4/4 kl. 20:00 47.sýn
Fös 21/3 kl. 19:30 38.sýn Fös 28/3 kl. 20:00 42.sýn Fös 4/4 kl. 22:30 48.sýn
Fös 21/3 kl. 22:30 39.sýn Fös 28/3 kl. 22:30 43.sýn
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Litli prinsinn (Kúlan)
Lau 5/4 kl. 14:00 Lau 12/4 kl. 14:00 Lau 26/4 kl. 14:00
Lau 5/4 kl. 16:00 Lau 12/4 kl. 16:00 Lau 26/4 kl. 16:00
Sun 6/4 kl. 14:00 Sun 13/4 kl. 14:00
Sun 6/4 kl. 16:00 Sun 13/4 kl. 16:00
Eitt ástsælasta bókmenntaverk liðinnar aldar.
ÓVITAR (Stóra sviðið)
Sun 23/3 kl. 13:00 Aukas.
Allra síðasta sýning.
Karíus og Baktus (Kúlan)
Lau 15/3 kl. 13:30 Lau 15/3 kl. 15:00
Það miklu betra að hitta Karíus og Baktus í leikhúsinu en að hafa þá í munninum.
Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið)
Lau 15/3 kl. 13:00 Lau 15/3 kl. 14:30
Undurfalleg og hrífandi sýning
Aladdín (Brúðuloftið)
Lau 22/3 kl. 13:00 16.sýn Lau 29/3 kl. 13:00 18.sýn Lau 5/4 kl. 13:00 20.sýn
Lau 22/3 kl. 16:00 17.sýn Lau 29/3 kl. 16:00 19.sýn Lau 5/4 kl. 16:00 21.sýn
1001 galdur - brúðuleiksýning fyrir 4ra til 94 ára. Allra síðustu sýningar.
ENGLAR ALHEIMSINS – HHHHH
„Leikhús á öðru plani...fullkomin útfærsla á skáldsögunni.“ Fbl SÁS
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Furðulegt háttalag hunds um nótt (Stóra sviðið)
Fös 14/3 kl. 20:00 aukas Sun 23/3 kl. 20:00 8.k Lau 12/4 kl. 20:00 13.k
Lau 15/3 kl. 20:00 4.k Fös 28/3 kl. 20:00 aukas Sun 13/4 kl. 20:00 14.k
Sun 16/3 kl. 20:00 5.k Lau 29/3 kl. 20:00 9.k Sun 27/4 kl. 20:00 15.k
Mið 19/3 kl. 20:00 aukas Sun 30/3 kl. 20:00 10.k Mið 30/4 kl. 20:00
Fim 20/3 kl. 20:00 aukas Lau 5/4 kl. 20:00 aukas Sun 4/5 kl. 20:00
Fös 21/3 kl. 20:00 6.k Sun 6/4 kl. 20:00 11.k Fim 8/5 kl. 20:00
Lau 22/3 kl. 20:00 7.k Fös 11/4 kl. 20:00 12.k Fös 9/5 kl. 20:00
Ótvíræður sigurvegari á merkustu leiklistarhátíðar Breta
Óskasteinar (Nýja sviðið; Hof)
Fös 14/3 kl. 20:00 Mið 19/3 kl. 20:00 Lau 22/3 kl. 20:00
Lau 15/3 kl. 20:00 Fim 20/3 kl. 20:00 Sun 23/3 kl. 20:00
Sun 16/3 kl. 20:00 Fös 21/3 kl. 20:00 Lau 29/3 kl. 20:00 í Hofi
Glænýtt verk eftir Ragnar Bragason. Sýnt í Hofi 29/3. Sýningum lýkur í mars
Skálmöld: Baldur (Stóra sviðið)
Fim 3/4 kl. 20:00 gen Mið 9/4 kl. 20:00 2.k Mið 23/4 kl. 20:00 4.k
Fös 4/4 kl. 20:00 frum Fim 10/4 kl. 20:00 3.k Fim 24/4 kl. 20:00 lokas
Þungarokksleikhús sem drífur upp í ellefu! Aðeins þessar sýningar
Ferjan (Litla sviðið)
Fim 20/3 kl. 20:00 gen Lau 12/4 kl. 20:00 8.k Fim 8/5 kl. 20:00 aukas
Fös 21/3 kl. 20:00 frums Sun 13/4 kl. 20:00 aukas Fös 9/5 kl. 20:00 18.k
Þri 25/3 kl. 20:00 aukas Fös 25/4 kl. 20:00 9.k Sun 11/5 kl. 20:00 19.k
Mið 26/3 kl. 20:00 2.k Lau 26/4 kl. 20:00 10.k Mið 14/5 kl. 20:00 20.k
Fim 27/3 kl. 20:00 aukas Sun 27/4 kl. 20:00 11.k Fim 15/5 kl. 20:00 21.k
Fös 28/3 kl. 20:00 3.k Þri 29/4 kl. 20:00 12.k Fös 16/5 kl. 20:00 22.k
Lau 29/3 kl. 20:00 aukas Mið 30/4 kl. 20:00 aukas Lau 17/5 kl. 20:00 23.k
Þri 1/4 kl. 20:00 4.k Fös 2/5 kl. 20:00 13.k Sun 18/5 kl. 20:00 24.k
Mið 2/4 kl. 20:00 aukas Lau 3/5 kl. 20:00 14.k Þri 20/5 kl. 20:00 25.k
Lau 5/4 kl. 20:00 5.k Sun 4/5 kl. 20:00 15.k Mið 21/5 kl. 20:00 aukas
Sun 6/4 kl. 20:00 6.k Þri 6/5 kl. 20:00 16.k Fim 22/5 kl. 20:00 26.k
Fös 11/4 kl. 20:00 7.k Mið 7/5 kl. 20:00 17.k
Fyrsta leikrit eins ástsælasta rithöfundar þjóðarinnar
Bláskjár (Litla sviðið)
Fös 14/3 kl. 20:00 aukas Lau 15/3 kl. 20:00 aukas Sun 16/3 kl. 20:00 lokas
Nýtt íslenskt verk eftir ungskáldið Tyrfing Tyrfingsson. Aðeins þessar sýningar!
Kynfræðsla Pörupilta (Litla sviðið)
Sun 23/3 kl. 20:00 Sun 30/3 kl. 20:00
Fræðandi uppistand Pörupilta um það sem allir eru að spá í
Bláskjár – „Galsafengin og frumleg ádeila“ – HA, DV
64 menning Helgin 14.-16. mars 2014