Fréttatíminn - 14.03.2014, Blaðsíða 47
Í mars er lögð áhersla á að kynna lífræn vín og Fairtrade-vín í Vínbúðunum.
Í kynningu Vínbúðanna á Fairtrade er það skýrt þannig út að smábændur í
fátækum löndum stofna með sér samvinnufélag. Verðið fyrir vörur þeirra er
fyrirfram ákveðið og allt að 60 prósent af áætlaðri uppskeru er greidd fyrirfram.
Fairtrade vínræktendur þurfa að greiða vinnufólki sanngjörn laun og tryggja
heilbrigt vinnuumhverfi. Alls eru 47 framleiðendur Fairtrade-víns í heiminum.
Þar af eru 26 í Suður-Afríku og 11 í Chile. Í Chile eru þeir sjö. Langstærsti markaðurinn fyrir þessi vín er
í Evrópu, í Bretlandi, Þýskalandi, Svíþjóð og Hollandi. Alls seldust 21,8 milljón flöskur af Fairtrade-vínum
árið 2012.
Kannski munu fæst okkar láta það ráða valinu í Vínbúðunum hvort vínin eru Fairtrade-vín en það er hins
vegar ágætt að vita hvaðan og hvernig vínin koma til okkar. Place in the Sun kemur frá Zonnebloem-
framleiðandanum. Við gerð þessa víns eru allar þrúgur keyptar á toppverði frá smábændum. Eins og
nafnið gefur til kynna kemur vínið frá sólríkum stað sem gefur því djúpan, rauðan lit. Það er vel þroskað
með smá berjakeim og eins og Shiraz-þrúgan á að sér þá er þetta vín eilítið kryddað. Vínið passar vel
með miklum mat, grilluðu kjöti, bragðmiklum ostum og jafnvel reyktri skinku.
Fjórir kokteilar
fyrir helgina
Þeir sem ætla að lyfta sér upp
um helgina ættu að huga að
því að prófa nýjan kokteil. Á
vef Vínbúðarinnar er að finna
nokkra spennandi kokteila
og um víðáttur internetsins
má finna enn fleiri slíka. Hér
eru þrír sem vert er að gefa
gaum.
Whisky Sour
6 cl bourbon
Safi úr hálfri sítrónu
1 tsk flórsykur
Allt hrist saman með klaka,
sett í viskíglas og skreytt
með kirsuberi, einnig má
gera drykkinn líflegri með
því að toppa með örlitlu af
sódavatni.
Tom Collins
3 cl gin
3 cl sírónusafi
2 tsk flórsykur
Sódavatn
Hrist og fyllt upp með sóda-
vatni.
Cosmopolitan
4 cl vodka
2 cl Cointreau eða Triple Sec
6 cl trönuberjasafi
1 cl limesafi
Hrist með klaka, framreitt í
kældu kokteilglasi. Skreytið
ef vill með appelsínusneið eða
sítrónuberki.
Myndir/NordicPhotos/Getty
Bloody Mary
3–6 cl vodka
12 cl tómatsafi
Skvetta af Worches-
tersósu
Safi úr sítrónubát
Salt og pipar
1–2 dropar Tabasco
sósa, (má sleppa)
Hristur eða hrærður
eftir smekk. Skreytt
með sellerístöngli.
ibuxin rapid
400 mg hraðvirkt ibuprofen
30 töflur
20% afsláttur
til 14. mars
matur & vín 47Helgin 14.-16. mars 2014
– G Ó Ð U R Á B R A U Ð –
Í S L E N S K U R
GÓÐOSTUR