Fréttatíminn - 14.03.2014, Blaðsíða 22
K
affi hefur í gegnum tíðina
verið sá drykkur sem fólk
hefur helst fengið koffín
úr, ásamt svörtu gos-
drykkjunum sem hafa
notið mikillar hylli alla síðustu öld,
og gera enn. Kaffi, eitt og sér, hefur
kannski ekki drepið neinn en ofneysla
koffíns er orðin að heilbrigðisvanda-
máli og í því sambandi vega svokallaðir
orkudrykkir þyngst. Koffínmagnið
í þessum drykkjum er oftar en ekki
svimandi og það sem veldur mestum
áhyggjum er hversu neysla þeirra er
algeng hjá ungu fólki.
„Það hressir Bragakaffið,“ sagði í
auglýsingunni í gamla daga og vissu-
lega má til sanns vegar færa að koff-
ínríkur kaffibolli getur virkað hress-
andi og skerpt athyglina. Enda er efnið
örvandi og virkar á miðtaugakerfið,
rétt eins og áfengi og ólögleg fíkniefni.
Styrkur og áhrif koffíns eru þó van-
metin enda þarf víst að drekka 50 kaffi-
bolla í einum rykk, eða 200
tebolla, til þess að verða
fyrir koffíneitrun sem
gæti reynst banvæn. Sé
koffíns hins vegar neytt
í sinni tærustu mynd
er voðinn vís eins og
dæmin sanna.
Kaffi er einhver allra
vinsælasti drykkur
heims og í kaffinu
liggur söguleg og
menningarleg hefð fyrir
koffínneyslu sem erfitt
er að hrófla við. Murray
Carpenter hjá The Gu-
ardian sökkti sér ofan í
koffínsúpuna og miðaði
við eigin reynslu sem
kaffisvelgur til áratuga.
Sjálfsagt gerir enginn
sér fyllilega grein fyrir
hversu mikið koffín
hann notar á hverjum
degi, enda mælum
við það oftast í fjölda
kaffibolla sem við
drekkum á dag, en þar
er ekki einu sinni hálf
sagan sögð. Þannig
getur 40 ml kaffibolli innihaldið innan
við 60mg af koffíni en 450ml bolli gæti
innihaldið tíu sinnum meira magn. Í
báðum tilfellunum væri samt talað um
„einn kaffibolla“.
Carpenter bjó til mælieininguna
Scad (Standard Caffeine Dose) til þess
að einfalda hlutina í grein sinni í The
Guardian. Hver eining er þá 75mg sem
er um það bil það koffínmagn sem fæst
út úr einum espressó-bolla, 150ml af
kaffi, 250ml dós af orkudrykknum
Red Bull og tveimur 350ml dósum af
Kóki eða Pepsí. Sjálfur segist hann að
jafnaði innbyrða fjóra til fimm slíka
skammta á dag. Þá daga sem hann
notar ekki nema tvo skammta finnur
hann fyrir sljóleika og sleni en á sjö
skammta degi er hann allur á iði.
Rótsterkt kaffi hefur lítið í hina
svokölluðu orkudrykki að gera og mat-
vælayfirvöld í Bretlandi og Bandaríkj-
unum hafa meiri áhyggjur af þessari
nýju kynslóð koffíndrykkja en þeim sí-
gildu. Carpenter segir í grein sinni frá
hinum 23 ára gamla Michael Bedford. Í
apríl 2010 var hann í gleðskap og skellti
í sig tveimur skeiðum af koffín dufti,
sem hann hafði keypt á netinu, og
skolaði efninu niður með orkudrykk.
Hann varð þvoglumæltur, kastaði upp
og datt svo niður dauður. Samkvæmt
krufningu drógu eituráhrif koffínsins
hann til dauða en talið er að hann hafi
innbyrt um 5 grömm af koffíni.
Roland Griffiths hefur stundað lyfja-
rannsóknir og hefur ekki síst beint
sjónum sínum að koffíni enda mjög
áhugasamur um áhrif lyfja á skap-
gerð. „Í mínum huga er koffín mest
heillandi blandan vegna þess að það
hefur svo augljós sálræn áhrif en er
samt viðurkennt menningarlega nánast
út um allan heim. Koffín er því ekki
talið misnotkunarlyf þótt það beri öll
einkenni slíkra fíkniefna. „Það hefur
áhrif á skapgerð, fólk verður
líkamlega háð því og finn-
ur fyrir fráhvörfum þegar
það dregur úr neyslu.
Þannig að einhver hluti
mannfjöldans verður
háður því.“
Griffiths og samstarfs-
fólk gerði tilraunir á
sjálfu sér og dró mark-
visst úr neyslu koffíns.
Fjórir af þeim sjö sem
tóku þátt í tilrauninni
fundu fyrir ýmsum
fráhvarfseinkennum;
höfuðverk, sljóleika og
einbeitingarskorti. Þetta
fólk var ekki að fikta við
óeðlilega stóra skammta,
heldur aðeins 2,5 Scad-
einingar sem teljast innan
venjulegra neyslumarka.
Þannig að meira þarf
nú ekki til þess að verða
alvarlega háður efninu.
Coca-Cola á koffíninu
að þakka vinsældir sín-
ar. Það var markaðssett
sem hressandi drykkur
árið 1909 og þá innihélt
það 80mg af koffíni í hverjum 250ml.
Matvæla- og lyfjaeftirlitið í Bandaríkj-
unum (FDA) hefur lítið skipt sér af
koffínmagni gosdrykkja en hinir nýju
orkudrykkir hafa hins vegar ýtt við
yfirvöldum.
Á síðustu árum hafa þar í landi
komið upp nokkur tilfelli, þar á meðan
dauðsföll, sem talið er að rekja megi
til neyslu orkudrykkja, án þess þó
að hægt sé að sýna fram á það með
óyggjandi hætti. Undir lok ársins 2012
tók eftirlitið saman lista yfir umkvart-
anir vegna orkudrykkja sem náði tæp
átta ár aftur í tímann. Á listanum voru
93 eitrunartilfelli og þar af þrettán
dauðsföll. Þótt orsakasamhengið sé
ekki óumdeilt lagðist FDA í rannsóknir
á drykkjunum og hefur ráðlagt fólki
að hafa samráð við lækni áður en það
neytir orkudrykkja. Slíkar ráðlegg-
ingar hafa aldrei verið gefnar út þegar
Orkukynslóðin í koffínrússi
Eftir því sem fólk
hefur orðið með-
vitaðara um áhrif þess
sem það neytir í mat
og drykk á líkamann
er í auknum mæli
rætt um koffín og
sykur sem fíkniefni.
Þessi efni falla þó
ekki undir lyfjalög-
gjöf en óumdeilt er að
neysla þeirra í miklu
magni hefur slæm
áhrif á andlega- og
líkamlega heilsu.
Allir sem hafa neytt
efnanna í miklu magni
hljóta að kannast við
að þau kalla á fíkn,
meira af því sama, og
fráhvarfseinkennin
eru greinileg. Með til-
komu orkudrykkjanna
er ofneysla koffíns
orðin algengari og
almennari en hún var
á meðan fólk fékk
skammtinn sinn úr
kaffi, te eða svörtum
gosdrykkjum.
Of stór skammtur? Koffín er löglegt fíkniefni sem nýtur mikils hefðarréttar. Áhrif þess á sál og líkama eru þó óumdeild og fólki
getur reynst erfitt að átta sig á hversu mikið magn það innbyrðir af efninu daglega. Ljósmynd/NordicPhotos/Getty
Áhrif koffíns á
líkamann
Koffín hefur margvísleg
áhrif en sé þess neytt
innan hóflegra marka
verkar það fyrst og fremst
örvandi á líkamann í
gegnum miðtaugakerfið.
Örvandi áhrif koffíns á
líkamann valda útvíkkun
æða, hjartsláttur verður
örari og blóðflæði eykst
til allra líffæra. Þar að
auki hefur koffín áhrif á
öndun, örvar meltingu og
eykur þvagmyndun.
Koffínríkir drykkir eins
og kaffi og orkudrykkir
eru vinsælir þar sem
koffín getur dregið
úr einkennum þreytu
og virðist geta aukið
einbeitingu. Hafa ber í
huga að neysla á koffíni í
stórum skömmtum getur
haft ýmis óæskileg áhrif
á líkamann og andlegt
ástand, ekki síst hjá
börnum og unglingum. -
Matvælastofnun, mast.is
Kókið hefur í rúma öld gert fólki
auðvelt að svelgja í sig koffíni
með dágóðu magni af sykri í
bland. Hefðbundnu gosdrykk-
irnir standa þó hinum nýju
orkudrykkjum langt að baki þegar
koffínmagn er annars vegar.
WOWtravel.is
Katrínartún 12, 105 Reykjavík - Sími 590 3000
wowtravel@wowtravel.is
A L I C A N T E
7 nætur - 3.5.2014 og 21.8.2014
95.900 kr. á mann í tvíbýli
INNIFALIÐ: Flug með sköttum og gjöldum, gisting í 7
nætur með 1/2 fæði og 10 kg í handfarangur.
Hotel Maya Alicante***
Mjög gott 3ja stjörnu hótel þar sem ölmargir
Íslendingar hafa dvalið og borið lof á. Hótelið er
staðsett við hæðina þar sem kastali heilagrar Barböru
stendur og hefur hótelið allt sem hugurinn girnist m.a.
flottan sundlaugargarð og tennisvöll. Hótelið er einnig
í göngufæri við ströndina og örstutt er í bæinn Alicante
sem er afskaplega sjarmerandi bær með glæsilegum
verslunum.
COSTA BRAVA
Lloret de Mar - 7 nætur
30.5.2014 og 26.6.2014
82.900 kr. á mann í tvíbýli
INNIFALIÐ: Flug með sköttum og gjöldum, gisting í 7
nætur með 1/2 fæði og 10 kg í handfarangur.
Aqua Hotel Bertran Park - Lloret de Mar***
Gott 3ja stjörnu hótel staðsett á rólegum stað í
Lloret de Mar í um 350 metra arlægð frá
ströndinni. Á öllum herbergjum er loftkæling,
gervihnattasjónvarp, sími og svalir. Á hótelinu er
veitingastaður sem býður upp á hlaðborð á
morgnanna, í hádeginu og á kvöldin. Þar er einnig
bar og sundlaug.
TILBOÐSFERÐIR
Takmarkað sætaframboð
Takmarkað sætaframboð
22 fréttaskýring Helgin 14.-16. mars 2014