Fréttatíminn - 14.03.2014, Blaðsíða 8
F ramleiðsla á lífrænni mjólk hefur verið minni en áður undan-
farna mánuði og því hefur
Biobú, sem sérhæfir sig í
vinnslu á lífrænum mjólkur-
afurðum, ekki náð að sinna
eftirspurn en það horfir nú
til betri vegar. „Við höfum
lagt áherslu á að framleiða
jógúrt en látið skyr og gríska
jógúrt mæta afgangi þar
sem mun meiri mjólk fer í
þær vörur,“ segir Helgi Rafn
Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Biobú sem auk þess
hefur framleitt ís og rjóma.
Tveir helstu framleiðendur
lífrænnar mjólkur, Búland í
Austur-Landeyjum og Neðri-
Háls í Kjós, hafa unnið að
því að auka sína framleiðslu
til að mæta eftirspurn og
er Helgi Rafn vongóður um að allar vörur
Biobú verði ávallt á boðstólum með vor-
inu. Auk þess stefnir hann á að setja líf-
ræna drykkjarmjólk á markað í
litlu magni en hún hefur verið
ófáanleg í verslunum frá síðasta
hausti. „Við höfum fengið fjölda
símtala frá fólki sem vill fá líf-
ræna mjólk og frá verslunum
sem vilja fá hana aftur í sölu. Við
getum samt ekki framleitt hana
nema í mjög litlu magni til að
mæta þörfum þeirra allra hörð-
ustu,“ segir Helgi Rafn.
Fréttatíminn greindi frá því í
september að mjólkurbóndinn á
Finnastöðum í Eyjafirði hefði tíma-
bundið misst vottunina vegna
mannlegra mistaka við vinnslu.
Mjólkursamsalan hætti þá fram-
leiðslu á lífrænni drykkjarmjólk
vegna þess hversu lítið framboð
var af henni frá bændum og eftir-
lét Biobú þá mjólk sem fengist.
Bóndinn á Finnastöðum ákvað
síðan að hætta lífrænum mjólk-
urbúskap og lífræn mjólk enn ófáanleg í
verslunum.
Ársframleiðslan hjá Búlandi og Neðra-
Hálsi er ríflega 300 þúsund lítrar af lífrænni
mjólk og er verið að auka framleiðsluna á
þeim búum, en Biobú er nýfarið að fá lítið
magn af mjólk frá Skaftholti í Gnúpverja-
hreppi, sem hingað til hefur aðeins fram-
leitt til einkaneyslu og eigin framleiðslu, til
að reyna að mæta eftirspurn.
Hjá Mjólkursamsölunni fengust þau svör
að þar á bæ sé stefnt að því að setja lífræna
drykkjarmjólk aftur á markað en það sé
ekki í fyrirsjáanlegt í náinni framtíð meðan
lífræna mjólkin sem er til ráðstöfunar er
ekki meiri.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Matvara LíFræn MjóLk ekki FáanLeg í versLunuM síðan í haust
Lífræn mjólk aftur
á markað í vor
Biobú stefnir á að setja lífræna drykkjarmjólk á markað með vorinu í litlu magni til að mæta eftir-
spurn. Eftir að eitt af þremur stórum mjólkurbúum með lífræna vottun missti vottunina í haust
hefur lífræn drykkjarmjólk verið ófáanleg í verslunum. Starfandi bú vinna að því að auka sína
framleiðslu og vonast framkvæmdastjóri Biobú til að allar vörur fyrirtækisins verði fáanlegar í
vor, auk mjólkurinnar.
Mjólk-
ursamsalan
hætti framleiðslu á líf-
rænni mjólk í haust og er
hún enn ófáanleg. Biobú
stefnir á að koma með
sína mjólk á markað í vor,
og þá í öðrum umbúðum.
Biobú hefur lagt
áherslu á að fram-
leiða jógúrt en vegna
mjólkurskorts látið skyr
og gríska jógúrt sitja á
hakanum. Ljósmynd/Hari
Við getum
samt ekki
framleitt hana
nema í mjög
litlu magni
til að mæta
þörfum þeirra
allra hörðustu.
TAXFREE
DAGAR
20,32%
AF öllum vöRum
Nýttu
tækifærið
komdu
NúNa
DORMA Holtagörðum, Reykjavík ✆ 512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri ✆ 558 1100
Húsgagnahöllinni, Reykjavík ✆ 558 1100
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður 25.5% virðisaukaskatt af söluverði.
20,32% afslátturinn er alfarið á kostnað Dorma.
ClAssiC sófi
turkisblátt áklæði.
TAXFREE
vERÐ
119.440
fullt verð 149.900
stjórnvísi FraMúrskarandi störF
Unnu stjórnunarverðlaun
Ólafur Ragnar Grímsson, Elínrós
Líndal, Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir og
Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu
Reykjavíkur.
Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi voru
veitt í fimmta skipti á miðvikudag-
inn. Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti Íslands, afhenti verðlaunin við
hátíðlega athöfn í Veisluturninum
í Kópavogi. Rúmlega 50 stjórn-
endur voru tilnefndir. Handhafar
Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi
2014 eru Elínrós Líndal, stofnandi
og listrænn stjórnandi fatahönn-
unarfyrirtækisins ELLU, Guðlaug
Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmda-
stjóri bráðasviðs Landspítalans og
Bjarni Bjarnason, forstjóri Orku-
veitu Reykjavíkur.
Stjórnunarverðlaunin eru veitt
árlega stjórnendum sem þykja
hafa skarað framúr á sínu sviði.
Félagar í Stjórnvísi tilnefna
og rökstyðja millistjórnendur,
yfirstjórnendur og frumkvöðla
í fyrirtækjum innan raða Stjór-
nvísi. Markmið Stjórnunarverð-
launa Stjórnvísi er, að því er fram
kemur í tilkynningu, að vekja
athygli á framúrskarandi starfi
stjórnenda sem eru aðilar að
Stjórnvísi og hvetja félagsmenn
til áframhaldandi faglegra starfa
og árangurs.
R Á Ð S T E F N A U M B R J Ó S T A G J Ö F
F ö s t u d a g i n n 4 . a p r í l 2 0 1 4 á H ó t e l S ö g u
D A G S K R Á
8:30 Kynningarbásar og spjall
9:00-10:30 Fyrirlestur Diana West
Mjólkurframleiðsla og mjólkurinntaka. Ítarleg umræða um mat á brjóstagjöf
móður og nýbura með það að markmiði að finna út ástæður fyrir ónógri mjólkurframleiðslu.
10:30-11:00 Kaffihlé
11:00-13:00 Fyrirlestur Diana West Aukin mjólkurframleiðsla
13:00-14:00 Hádegismatur
14:00-15:00 Vinnusmiðjur: Vinnusmiðja á ensku Diana West: Brjóstagjöf eftir
lýtaaðgerðir
Vinnusmiðja á íslensku: Brjóstagjöf og tengslamyndun -
Ingibjörg Eiríksdóttir, brjóstagjafaráðgjafi IBCLC, ljósmóðir/
hjúkrunarf MSc.
15:00-15:15 Kaffihlé
15:15-16:00 Vinnusmiðjur: Vinnusmiðja á ensku Diana West: Brjóstagjöf eftir lýtaaðgerðir
Vinnusmiðja á íslensku: Knús, kelerí, kynlíf og..... krakkar!
Sigga Dögg kynfræðingur
Ingibjörg Eiríksdóttir
Skráning: fagseminar2014@gmail.com /í síma 6620271 (Magnea).
Verð 17.900 kr ef greitt er fyrir 20. mars en 19.999 kr eftir 20. mars. Innifalið er ráðstefnujald, kaffi og hádegisverður.
Áhugasamir foreldrar geta setið íslensku fyrirlestrana fyrir einungis
2000 kr.
8 fréttir Helgin 14.-16. mars 2014