Fréttatíminn - 14.03.2014, Side 26
Útivist allt árið
Laugavegi 178. Sími 562 1000. www.utivist.is
K roppurinn er kraftaverk er fyrsta bókin sem kemur
út á íslensku um líkams-
virðingu fyrir börn. Mark-
miðið með bókinni er að efla
jákvæða líkamsmynd barna,
umhyggju þeirra fyrir
líkama sínum og virðingu
fyrir fjölbreytileika. „Þetta
er bók sem ég hef gengið
með í maganum ansi lengi,“
segir Sigrún Daníelsdóttir,
sálfræðingur og höfundur
bókarinnar, en hana prýða líf-
legar myndskreytingar eftir
Björk Bjarkadóttir. Sigrún
er formaður Samtaka um
líkamsvirðingu auk þess sem
hún er sjálf foreldri og hefur
reynt að innræta börnum
sínum virðingu fyrir öllum
líkamsgerðum. „Hugmyndin að
bókinni er til komin bæði vegna
starfs míns sem sálfræðingur en
einnig vegna reynslu minnar sem
foreldri að ala upp börn í menn-
ingu þar sem fjölmörg áreiti ýta
undir neikvæða líkamsmynd
barna. Mér hefur fundist mikil-
vægt að búa til mótvægi gegn
því á heimilinu og í uppeldinu að
skapa líkamsvirðingarvænt um-
hverfi. Það hef ég gert með því
að ala börnin upp í þeirri trú að
allir líkamar séu jafnir, enginn
líkamsvöxtur sé betri en annar,
að við séum öll ólík og að allir lík-
amar séu góðir líkamar sem eiga
skilið væntumþykju og virðingu.“
Hluti af uppeldinu hefur
ennfremur snúist um að leið-
rétta staðalmyndir. „Við búum
í samfélagi sem mismunar eftir
líkamsvexti. Þegar maður sér
þessar staðalmyndir koma upp
hjá börnunum, þrátt fyrir bestu
viðleitni til að kenna þeim annað,
þá er mikilvægt að leiðrétta
þær alveg eins og við gerum við
kynjastaðalmyndir. Þá bendum
við til dæmis á að stelpur geti vel
orðið smiðir og að strákar megi
alveg vera í bleikum skóm. Ég
hef unnið með líkamsvirðingu
á sama hátt. Ef ég heyri börnin
hafa í frammi staðalmyndir um
holdafar og líkamsvöxt reyni ég
að leiðrétta þær með sama hætti
og held að mér hafi tekist það.
Ég heyri að börnin mín gera at-
hugasemdir við ýmislegt sem
þau sjá og heyra. Þau segja mér
til dæmis frá því ef þau taka
eftir fitubröndurum í barnaefni
því þeim finnst alls ekki fyndið
heldur ömurlegt að það sé gert
lítið úr einhverjum líkamsvexti
til að vekja hlátur. Þetta er því vel
hægt.“
Bókin er nýkomin í verslanir
en í sumar kemur hún einnig út
á ensku í Bandaríkjunum, Ástr-
alíu, Kanada og Bretlandi. Sigrún
veit ekki til þess að viðlíka bók
hafi komið út áður. „Ég hef lengi
verið hluti af alþjóðlegu fræða-
samfélagi á sviði líkamsmyndar
og átraskana, og oft hafa komið
upp umræður á alþjóðlegum net-
listum þar sem er verið að leita
að efni af þessu tagi. Ég hef ekki
séð neina bók þar sem fjallað er
um líkamsvirðingu með þeim á
þennan hátt. Yfirleitt er talað um
að það þurfi að segja við börnin
að þau séu falleg eins og þau
eru en þannig náum við ekki að
taka á þessum djúpu samfélags-
legu viðhorfum sem eru sífellt að
segja þeim eitthvað annað. “
Fyrst og fremst er bókin
hugsuð fyrir börn en Sigrún telur
að lestur hennar geri fullorðnum
einnig gott. „Þeir sem hafa verið
að lesa hana yfir fyrir mig hafa
Bók fyrir börn um líkamsvirðingu
Fyrsta íslenska bókin um líkamsvirðingu fyrir börn er nýkomin
út. Sigrún Daníelsdóttir, sálfræðingur og höfundur bókarinnar,
segir mikilvægt í samfélagi þar sem fólki er mismunað eftir
líkamsvexti að fræða börn um að allar líkamsgerðir séu fallegar.
Þetta hefur hún haft að leiðarljósi í uppeldi eigin barna sem
finnst hreint ekki fyndið þegar í barnatímanum er gert grín að
einhverjum vegna þess að hann sé feitur.
Sigrún Daníelsdóttir er höfundur bókarinnar um líkamsvirðingu barna. Bókin er hugsuð fyrir yngri börn í þjóðfélagi sem elur á
staðalmyndum og hentar vel fyrir foreldra til að hefja umræður við börnin um ólíkar líkamsgerðir. Ljósmynd/Hari
talað um að þeir hefðu
gjarnan viljað hafa átt
svona bók þegar þeir
voru yngri.“ Bókin er
ríkulega myndskreytt
með einföldum skila-
boðum á hverri síðu.
„Þetta er á einföldu
máli sem talar beint til
barnanna og textinn er
hugsaður til að vekja
þau til umhugsunar og
skapa umræður. Ég sé
fyrir mér að þetta passi
vel inn á leikskóla og
í yngstu bekki grunn-
skóla. Ég hef líka orðið
vör við, bæði í sam-
tölum við aðra foreldra
og í starfi mínu, að fólki
finnst oft erfitt að nálg-
ast þessa umræðu með
börnum. Foreldrar og
kennarar eru hikandi
því þeir vita ekki hvað
þeir eiga að segja og
hvað ekki að segja, og
ég vona að bókin verði
gagnlegt verkfæri til að
hefja þessa umræðu.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
26 líkamsvirðing Helgin 14.-16. mars 2014