Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.03.2014, Qupperneq 40

Fréttatíminn - 14.03.2014, Qupperneq 40
40 fjölskyldan Helgin 14.-16. mars 2014 Óttist ekki að taka óvinsælar ákvarðanir Þ etta er náttúrulega nokkuð undarlegur titill á pistli um tölvunotkun og netnotkun á heimilum barnafjölskyldna en lesið samt endilega áfram. Titlinum er ætlað að minna ærlega á að uppeldishlutverki foreldra á ögurstundum má einmitt líkja við ofangreind- ar starfsstéttir og frívaktir eru þá aðeins þegar barnið og ungmennið er statt annars staðar og þá vonandi hjá hæfum starfsstéttum eins og öðrum fjölskyldum, kennurum, þjálfurum og fleirum sem taka ábyrgðina af fullri alvöru. Venjulega erum við algjörlega fær um uppeldishlutverkið en hin nýja tækni og hin nýju netsamskipti setja sjálfsöryggi okkar úr skorðum þar sem við erum meira fákunnandi en börnin okkar. „Ég var að spjalla við vini mína,“ segir barnið sem hefur setið lúsiðið við heimanámið með tónlistina í eyrunum en um leið emmessennað af krafti og fylgst með Fasbókinni sinni af furðulegri fjölbeitni – einbeitni virðist sem sagt ekki duga þessari kyn- slóð og því fylgja bæði frábær tækifæri og umtalsverðir ókostir. Rétt eins og öllu öðru í lífinu. „Á ég að skammta tölvutíma?“ eða „Hvernig stöðva ég að unglingurinn hangi á netinu fram eftir allri nóttu?“ eða „Er ekki eineltið komið yfir á netið sem er nýja, eftirlitslausa útisvæðið?“ Allar þessar spurningar og margar fleiri eru svo sannarlega mikilvægar og svarið er að mínu mati undureinfalt. Beitið sama uppeldisgaldri og hefur virkað á öðrum sviðum og óttist ekki að taka óvinsælar ákvarðanir. Hvert heimili þarf sína löggjöf og því fylgir að ræða málin, ákveða heimilisreglur og ná sátt um þær og þá möguleg viðurlög ef reglur eru brotnar. Þegar löggjafarvinnunni lýkur, þarf að fylgja málum eftir. Hlutverk lögreglu er að framfylgja lögunum og beita viðurlögum. Lífverðir vernda þegnana fyrir sjálfum sér og öðrum. Hjúkkan á gjörgæslunni er alltaf á vaktinni, fylgist með lífsmörkum og grípur til björgunaraðgerða ef nauðsyn krefur. Sem sagt; ræðið tölvu- og netnotkun á heimilinu. Fjölskyldufundir eru frábært tæki þar sem framkvæmdastjóri Fjölskylda og Heimili ehf. undirbýr og boðar fund- inn, þ.e. sú eða sá sem raunverulega stýrir fyrirtækinu að öllu jöfnu þótt svo að allir fjölskyldumeðlimir eigi sinn hlut, beri ábyrgð og verk og hafi atkvæðisrétt. Reglur frá fjölskyldufundi er gott að undirrita og svo koma nýir fundir til að endurskoða og fínstilla fyrirkomulagið. Framkvæmdastjórinn getur líka fundað með stjórnarfor- manni Fjölskyldunnar ef slíkur er fyrir hendi og ákveðið fyrirkomulag sem börnum og ungmennum er kynnt. Ef framkvæmdastjórinn er líka stjórnarformaður, ríkir menntað einveldi á heimilinu og þá getur hún (eða hann) sett sínar reglur án fundahalds, allt eftir hentugleikum. Reglurnar geta einmitt snúist um að tölvutími sé skammtaður og tekinn af tímabundið ef reglur eru brotnar. Það má líka ákvarða að allir slökkvi á símum og leggi frá sér nettækin á ákveðnum stundum dagsins og kvöldsins og það gildir um fullorðna líka. Símanotkun má banna á ákveðnum friðhelgum svæðum heimilisins. Öll rafmagnstæki má taka úr sam- bandi og það gildir þá líka um netgræjuna sem skammtar netið. 3G og 4G tæki getur fram- kvæmdastjórinn krafist að séu geymd undir hennar/hans umsjón eftir ákveðinn tíma að kvöldi. Framkvæmdastjórinn á að hafa aðgengi að öllum nettengdum tækjum og innihaldi þeirra og tékka á því sem þar gerist – nú er meira að segja hægt að fá tæknilausnir þar sem foreldrar geta fylgst með því sem er að gerast í hinum rafræna heimi barnsins þar sem ungmenni eiga ekki að vera ein á ferð, við berum ábyrgðina á þeim líka og sumt er bannað undir 18 ára aldri. Fyrst og síðast skulum við taka ábyrgðina á löggjafarvinnunni, löggu- og lífvarðastarfinu og taka stöðugt púlsinn með árvökulum sjón- um gjörgæsluhjúkkunnar. Öld fjölbeitninnar færir okkur ótakmörkuð tækifæri ef við bara sýnum skynsemi og sköpum rólegu stund- irnar á hverjum degi þar sem gamaldags ein- beitni og samskipti í bæði efni og anda eiga sér stað. Gangi ykkur vel. Venjulega erum við algjörlega fær um uppeldishlut- verkið en hin nýja tækni og hin nýju netsamskipti setja sjálfsöryggi okkar úr skorðum þar sem við erum meira fákunnandi en börnin okkar. Löggur, lífverðir og hjúkkur á gjörgæslu Margrét Pála Ólafsdóttir ritstjórn@ frettatiminn.is heimur barna Hvert heimili þarf sína löggjöf og því fylgir að ræða málin, ákveða heimilisreglur og ná sátt um þær og þá möguleg viðurlög ef reglur eru brotnar. Myndatexti:  SpænSkunám og leiðtoganámSkeið Sumarbúðir fyrir unglinga á Spáni Mundo er öðruvísi ferðaskrifstofa þar sem menntun, skemmtun, menning og þjálfun fara saman. Meðal þess sem ferðaskrifstofan býður upp á eru sumar- búðir fyrir unglinga á aldrinum 14 til 18 ára. Búðirnar eru haldnar í smábænum L'Amettla sem lítill og öruggur bær sem liggur um 30 kílómetra frá Barcelona. Margrét Jónsdóttir Njarðvík, vararæðis- maður Spánar og eigandi skrifstofunnar, segir umhverfið vera mjög öruggt en hafa samt upp á allt á bjóða sem unglingar hafa gaman af. Takmarkið með dvölinni, auk skemmtunar, er að unglingarnir læri að bjarga sér á spænsku en þau dvelja á spænskum heimilum þær þrjár vikur sem dvölin stendur yfir. Auk þess byggir dvölin á leiðtoganámskeiði þar sem unnið er með þáttakendur í nýjum aðstæðum. Alla virka daga stunda þátttakendur spænskunám í fjórar klukkustundir á dag en síðdegis er skipulegt félagsstarf eins og íþróttir, sundferðir, almenn útivist og skoðunarferðir á strendur og til Barce- lona. Eina skilyrðið fyrir þátttöku er að engin vímuefni séu snert meðan á dvöl stendur. Áhugasamir geta séð úrval skrifstof- unnar á mundo.is hh. Sumar- búðirnar eru haldnar í litlum smábæ í Katalóníu. tekk company og habitat kauptún 3 sími 564 4400 vefverslun á www.tekk.is opið mánudaga til laugardaga kl. 11-18 og sunnudaga kl. 13-18 ALLSKONAR FÍNT OG FALLEGT FYRIR FERMINGUNA 25 timber hátalari bluetooth - usb verð 29.500 kr. úrval af fallegum púðum verð frá 3.900 kr. cleo bókahilla verð (askur) 85.000 kr. verð (lakk) 69.500 kr. bobby borðlampi verð 5.900 kr. beacan skrifborð frá habitat tilboðsverð 29.500 kr. verð áður 39.500 kr. mikið úrval af boXum/skrínum frá housedoctor verð frá 3.200 kr.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.