Fréttatíminn - 14.03.2014, Page 52
É g get ekki sagt að þetta hafi verið draumur frá barnæsku en ég man þegar ég var barn
þá ætlaði ég að vera málari eða rit-
höfundur því ég hafði gaman af því.
Svo þegar ég var unglingur ætlaði
ég að verða sálfræðingur eða bók-
menntafræðingur. Áhugasvið mitt er
ansi breytt og er ég mjög þakklátur
fyrir það,“ segir Sævar sem flutti til
Parísar eftir að hafa lært myndlist og
listasögu. „Mig hafði lengi dreymt
um að búa þar. Þar vann ég meðal
annars með myndlistarmönnum við
uppsetningu sýninga og kom fram í
gjörningum. Einnig vann ég eitthvað
við fyrirsætustörf en mér leið aldrei
of vel með það.“ Það var svo þegar
Sævar fékk vinnu við sýningu hjá
fatahönnuðinum Agnes B sem áhug-
inn á sníðagerð og efnum kviknaði
fyrir alvöru. „Ég gerði búninga fyrir
sýningu og fékk þar að velja efni-
við úr stórkostlegu safni efna. Það
heppnaðist það vel að ég fékk meðal
annars lof frá hönnuðum Cosmic
Wonder.“
Eitt leiddi af öðru og í dag eru
kjólarnir ein helsta ástríða Sævars.
Hann framleiðir vörurnar á Íslandi
í takmörkuðu upplagi en er kominn
í samstarf með framleiðsluaðila frá
Eistlandi. Efnin koma frá Englandi
og Ítalíu og Sævar leggur mikið upp
úr vönduðum efnum og sniðum. „Ég
nota mikið mynstur sem ég vinn úr
frá allskyns rannsóknarvinnu og á
ég ansi stóran gagnagrunn sem ég
get leitað í og er ávallt að bætast í
hann. Þetta er svona hæfileg blanda
af mynstrum og svo einfaldari
litapallettu en ég vinn einnig með
svartan, gráan og einnig hvítan þó
hann teljist ekki vera litur. Hver veit
svo hvernig framhaldið verður.“
Það er óhætt að segja að Sævar
sæki innblástur um víðan völl.
„Fyrsta hugmyndin að kjólunum
kom þegar ég var að horfa á tékk-
neska kvikmynd frá sjöunda
áratugnum en sá áratugur er mér
mjög kær og þessi einföldu en klass-
ísku kjólasnið þess tíma. Á sama
tíma var ég mikið að lesa mér til og
skoða allskyns Art Brut listamenn
og þaðan koma mynstrin í kjólunum.
Þegar þessu var blandað saman kom
út kjóll sem mér fannst henta söng-
konunni Trish Keenan úr Broadcast
sem er mitt uppáhald en hún lést
langt fyrir aldur fram og ákvað ég að
tileinka þennan kjóll henni því hún
hefur verið áhrifavaldur í mörg ár.
Ég er núna að klára þetta langa ferli
sem þessi lína hefur tekið og hlakka
ég mikið til að koma með restina af
henni og sýna og fara svo að fullgera
næstu línu sem er í vinnslu.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Helgin 14.-16. mars 201452 tíska
Myndlistarmaður hannar kjóla
Sævar Markús hannar kjóla og
sækir innblástur í bækur, bíó,
myndlist og efni svo fátt eitt
sé nefnt. Hann er einn stofn-
enda verslunarinnar Kiosk við
Laugarveg, en þar selja níu
íslenskir hönnuðir vörur sínar.
Tískuhönnun sævar Markús í kiosk
Sævar Markús bjó í París eftir nám og varð fyrir miklum áhrifum. Hann útilokar ekki að flytja þangað aftur. Ljósmynd/Hari
VILTU VERÐA
SÉRNÁM TEKUR 1 ÁR
SNYRTIFRÆÐINGUR?
NÆ
STA ÖNN HEFST Í MARS
WWW.RFA.IS - INFO@FASHIONACADEMY.IS - 571 5151
Beauty Academy
Ég mæli 100%
með Beauty
Academy!
- Þóra Birna
Jónsdóttir nemandi í
Beauty Academy
Aðbúnaður er til
fyrirmyndar og
aðstaðan glæsileg.
-Ágústa Árnadóttir,
útskrifaðist í mars 2013
Framúrskarandi kennarar,
virkilega skemmtilegt og fjölbreytt
nám.
- Ásta Laufey Sigurjónsdóttir,
útskrifaðist í júní 2013
Taktu þátt í leiknum okkar á www.rfa.is/leikur
Þú gætir unnið 100.000 ávísun í námið hjá Fashion Academy Reykjavík