Fréttatíminn - 14.03.2014, Qupperneq 74
— 2 — 14. mars 2014
Æxlin flytjast um líkamann með
nanóeindunum svo auðveldara
verður að meðhöndla þau.
Heilaæxli færð til
Hópur vísindamanna við Georgia
Institute of Technology hefur
hannað nanóeindir sem laða til
sín krabbameinsfrumur svo
hægt er að flytja æxli á hentugri
stað í líkamanum þegar verið
er að eyða þeim. Rannsóknir á
dýrum sýna að með aðferðinni er
hægt að minnka heilaæxli. Einn
vísindamannanna, prófessor Ravi
Bellamkonda, sagði í viðtali við
BBC að með aðferðinni væri æxlið
fært til lyfsins en ekki öfugt. Hann
segir líklegt að með aðferðinni
verði hægt að stjórna vexti æxla
og gera ólæknandi krabbamein
að sjúkdómi sem fólk lærir að lifa
með.
Í rannsókninni var unnið með
meinið gliobalstoma, illkynja
æxli sem erfitt er að meðhöndla
og hefur tilhneigingu til að dreifa
sér innan heilans. Vonir standa
til að aðferðin geri skurðaðgerðir
á krabbameinum auðveldari.
Rannsóknir eru enn á frumstigi
og nokkuð í að hægt verði að nota
þær við meðferð sjúklinga.
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300.
Ritstjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@
frettatiminn.is. Ritstjórnarfulltrúi: Dagný Hulda
Erlendsdóttir dagnyhulda@frettatiminn.is. Fram-
kvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgis-
son valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur
Jónasson teitur@frettatiminn.is . Líftíminn er gef-
inn út af Morgundegi ehf., prentaður í 85.000
eintökum í Landsprenti og dreift mánaðarlega
með Fréttatímanum og á heilbrigðisstofnanir.
Líftækni- og
lyfjaiðnaður
veitir mestu
til rannsókna
Dagn ý HulDa Er lEnDsDót tir
L íftækni- og lyfjaiðnaður er sú at-vinnugrein í heiminum sem veitir hlutfallslega mestu af veltu sinni til rannsókna og þróunar, sam-
kvæmt lista Evrópusambandsins og birtur
er á vef Frumtaka, samtaka frumlyfjafram-
leiðenda á Íslandi. Samkvæmt listanum fer
15,1 prósent af veltu lyfja- og líftækniiðnað-
arins til rannsókna og þróunar. Sú atvinnu-
grein sem næst kemur er hugbúnaður og
tækni með 9,5 prósent.
Að sögn Jakobs Fals Garðarssonar, fram-
kvæmdastjóra Frumtaka, er eftir gríðarlega
miklu að slægjast með því að fá rannsóknar-
starfsemi fleiri lyfjafyrirtækja til Íslands.
„Stjórnvöld geta með ýmsu móti skapað
aukin tækifæri fyrir verðmætasköpun í
atvinnulífinu. Við sjáum að með skatta-
ívilnunum eins og til dæmis eru boðnar í
kvikmyndaiðnaðinum hafa miklir fjármunir
komið inn í okkar efnahagslíf. Með sams
konar hætti er ég sannfærður um að hægt
væri að fá margs konar rannsóknartengda
starfsemi lyfjafyrirtækja hingað til lands.
Bæði velta þau háum fjárhæðum og leggja
hæstan skerf allra atvinnugreina til rann-
sókna og þróunar svo háskólar og aðrar
rannsóknarstofnanir njóta góðs af. Lyfja-
iðnaðinum fylgja spennandi og verðmæt
störf sem er einmitt það sem við þurfum
á að halda.“
Jakob er þeirrar skoðunar að stjórnvöld
ættu að beina sjónum sínum að lyfja- og
líftækniiðnaðinum þegar verið er að þróa
atvinnustefnu til framtíðar. „Á tyllidögum
heyrum við stjórnmálamenn ræða um mik-
ilvægi þess að efla vísinda- og rannsókna-
samfélagið og gjarnan eru störf tengd sjáv-
arútvegi og jarðvarma nefnd til sögunnar.
Þessar greinar hafa á að skipa framúr-
skarandi fyrirtækjum sem hafa vaxið hér
heima og dafnað. Tækifærin eru einnig á
fleiri sviðum og ég sakna þess að heyra ekki
nefnd til sögunnar þau tækifæri sem eru
tengd heilbrigðiskerfinu og lyf- og líftækni-
vísindum.”
Jakob Falur Garðarsson, formaður Frumtaka, samtaka frumlyfjaframleiðenda á Íslandi.
Líftækni- og lyfjaiðnaðurinn á alþjóðavísu setur 15,1 prósent af veltu sinni til rannsókna og
þróunar. Hugbúnaður og tækni er sú atvinnugrein sem kemur næst með 9,5 prósent.
Ljósmynd/NordicPhotosGettyImages
Körlum boðið í Heilsusögu Íslendinga í Mottumars
Heilsusaga Íslendinga er langtíma rann-
sókn sem varpa mun ljósi á áhrif og
samspil nútíma lífsstíls, félagslegra að-
stæðna, streitu og erfða á heilsu. Stefnt
er að því að á næstu tíu árum taki
100.000 Íslendingar þátt í rannsókn-
inni. „Konur fá boð í tengslum við komu
í krabbameinsleit hjá Krabbameinsfé-
lagi Íslands en karlar fá opið boð um
þátttöku. Sem hluta af forprófun okkar
munum við á næstu vikum senda kynn-
ingarbréf til um þúsund karlmanna á
höfuðborgarsvæðinu eftir úrtaki úr þjóð-
skrá. Við vonum að þeir taki vel í boð
um þáttöku og skrái sig í rannsóknina
en eitt meginmarkmið Mottumars er að
minna karlmenn á að fylgjast vel með
eigin heilsu. Talið er að rannsóknin
muni á endanum verða mikilvægur liður
í því að auka þekkingu á áhrifum ýmissa
lífsstílsþátta og streitu á krabbameinsá-
hættu,“ segir Unnur Anna Valdimars-
dóttir, prófessor í faraldsfræði við Há-
skóla Íslands.
Þátttaka meðal kvenna hefur farið
fram úr björtustu vonum en í kringum
80 prósent þeirra kvenna sem boðin
var þátttaka hafa tekið þátt í forrann-
sókninni. Að sögn Unnar Önnu flétt-
ast í rannsókninni saman forvarnir og
vísindastarf því þátttakendur fá upplýs-
ingar og fræðslu um blóðþrýsting, lík-
amsþyngdarstuðul, lífsstíl og fleira eftir
því sem þurfa þykir. „Fólk er svo boðað
aftur á þriggja til fjögurra ára fresti svo
lengi sem það vill. Þannig gefst því kost-
ur á að fylgjast náið með þróun heilsu
sinnar og heilsufarsvísa eftir því sem
árin líða.“
Framkvæmd rannsóknarinnar er á
vegum Háskóla Íslands og Krabbameins-
félags Íslands og í virku samstarfi við
fjölda innlendra og erlendra aðila. Gangi
áætlanir eftir mun tæplega þriðjungur
landsmanna taka þátt á næstu 10 árum.
Í tengslum við
Mottumars
er fyrstu
karlmönn-
unum boðið
að taka þátt í
rannsókninni
Heilsusaga
Íslendinga.
Stefnt er að
því að á næstu
10 árum taki
um 100.000
þúsund manns
þátt.
Notkunarsvið: Fluconazol ratiopharm inniheldur fluconazol. Án ávísunar frá lækni er Fluconazol ratiopharm notað við sveppasýkingu í leggöngum af völdum gersveppsins Candida hjá konum sem áður hafa verið greindar með sveppasýkingu. Frábendingar: Ofnæmi fyrir
fluconazoli eða skyldum azól-lyfjum eða einhverju öðru innihaldsefni lyfsins. Samhliða meðferð með cisapridi, astemizoli, terfenadini, pimozidi, erythromycini eða quinidini. Gæta skal sérstakrar varúðar ef eftirfarandi á við: Í mjög sjaldgæfum tilvikum getur Fluconazol
ratiopharm valdið alvarlegum húðviðbrögðum með blöðrumyndun og húðlosi (Stevens-Johnson heilkenni). Ef húðútbrot koma fram á meðan á meðferð með Fluconazol ratiopharm stendur skal strax hafa samband við lækni, sem ákveður hvort nauðsynlegt sé að grípa til
frekari aðgerða. Samhliða meðferð með halofantrini eða terfenadini. Meðfædd eða áunnin breyting á starfsemi hjartans (lengingu QT bils). Samhliða notkun lyfja sem einnig geta lengt QT bilið á hjartalínuritinu, t.d. lyf við hjartsláttartruflunum í flokki IA eða III. Truflun í
jafnvægi blóðsalta, einkum minnkuð þéttni kalíums og magnesíums. Hægur hjartsláttur sem þarfnast meðferðar, hjartsláttartruflanir eða alvarleg hjartabilun. Meðganga og brjóstagjöf: Ekki skal nota Fluconazol ratiopharm á meðgöngu eða við brjóstagjöf. Skömmtun: Við
Candidasýkingu í leggöngum: Eitt Fluconazol ratiopharm 150 mg hylki í stökum skammti. Algengar aukaverkanir: Höfuðverkur, húðútbrot, kviðverkur, uppköst, niðurgangur og ógleði, breyting á lifrargildum. Lesið vandlega fylgiseðil sem fylgir lyfinu. SmPC: Maí 2013.
Fluconazol ratiopharm eitt hylki - stakur skammtur
árangursríkt
gott verð
einfalt
Sveppasýkingu í leggöngum
Einungis 1 hylki tekið um munn við
Fæst án lyfseðils í apótekum