Fréttatíminn - 24.01.2014, Page 2
Forsetinn opnaði
skrifstofu LS Retail í
Dubaí
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
opnaði í vikunni formlega nýja skrifstofu
LS Retail í Dubaí. Skrifstofan verður
miðstöð þjónustu og sölustarfs LS Retail
sem hefur um tveggja áratuga skeið
þróað hugbúnaðarlausnir fyrir versl-
anir og veitingarekstur og er leiðandi á
heimsvísu á sviði hugbúnaðarlausna og
þjónustu á grunni Microsoft Dynamics.
Þau svæði sem heyra undir skrifstofuna
í Dubaí eru Miðausturlönd, Afríka og
Indland. Dubaí er nú í öðru sæti á eftir
Lundúnum yfir borgir með hæst hlutfall
alþjóðlegra fyrirtækja í verslunar-
rekstri, samkvæmt skýrslu alþjóðlega
fasteignaþjónustufyrirtækisins CBRE.
„Meira en helmingur smásöluverslana í
Miðausturlöndum notar nú þegar lausnir
frá LS Retail og við höfum þannig tekið
þátt í uppgangi Dubaí í alþjóðasamhengi
og hyggjumst styrkja stöðu okkar til
framtíðar með þessari skrifstofu,“ segir
Magnús Norðdahl, forstjóri LS Retail.
Barnaspítalinn fær gjöf
frá landsliðskonum
Leikmenn kvennalandsliða Íslands í fót-
bolta og handbolta afhentu Barnaspítala
Hringsins 400.000 krónur að gjöf í gær.
Upphæðinni söfnuðu þær í góðgerðarleik
sem liðin léku á milli jóla og nýárs. Keppt
var í fótbolta og handbolta en vel var mætt
á viðburðinn.
Forsvarsmenn Barnaspítala Hringsins
afhentu landsliðskonunum við þetta
tækifæri þakkarskjal frá spítalanum og
höfðu á orði að peningarnir myndu nýtast
spítalanum vel.
Landsliðskonurnar Margrét Lára Viðars-
dóttir, Anna María Baldursdóttir, Elín Metta
Jensen og Rakel Hönnudóttir úr fótbolt-
anum og Guðný Jenný Ásmundsdóttir
og Hanna Guðrún Stefánsdóttir afhentu
gjöfina í gær.
Rauði krossinn sendir
föt til Hvíta Rússlands
Gámur með tæpum tíu tonnum af fatnaði
frá Rauða krossinum á Íslandi hefur verið
sendur til Hvíta-Rússlands til dreifingar
þar. Rauði krossinn sendir að jafnaði tvo
fatagáma á ári út í samstarfi við systur-
félag sitt í Hvíta-Rússlandi sem sér um að
koma fatnaðinum til fátækra barnafjöl-
skyldna og annarra skjólstæðinga þar í
landi.
Hérlendis hafa um 450 sjálfboðaliðar
unnið að verkefninu sem kallast Föt sem
framlag. Sjálfboðaliðarnir hafa útbúið
staðlaða ungbarna- og barnapakka með
hlýjum ullarflíkum, teppum og öðrum
fatnaði. Um 26 prjóna- og saumahópar
eru að störfum um allt land við að fram-
leiða í pakkana, auk þess sem valin eru
góð barna- og unglingaföt sem gefin eru í
fatagáma Rauða krossins. Tæplega 3.000
manns í borgunum Vitebsk og Migolev
fengu á síðasta ári föt og skólavörur frá
Rauða krossinum.
Rúmlega 21 þúsund
ríkisstarfsmenn
Alls starfa 21.102 manns hjá ríkinu sam-
kvæmt svari Bjarna Benediktssonar
fjármálaráðherra við fyrirspurn Guðlaugs
Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðis-
flokksins.
„Af þeim eru 1.149 skipaðir fyrir 1. júlí
1996. Eftir þann tíma er enginn lengur
skipaður ótímabundið heldur aðeins til
fimm ára, að undanskildum hæstaréttar-
og héraðsdómurum, og 37 ráðnir til starfa
ótímabundið án gagnkvæms uppsagnar-
frests,“ segir ennfremur í svarinu.
Á síðasta ársfjórðungi nýliðins árs létust
570 einstaklingar og hafa aldrei látist
fleiri einstaklingar á einum ársfjórðungi
frá því að Hagstofan tók að birta mann-
fjölda eftir ársfjórðungum árið 2010. Á
sama tíma fæddust 1.060 börn, en það
eru nokkru færri börn en fæddust á 4.
ársfjórðungi 2012. Þá fæddust 1.110
börn.
Í lok síðasta ársfjórðungs 2013 bjuggu
325.620 manns á Íslandi, 163.280 karlar
og 162.340 konur. Landsmönnum fjölg-
aði um 610 á ársfjórðungnum. Erlendir
ríkisborgarar voru 22.690 og á höfuð-
borgarsvæðinu bjuggu 208.710 manns.
Á fjórðungnum fluttust 120 einstak-
lingar til landsins umfram brottflutta.
Brottfluttir einstaklingar með íslenskt
ríkisfang voru 25 umfram aðflutta, en
aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 140
fleiri en þeir sem fluttust frá landinu.
Fleiri karlar en konur fluttust frá land-
inu.
Noregur var helsti áfangastaður
brottfluttra íslenskra ríkisborgara en
þangað fluttust 170 manns á 4. árs-
fjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og
Svíþjóðar fluttust 350 íslenskir ríkis-
Mannfjöldi Í árslok bjuggu 325.620 Manns á Íslandi
Aldrei látist fleiri einstaklingar á einum ársfjórðungi
Um áramót
bjuggu 325.620
manns hér á
landi. Lands-
mönnum fjölgaði
um 610 á síðasta
fjórðungi ársins
2013. Alls létust
570 einstaklingar
á sama tíma og
hafa aldrei fleiri
andast á einum
fjórðungi.
borgarar af 580 alls. Af þeim 720 erlendu
ríkisborgurum sem fluttust frá landinu
fóru flestir til Póllands eða 180 manns.
Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar
komu frá Danmörku, 160, frá Noregi
komu 120 og 100 frá Svíþjóð, samtals
380 manns af 560. Pólland var uppruna-
land flestra erlendra ríkisborgara en
þaðan fluttust 310 til landsins af alls 860
erlendum innflytjendum. Bandaríkin
komu næst, en þaðan fluttust 50 erlendir
ríkisborgarar til landsins.
Allar tölur eru námundaðar að næsta
tug. -jh
Þ egar ný lög um velferð dýra og búfjár-hald tóku gildi um síðustu áramót og málaflokkurinn var fluttur frá sveitar-
félögum til Matvælastofnunar voru sex sér-
fræðingar í velferð og aðbúnaði dýra ráðnir
til starfa víðs vegar um landið. Einn þeirra
er Óðinn Örn Jóhannsson sem sinnir eftirliti
í Suðurlandsumdæmi. Árið 2007 varð hann
uppvís að slæmri meðferð á stóðhestinum Blæ
frá Torfunesi sem hann var með á leigu til und-
aneldis. Í lok dvalarinnar hjá Óðni var Blær í
mjög slæmu ástandi og sagði meðal annars í
skýrslu dýralæknis að hægt hafi verið að sjá
nær öll rif hestsins og að hálsinn hafi verið
eins og á veturgömlu trippi, auk þess sem bak-
og lendarvöðvar voru mjög rýrir. Jafnframt
kom þar fram að ljóst væri að ekki væri veik-
indum um að kenna heldur alfarið vanfóðrun.
Baldvin Kr. Baldvinsson, hrossaræktar-
bóndi í Torfunesi og eigandi Blæs, segist að-
spurður undrandi á ráðningunni hjá Matvæla-
stofnun og að á sínum tíma hafi einnig komið
sér á óvart að Óðinn hafi fengið að halda þá-
verandi starfi sínu við búfjáreftirlit og forð-
agæslu á vegum Bændasamtakanna hjá sveit-
arfélögum á Suðurlandi.
Haft var samband við Óðin við vinnslu frétt-
arinnar en hann vildi ekki tjá sig um málið. Í
frétt á miðlinum Hestafrettir.is frá 21. septem-
ber 2007 er haft eftir Óðni að hann tæki fulla
ábyrgð á slæmu fóðurástandi Blæs frá Torf-
unesi og að hann hafi talið ástæðuna vanmat
sitt á holdafari hestsins.
Í skriflegu svari frá Stefáni Guðmundssyni,
forstöðumanni rekstrar- og mannauðssviðs
Matvælastofnunar, við fyrirspurn Fréttatím-
ans kemur fram að í ráðningarferlinu hafi Mat-
vælastofnun skoðað mál Blæs frá Torfunesi en
eftir jákvæða umsögn fyrri vinnuveitenda hafi
Óðinn verið metinn hæfasti umsækjandinn um
auglýst starf í Suðurlandsumdæmi. Í svarinu
segir einnig að þegar málið fór til Landbúnað-
arstofnunar árið 2007 hafi verið gerðar alvar-
legar athugasemdir við fóðurástand og um-
hirðu hestsins en ekki þótt ástæða til að ætla
að hann hefði orðið fyrir varanlegum skaða og
lauk því málinu án frekari aðgerða.
„Ég sé eftir því að hafa ekki kært meðferðina á
Blæ til lögreglu á sínum tíma,“ segir Baldvin sem
hélt það vera í réttum farvegi þar sem dýralæknir
hafi sent skýrslu um málið til Matvælastofnunar.
Baldvin segir það fjarri lagi að Blær hafi náð fullri
heilsu. „Lengi var andleg líðan Blæs ekki söm.
Það heyrðust í honum stunur sem var honum
ólíkt. Í nokkur ár var hann mjög kvíðinn en hefur
náð ágætu jafnvægi núna en skepnur ná sér aldrei
að fullu eftir svona meðferð.“
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
dýravelferð uMdeild ráðning sérfræðings hjá Matvælastofnun
Hæfasti umsækjandinn
svelti stóðhest árið 2007
Matvælastofnun réð á dögunum sérfræðing í velferð og aðbúnaði dýra í Suðurlandsumdæmi sem árið
2007 viðurkenndi slæma meðferð á stóðhestinum Blæ frá Torfunesi sem var í kjölfarið vart hugað líf.
Matvælastofnun fór yfir málið í ráðningarferlinu en mat sérfræðinginn hæfasta umsækjandann eftir
jákvæða umsögn frá fyrri vinnuveitanda. Eigandi hestsins furðar sig á ráðningunni.
Í skýrslu dýralæknis sem gerð var eftir dvöl hestsins í umsjón Óðins Arnar Jóhannssonar sagði meðal
annars að sjá mætti nær öll rif hestsins og að hálsinn væri eins og á veturgömlu trippi, auk þess sem bak-
og lendarvöðvar væru mjög rýrir. Ljóst var að ekki væri veikindum um að kenna heldur alfarið vanfóðrun.
Myndin að neðan
var tekin þegar
Blær kom til
dvalar hjá Óðni
Erni Jóhannssyni
haustið 2007, við
góða heilsu, en í
lok dvalarinnar
var honum vart
hugað líf vegna
vanfóðrunar.
Mynd/Anna Fjóla
Gísladóttir
Hægt
var að
sjá nær
öll rif
hestsins.
2 fréttir Helgin 24.-26. janúar 2014