Fjárfesting 1945-1989 - 01.06.1991, Side 36

Fjárfesting 1945-1989 - 01.06.1991, Side 36
5.3.6 Annar iðnaður. Hér er talinn annar iðnaður en stóriðja og vinnsla sjávarafurða. Hlutfall annars iðnaðar af heildarfjárfestingu varð hæst árið 1953, er áburðarverk- smiðjan var í byggingu, um 15%. Mestar hafa framkvæmdir orðið á árunum 1984-1988. Á þessum árum voru framkvæmdir í vinnslu landbúnaðarafurða með meira móti. í þessari grein, án vinnslu landbúnaðarafurða, voru fullgerðar byggingar um 270 þús. m' að meðaltali þessi ár, einsogfram kemur í töflu 7.5. Meiri hluti framkvæmda í öðrum iðnaði árin 1984—1988 var vélbúnaður. Hlutfall annars iðnaðar af heildarfjárfestingu var á þessum árum 10-12%. 5.3.7 Flutningatæki. Hlutfall flutningatækja af heildarfjárfestingu sveiflast mikið frá ári til árs. Hæst er hlutfallið árið 1971, 17%. Önnur ár með hátt hlutfall er 1964 með 14/2% og árin 1955 og 1965 með 12%. Lægst varð hlutfallið 1% 1952 og 2% 1969. Fjárfesting er í hámarki 1971, en það ár voru gerð mikil flugvélakaup. 5.3.8 Verslunar-, skrifstofu-, gistihús o.fl. í þessari grein eru framkvæmdir mestar á árunum eftir 1980. Hámarki ná framkvæmdir á árinu 1987. Höfðu þær þá nær þrefaldast frá árinu 1980. Árið 1987 nam hlutfall af heildarfjárfestingu um 1114%. Minnstar voru fram- kvæmdir á árunum 1945-1959, en á þessum árum voru framkvæmdir háðar leyfaveitingum. Fjárfestingarhöftunum var aflétt á árinu 1960. Á árunum eftir 1959 varð mikil aukning í byggingu verslunar- og skrifstofuhúsnæðis. Aukning bygginga stóð að miklu leyti í sambandi við tvennt. Annars vegar þann skort á húsnæði af þessu tagi, sem rekja mátti til langvarandi fjárfesting- arhafta. Hins vegar þörf á nýju húsnæði vegna aukinnar þjónustu, einkum í nýjum hverfum stækkandi kauptúna og kaupstaða. í töflu 7.5 kemur fram fullgert rúmmál verslunar-, skrifstofu-, gistihúsa o.fl. Þar kemur greinilega fram aukningin sem varð í þessari grein eftir 1959. Hámark fullgerðs rúmmáls var árið 1987, er fullgerðir voru um 500 þús. m\ eins og fram kemur í töflu 7.5. Stærsta einstaka framkvæmdin var Kringlan. Auk þess eru vörugeymslur taldar til ódýrra verslunarbygginga. Fullgert rúmmál vörugeymslna og geyma er talið saman. 5.3.9 Ýmsar vélar ogtæki. Hér er um að ræða vinnuvélar hvers konar, skrifstofuvélar og tölvubúnað. Mest hefur verið keypt af þessum vélbúnaði hin síðari ár. Kaup þessi ná hámarki á árunum 1984-1988. Þessi ár nam hlutfall af heildarfjárfestingu 7-8%. Fjárfestingin á árinu 1987 er.um þaðbil þrefalt meiri en hún var á árinu 1980. Langmest hefur aukningin orðið í kaupum á tölvubúnaði.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Fjárfesting 1945-1989

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjárfesting 1945-1989
https://timarit.is/publication/1062

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.