Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1948, Qupperneq 6

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1948, Qupperneq 6
2 SVEITARSTJÚRNARMÁL Frá þingsetningunni. það síðasta, þar sem hvert sveitarfélag ætti sinn fulltrúa. Síðan sneri hann máli sínu til gesta þingsins, og bauð há velkomna. Hann minntist sérstaklega Islands, sem nú hefði sent fulltrúa í fyrsta sinn. Erlendir gestir, er sátu þingið voru þessir: Frá Danmörku: Edvard Sörensen, fólksþingmaður. M. Edelberg, fulltrúi. Kai Jensen, fólksþingmaður. A. Wamberg, skrifstofustjóri. Frá Finnlandi: Martti Mikkola, verkfræðingur. V. Linni, deildarstjóri. Gustaf Grönlund, magister. Frá Noregi: Rudolf Hedemann, form. norska héraðssambandsins. Kjell Evers, forstjóri. Frá íslandi: Guðmundur Gestsson, oddviti Sel- tjarnarhrepps. Að lokum bauð hann sérstaklega vel- kominn forsætisráðherrann, Tage Frland- er, og bað hann að setja þingið. Þá tók forsætisráðherrann til máls, og vék m. a. að því, að aukinn framlög ríkis- ins til hreppanna, væri þeim að visu fjár- hagslegur stuðningur, en- hætta væri á, að það skerti sjálfsákvörðunarrétt þeirra. Þá gat hann þess, að auk erfiðleika, sem að steðjuðu á venjulegum tímum, bættist nú við óvissa og öryggisleysi i öllum greinum, skortur á efni og vinnuafli. Bygging skóla, sjúkrahúsa, ibúðarhúsa, einnig vatnsveitur og frárensli, væru fram- kvæmdir, sem koma þyrfti í verk, og ekki væri hægt að fresta, en samt yrði rikið að heimta sparnað. Sænskir gestir voru allmargir, og má

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.