Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1948, Side 26

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1948, Side 26
22 S VEITARSTJÓRNARMÁL neytið, að nefndin frestaði störfum til næsta hausts, einnig með tilliti til þess, að þá kynni að liggja fyrir staðbetri vitneskja en áður um reynslu nágrannalandanna um sveitarskattamál. Nefndin kom svo saman að nýju í Reykjavík hinn 30. sept. 1947 og tók upp sömu starfstilhögun og áður. Störfum nefndarinnar var lokið 4. desember s. á., og hafði hún þá alls haldið 76 fundi. Það skal tekið fram, að skrifstofustjóri félagsmálaráðuneytisins, Jónas Guð- mundsson, sem jafnframt hefur eftirlit sveitarfélaga með höndum, hefur haft sam- vinnu við nefndina um megindrættina í verkefnum hennar og að sjálfsögðu veitt henni ýmsar mikilsvarðandi upplýsingar og leiðbeiningar í starfinu. Framar því, sem nú hefur verið sagt um starfsframkvæmd nefndarinnar, vill hún taka þetta fram um verkefnið í heild sinni. Sérstök löggjöf um útsvör á sér ekki langa sögu að baki hér á Islandi. Allt fram á árið 1926 voru öll lagaákvæði viðvíkjandi útsvarsálagningu utan kaupstaða falin í nokkrum greinum sveitarstjórnarlaganna frá 10. nóv. 1905, ásamt minni háttar breytingum, sem á þeim höfðu verið gerðar á tímabilinu, sem í milli lá. En jafnhliða þessum lögum voru og í gildi ýmis ákvæði varðandi útsvarsálagningu í sérstökum lögum um bæjarstjórn fyrir hvern kaupstað. Voru þau ærið mismun- andi innbyrðis, enda sett á ýmsum tímum, en öll voru þau um margt frábrugðin ákvæðum sveitarstjórnarlaganna, sem í raun réttri tóku ekki til kaupstaðanna nema um almennustu atriði. Einkum voru ákvæðin um álagningarrétt atvinnusveitar mjög sundurleit í umdæmunum, og olli það óánægju og misklíð, sem vonlegt var. Með útsvarslögunum frá 1926 voru öll sérákvæði fyrir einstök umdæmi felld niður og ein lög látin gilda fyrir allt landið. Auk þeirrar samræmingar voru þær breytingar gerðar mestar á lögunum, að öll sveitarfélög skyldu hafa almanaksárið að reikningsári, og svo hitt, að með tiltölulega fáum undantekningum skyldi heim- ilissveit gjaldþegns ein hafa rétt til að leggja á hann útsvar. Aftur á móti skyldi skipta útsvörum þeirra gjaldþegna, sem stunduðu — og í vissum tilfellum ef þeir ráku — atvinnu utan heimilissveitar sinnar, milli hennar og atvinnusveitar. Þó skyldi heimilissveitin eiga allan álagningarréttinn, ef tekjur aðila í atvinnusveit náðu ekki vissu marki, og ávallt skyldi heimilissveit eiga nokkurn hluta þeirra út- svara, sem til skipta komu, jafnvel þó gjaldþegn hefði ekki unnið fyrir neinum tegkjum þar á útsvarsárinu. Þessi nýbreytni, að skipta útsvörum milli sveita, olli miklum deilum á Alþingi 1926. Var þvi spáð, sem að verulegu leyti hefur og komið á daginn, að þessi til högun mundi reynast seinvirk og vafningasöm og skapa óvissu um, í 1—2 ár. hverjar yrðu endanlegar tekjur sveitarsjóðanna af útsvörum, þar sem búast mátti við, að ýmislegur ágreiningur um skiptinguna yrði að ganga undir æðri úrskurð. Fyrir því þingi lágu einnig tillögur um skiptingu álögustofna þeirra gjaldþegna, sem ynnu utan heimilissveitar sinnar, milli hennar og atvinnusveitar, þannig að báðar hefðu álögurétt, og skiptist fylgi þingmanna nær að jöfnu um þessar tvær leiðir. Öllu dýpri ágreiningur kom fram i umræðum þessum um, hver væri réttur atvinnusveitar til útsvarsgreiðslu yfir höfuð, og þá hversu langt hann skyldi ná. Hafði hann verið lítt takmarkaður af fyrri löggjöf, einkum í sérákvæðum ýmissa kaupstaða um útsvör, þeim er fyrr getur, og þvi þegar komin á nokkur venja i þessu efni. Þó hlaut réttur heimilissveitar þá viðurkenningu í löggjöf þessari, svo sem áður er greint, að útsvör á lágar tekjur komu ekki til skipta og að hún fær aldrei minna en ýj hluta af álagðri útsvarsupphæð.

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.