Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1948, Qupperneq 14

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1948, Qupperneq 14
ÍO SVEITARSTJÓRNARMÁL fánar í óvenjulega stóru broti. Við íslenzku fulltrúarnir, sem mættir vorum, með sendifulltrúa okkar í fararbroddi, fundum til talsverðs þjóðarmetnaðar, er fáni okkar var dreginn að hún, vinstra megin við fána Frakklands, næst aðalinngangi sýn- ingarhallarinnar, en gríski fáninn á hægri hönd þeim franska. Fyrst kom okkur í hug að Frakkar hefðu með þessu viljað líta aftur í aldir og heiðra þannig þessar tvær menningarþjóðir í norðri og suðri, en sennilega mun ástæðan vera nærtækari, og eiga rót sína að rekja til meðfæddra „diplomatiskra" hæfileika Frakka í því að móðga ekki hinar stærri þjóðir, .sem tóku þátt í sýningunni, vegna niðurröðunar þjóðarfána, en enginn gat orðið afbrýði- samur gagnvart Islendingum og Grikkjum. Sýningunni var skipt niður í tvær höfuð deildir, aðaldeild og franska deild. Á Signubökkum utan við Grand Plaice var komið fyrir margvíslegum byggingum franska byggingariðnaðarins á allstóru svæði niður með ánni. Þar voru sýnd verksmiðjuunnin smáhús, byggingarefni og húsasmíði alls konar, úr steini og timbri. Sjálf sýningarhöllin var reist fyrir heimssýninguna 1889 og er um margt óhentug til sýningar þessarar, þannig að heildaryfirlit fáist. Hið ytra er byggingin úr rammgerum höggnum steinbjörgum, prýdd að þeirra tíma venju, og ekkert til sparað um útflúr. Inni hvílir gifurleg gler- hvelfing á járnsúlum og járngrindum margs konar, en járnsvalir meðfram veggj- unum. Sannur frumskógur járnatækni síð- ustu aldar. Hæð undir glerhjálminn er 40 metrar, þannig að turn kaþólsku kirkjunn- ar í Reykjavík gæti staðið þar tvíreistur. Yfirarkitekt sýningarinnar, André Her- mant, tókst mjög vel að hylja galla sýn- ingarhallarinnar með fögrum en einföld- um ramma innan húss, sem dró úr loft- hæð, og gerði sýningarsvæðið aðlaðandi. Eftir endilöngum salarkynnunum var byggð súlum vörðuð gata, sem fékk heitið „Braut þjóðanna,“ en út frá henni var hinum einstöku sýningardeildum fyrir- komið. Af erlendum þátttakendum bar mest á sýningarskálum Belgíu og Svisslands, bæði að stærð og sýningartækni. Sýningardeild Belgíu var sögð kosta 7 milljónir belgískra franka, eða rúma 1 milljón ísl. króna. Eitthvað líkt mun sýning Svisslands hafa kostað. Sýningar þessarra landa báru þess glöggt vitni, að ekkert hafði verið til spar- að, og húsameisturum gefið frjálst olnboga- rúm til þess alls, sem þeim datt í hug að sýna. Þó virtist mér svissneski skálinn betur ná tilgangi sínum í því, sem til var ætlast, og yfirarkitektinn svissneski (Jean Tschumi) ná fullum tökum á sýningar- efninu. Aftur á móti var minna um raunhæfa hluti í skála Belgíu, þótt fagur væri á- sýndum. Mátti þar sjá dýrindis steintígla- gólf, marmaraveggi, súlur og umgerðir í tilhaldssali, eirsúlur og dýrindis vegg- skreytingar. Allt þetta virtist nokkuð falla út úr umhverfinu, þótt augnayndi væri að, ekki hvað sízt þegar um var að ræða gjaldeyrisfátækt flestra þátttakandi þjóða, og að öll þessi dýrð átti aðeins' að standa í rúman mánuð. Að vísu sögðu Belgir að þessi sýning yrði endurtekin sem ferða- sýning í heimalandinu, en hún leit alls ekki út fyrir að vera létt í vöfum, eða hentug til flutnings staða í milli. I skipulagsuppdráttum höfðu Belgir þó ýmsa góða hluti fram að færa, og mun að því vikið síðar. Svissntski skálinn sýndi fegurð fjalla- landsins, að nokkru leyti í auglýsingar- skyni fyrir ferðamenn, en jafnframt á mjög glöggan og fullkominn hátt, skipulag bæja og byggða, húsagerð og híbýlakost, þar sem sýnd voru lærdómsrík sýnishorn innréttinga og húsbúnaðar. Ég hef tekið þessar tvær þjóðir til sam- anburðar sérstaklega vegna þess hversu áberandi þær voru, en sýningarskálar þeirra stóðu hlið við hlið í sýningarhöll- inni, og voru hvor með sínu ólíka svip- bragði. Sýningardeild Ítalíu skar sig úr öllum deildum vegna nákvæmni í því að fylgja

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.