Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1948, Side 20

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1948, Side 20
i6 S VEIT ARSTJ ÓRNARMÁL sjóði í skauti náttúrunnar, auðug fiskimið og blómlegan búskap. Helztu afurðirnar eru fiskur og lýsi, ennfremur ull o. fl. íslendingar hafa eignast góðan markað fyrir afurðir sinar, þannig að íbúar lands- ins hafa getað lifað menningarlífi. Með þessarri litlu þjóð, sem aðeins telur um 130.000 manns, þekkist ekki ólæs maður, og hvergi mun hlutfallslega prentað meir af bókum, tímaritum og hlöðum en þar. Þar er einnig arkitektinn, meistari fag- urra lista, í hávegum hafður. Því ber ljóst vitni hin tiltölulega smáa sýningardeild. Skýrslur um fólksfjölgun í hæjum, eink- um i höfuðborginni, Reykjavík, sýna að- streymi úr sveitunum. 1 Reykjavík eru um 50.000 ibúar, nærri helmingur allra landsmanna, og ríkja þar húsnæðisvand- ræði eins og víðar. Skipulags- og byggingarnefnd er þar starfandi, og arkitektarnir virðast reyna að leysa vandamálin með nýtízku aðferð- um og öruggri kunnáttu, sem sjá má af sýnishornum fjölbýlishúsa, sambygginga og einnar hæða húsum í garðahverfum. Efniviður til húsagerðar er að mestu innfluttur, en Islendingar hafa heita vatn- ið til upphitunar húsa, sem gera þá öf- undsverða. Vatnið kemur 90 gráðu heitt úr iðrum jarðar, óþrjótandi forðabúri eld- fjallalandsins, og hitar upp heilar borgir, svo sem höfuðborgina. Sjóðandi heitt vatn streymir án afláts um einstök hús, opin- berar byggingar og vermihús, en í vermi- húsum víðs vegar um landið eru ræktaðar matjurtir allan ársins hring, en til dægra- styttingar jafnframt suðrænir ávextir, svo sem vínber, melónur og jafnvel bananar. Gerist þetta rétt við strendur Grænlands, svo að segja má með sanni að ísland sé land öfga og andstæðna. ' Verkamannabústaðir þeir, sem á sýn- ingunni eru, bera hinum lýðræðislega anda þjóðarinnar gott vitni. Fyrirkomulag þeirra er mjög athyglisvert, og vistarver- um öllum mjög vel fyrir komin innan- húss, en góður garður utanhúss. Er það allt með líkum svip og hjá nágrönnunum á Norðurlöndum, bæði að því er snertir meðferð efnis og allra þæginda innanhúss í smáu og stóru. Einnig gætir mjög sömu ánægju og hjá hinum frændþjóðunum, af blómum og jurtum í híbýlaprýði. Á sýningunni getur einnig að líta mynd- ir úr skipulagi Reykjavikur, með opin- berum byggingum, kirkjum, þinghúsi, leikvangi og háskóla. Athugið hvað það kostar ein 130.000 manns, að halda uppi heilum háskóla, og þá munuð þér skilja enn betur menningarþorsta þessarrar þjóð- ar. Fimm hæða fjölbýlishúsin, sem þarna eru sýnd virðast mjög fullkomin, og at- hyglisvert er það, hvernig svölum utan- húss er komið fyrir, svo mestrar sólar verði notið, en sumrin norður þar eru stutt. Þessi aðlögun að loftslagi, sem víða kemur greinilega í ljós, er einkar merki- leg, og virðist hafa heppnast mjög vel. Löng vetrarkvöldin hafa kennt Islend- ingum að meta bóklestur. Á hverju heim- ili er lítið bókasafn. Bætt lifsskilyrði hafa gefið Islendingum möguleika þess að klæðast vel og smekklega. Hátíða- og þjóð- búningur kvenna er mjög fagur — jafn- vel vinnuföt sildarstúlkunnar er smekk- legur búningur með persónulegum blæ. List í klæðaburði er, ekki síður en húsa- gerðarlistin, vottur um harmóníska lífs- ánægju og fagurfræðilegan þroska. Þér skuluð athuga vel þessa litlu deild, þessa litla lands, og farið síðan .... til Is- lands. Ibúarnir eru þar vingjarnlegt fólk, landið fagurt, blómlegar athafnir og að- búð manna þægileg.“ Myndin á kápunni er af Svínfelli í öræfum.

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.