Sveitarstjórnarmál - 01.06.1948, Page 37
SVEITARSTJÓRNARMÁL
33
7. Um sérákvæði fyrir hreppa, þar sem verulega fleiri verkefni til fullnægingar
almennum þörfum falla undir sveitarsjóðsrekstur en í öðrum, enda sé útsvars-
þungi þar meiri að tiltölu við tekjur og eignir.
8. Um aðferð við útreikning útsvara.
f ákvæðum undir tölulið .1—3 sé veitt hæfilegt svigrúm til mismunar eftir á-
stæðum í hreppum um breytilega álagningarþörf, í hlutfalli við tekjur og eignir.
Félagsmálaráðuneytið gefur út nánari fyrirmæli um setningu slíkra samþykkta
og veitir að öðru leyti þær leiðbeiningar og upplýsingar þeim viðvíkjandi, sem
föng eru á.
15- gr-
Nefndin gerir skrá yfir alla þá, er hún leggur útsvör á, í stafrófsröð eða eftir
boðleið, og útsvarsupphæð fyrir aftan hvert nafn, enda skal nefndin undirrita
skrána, þá er henni er lokið.
i6. gr.
Niðurjöfnunarnefnd er ályktunarfær, ef meira en helmingur nefndarmanna
er á fundi. Skylt er öllum nefndarmönnum að greiða atkvæði, nema mál varði sjálfa
þá, maka þeirra, frændur þeirra að feðgatali eða niðja eða systkin og jafnnána að
mægðum. Afl atkvæða ræður úrslitum. Nú eru atkvæði jöfn, og skal þá sá hlutinn
ráða, sem formaður fylgir.
U- gr-
Aðalniðurjöfnun útsvara fer fram á tímabilinu febrúar—maí, að báðum mán-
uðunum meðtöldum, eftir nánari ákvörðun sveitarstjórnar. Þó getur íáðherra heim-
ilað sveitarstjórn, eftir beiðni hennar, að láta aðalniðurjöfnun útsvara fara fram
síðar á árinu, ef ríkar ástæður mæla með því. Utsvarsskrá skal liggja frammi á
þingstað hrepps eða öðrum hentugum stað í hreppnum, en í kaupstöðum i skrif-
stofu bæjargjaldkera eða öðrum hentugum stað, 4 vikur í hreppum, en 2 vikur í
kaupstöðum, enda skal auglýsa framlagning skrár í blöðum á staðnum eða með
öðrum hætti.
i8. gr.
Rétt er gjaldþegni að finna að útsvari sínu eða að því, ef honum hefur verið
sleppt af skrá, eða að útsvör annarra gjaldþegna séu of lág, samanborið við hans,
eða að öðrum gjaldþegnum hafi verið sleppt af skrá. Kærur skulu bréflegar vera.
stílaðar til niðurjöfnunarnefndar og koma í hendur formanns hennar áður lðinn
er sá timi, er niðurjöfnunarskrá á að liggja frammi. Skal nefndin úrskurða kærur
svo fljótt, sem unnt er og ekki síðar en 14 dögum eftir kærufrest. Nefnd er heimilt
að breyta útsvörum bæði til hækkunar og lækkunar, enda hafi aðila verið send til-
kynning um það, að annar gjaldþegn hafi borið sig saman við hann, eða að nefndin
hafi í hyggju að hækka útsvar hans, enda þótt enginn gjaldþegna hafi borið sig
saman við hann. Enn fremur er heimilt að hækka útsvar kæranda, enda þótt hann
hafi kært það til lækkunar.
Nefndin skal jafnan, svo fljótt sem þess er kostur, senda aðila tilkynningu,
ef hún tekur hann á skrá samkvæmt kæru eða breytir útsvari gjaldþegns, eða ef
kæru er ekki sinnt.
Ef útsvari gjaldþegns er breytt samkvæmt þessari grein, er honum heimilt að
kæra það fyrir yfirskattanefnd, enda þótt hann hafi ekki kært til niðurjöfnunar-
nefndar.