Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1948, Qupperneq 41

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1948, Qupperneq 41
SVEITARSTJÓRNARMÁL 37 Kaupgreiðanda er skylt að tilkvnna sveitarstjórn jafnskjótt og utansveitar- maður ræðst til vinnu hjá honum. Skal þar fram tekið fullt nafn mannsins, heimilisfang hans í dvalarsveit, lögheimili, fæðingardagur og ár. i. Kaupgreiðandi, sem skyldur er að halda eftir af kaupi samkvæmt því, er í grein þessari segir, skal við hverja útborgun, þar með taldar hvers konar greiðslur upp í kaup, draga af kaupi útsvarsgjaldanda fjárhæð, er nægir til greiðslu sam- kvæmt a-lið og heimilt er að draga af kaupi samkv. e- og f-liðum, svo og 10% af kaupi daglaunafólks, þó ekki af lægri kaupupphæð en 100 krónum, og skila sveitarstjórn því, sem þannig er haldið eftir, innan sex virkra daga frá útborg- unardegi, og er sú greiðsla bindandi fyrir útsvarsgjaldandann. Nú er kaup greitt að einhverju leyti í öðru en peningum, svo sem með fæði, húsnæði eða öðrum hlunnindum, og skulu þá þessi hlunnindi talin með kaupgreiðslu á því verði, sem þau eru almennt metin til skatts á hverjum stað. j. Nú hættir útsvarsgreiðandi að taka kaup hjá kaupgreiðandanum, er krafinn hefur verið um greiðslu upp í útsvar hans, áður en umkrafin útsvarsskuld er að fullu greidd, og skal þá tafarlaust tilkynna sveitarstjórn brottför útsvarsgreið- anda. k. Útsvarsgjaldandi og kaupgreiðandi mega ekki slíta vinnusamningi fyrir það eitt, að krafizt hefur verið útsvarsgreiðslu af kaupi gjaldanda. l. Ef kaupgreiðandi 1. vanrækir að láta sveitarstjórn í té umkrafðar skýrslur og upplýsingar um útsvarsgjaldendur innan tiltekins frests, 2. greiðir útsvarsgjaldanda kaup án þess að halda eftir þeirri fjárhæð, sem skj-lt er samkv. þessari grein. 3. skilar eigi til sveitarstjórnar eða umboðsmanna hennar, svo sem fyrir er mælt i i-lið, 4. tilkynnir ekki brottför útsvarsgreiðanda, svo sem segir í j-lið, þá ábyrgist hann sem geymslufé þá fjárhæð, sem var haldið eftir hjá út- svarsgjaldanda upp í skuld hans,en sem eigin útsvarsskuld það, sem halda hefði mátt eftir, ef kaupgreiðandi hefði ekki vanrækt skyldur þær, sem hon- um bar að rækja samkvæmt þessari grein. Má gera lögtak hjá kaupgreiðanda til tryggingar þesum skuldum, eftir sömu reglum og gera hefði mátt lögtak hjá útsvarsgjaldanda sjálfum. m. Útsvarsgjaldandi, sem ofgreitt hefur útsvar til kaupgreiðanda samkv. þessari grein, á rétt til endurgreiðslu beint úr sveitarsjóði, hvort sem kaupgreiðandi hefur greitt sveitarsjóðnum útsvarið eða ekki. n. Sveitarstjórn setur nánari reglur um innheimtu útsvara eftir þessari grein. 26. gr. Á sama hátt og með sömu viðurlögum og í 25. gr. segir getur sveitarstjórn eða innheimtumaður, er hún setur fyrir sig, krafizt útsvarsgreiðslu af kaupi gjaldþegns hjá kaupgreiðanda í öðru sveitarfélagi svo og skýrslna um starfsmenn, sbr. g- og h-lið, þó ekki með almennri auglýsingu. 27- gf- Hjón bera ábyrgð á útsvarsgreiðslu hvors annars, enda búi þau saman, þegar niðurjöfnun fer fram. 28. gr. Umboðsmaður erlends tryggingarfélags ber ábyrgð á útsvari þess, eins og það væri sjálfs hans útsvar.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.