Sveitarstjórnarmál - 15.12.1970, Qupperneq 44
Vínnuhælið á Kvíabryggju lengst til vinstri á mynd-
inni, en nýtt forstöðumannshús fyrir míðju. Staður-
inn er í fögru umhverfi. Hægra megin á myndinni
rís Kirkjufellið tilkomumikið, en handan þass er
Grundarfjörður. Undir því er markað fyrir garði, sem
hlaðinn er vegna undirbúnings fiskeldis í stórum
stíl.
kemur til álita, þar sem landið allt er orðið eitt
innheimtusvæði, hvort innheimtustjóri eða íor-
stjóri Innheimtustofnunar eigi ekki að hafa
fógetavald. Mál þetta er þess eðlis, að um það
mætti segja margt, en það verður ekki gert hér.
Ég geri ráð fyrir, að þegar forstjóri Innheimtu-
stofnunarinnar ákveður lögtök úti um lands-
byggðina, þá verði heilu landshlutarnir teknir í
sömu ferðinni, ef til vill 40—50 lögtök. Þá er
tímafrekt að vera háður hinum staðarlegu fóget-
um, og væri þá æskilegt, að hann væri það sjálf-
ur. Ég er því fylgjandi, að forstjórinn fái fógeta-
vald — það auðveldar innheimtuna, en skapar
enga hættu, hvorki fyrir skuldara eða réttar-
öryggið.
Lengsta vistun 3 mánuðir
í 4. tl. er það nýmæli, að eigi megi úrskurða
barnsföður til vistar á liæli lengur en 3 mánuði
í fyrsta skipti, og er það af réttlætisástæðum
gagnvart skuldara. Sett verði ný lög um vistun
á hæli.
Kyrrsetning skuldara
Þá er nýmæli í 5. tl., }oar sem innheimtustofn-
250 un getur krafizt þess, að meðlagsskuldari verði
kyrrsettur, ef ástæða er til að ætla, að liann
liaíi í hyggju að hverfa af landi brott.
Sarns konar ákvæði er í dönskum lögum, og
hefur mér verið sagt, að það hafi gefizt vel þar
— ekki til að útiloka það, að menn færu úr
landi, heldur til að stuðla að því, að meðlags-
skuldarar semdu um skuldir sínar, settu trygg-
ingar o. s. frv., áður en þeir héldu af landi
brott.
Hér að framan rakti ég nokkuð, hvernig inn-
lieimtufyrirkomulagið er hjá innheimtudeild
borgarsjóðs í dag og nefndi þá nokkra ágalla á
innheimtukerfinu. Ég er samþykkur þessu frum-
varpi, þar sem það bætir úr þessum ágöllum,
og ég er sannfærður um, að verði frumvarpið
að lögum og framkvæmdir farast vel úr liendi,
þá mun innheimta meðlaga batna mjög á ís-
landi.
Jákvæðara
almenningsálit
Ef landið verður eitt innheimtusvæði og inn-
heimtan undir einni stjórn, þá yrði liægt að
vinna að ýmsum verkefnum innheimtunni til
SVEITARSTJÓRNARMÁL