Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 15.12.1970, Blaðsíða 39

Sveitarstjórnarmál - 15.12.1970, Blaðsíða 39
heimtuUlraunir, að lögtak yrði árangurslaust hjá skuldara, og er hann þá settur á svonefndan Kvíabryggjulista, en á hann eru allir þeir settir, sem kemur til greina að senda hótun um vist- un á Kvíabryggju. Þegar 2—3 pláss eru laus á Kvíabryggju, þá eru send bréf til þeirra, sem á Kvíabryggjulista eru, þess efnis, að hafi þeir ekki komið til innheimtudeildar innan 14 daga og greitt meðlagsskuld eða sarnið um greiðslu hennar, þá muni verða óskað eftir því, að saka- dómari úrskurði viðkomandi til dvalar að Kvía- bryggju. Það er reynsla undanfarandi ára, að um helmingur þeirra, sem bréf fá, koma og greiða eða semja um greiðslur, en hinn helming- urinn er sendur sakadómara til úrskurðar. Áður en sakadómari sendir þá vestur, gefur hann þeim 3—4 daga til að bjarga sínurn málum, og er reynslan sú, að 4 af hverjum 5 bjarga sínum málum á síðustu stundu — greiða, semja eða setja tryggingar. Þannig eru ekki nema 1—2 af hverjum 10, sem til sakadómara eru 'sendir, sendir til Kvíabryggju. Á þessu stigi máls eru tekin skuldabréf, tryggingar, yfirlýsing og ábyrgð atvinnuveitanda og jafnvel víxlar, eins og nefnt var hér að framan, með mjög sæmilegum árangri. Kvíabryggja hefur gert mikið gagn á undan- förnum árum. í fyrsta lagi greiða mjög margir meðlög ein- gcingu af hræðslu við Kvíabryggju. Aðeins tilvist hennar er nóg fyrir þessa skuldara. í öðru lagi er hinn stóri hópur manna, sem ekki greiðir, fyrr en á að senda þá vestur. í þriðja lagi er sá hópur manna, sem vestur fer. Hér er mjög oft um að ræða auðnuleysingja og drykkjumenn, sem koma allt aðrir menn, eftir nokkra mánaða dvöl fyrir vestan, og fara í vinnu og byrja að greiða með sínum börnum. Ég þekki marga menn, sem telja sjálfir, að þeir hafi læknazt fyrir vestan og þeir hafi byrjað nýtt líf eftir dvölina þar. Og eitt er víst, að engan þekki ég, sem hefur óskað eftir að fara þangað aftur. Vistheimili sem þetta er því brýn nauðsyn, en það þarf að gera. ýmsar breytingar, og tel ég þessar nauðsynlegastar: í fyrsta lagi tel ég, að aldrei megi úrskurða mann til lengri dvalar í fyrsta skipti en þrjá mánuði. Þetta er gert vegna hagsmuna skuldara, þar sem margur skuldari mun tvímælalaust bæta ráð sitt eftir þriggja mánaða dvöl þar. Einnig myndi þetta nýta húsnæðið betur, þar sem fleiri komast að á ári hverju. í öðru lagi tel ég mjög ábótavant, að ekki skuli vera næg, hentug og arðbær vinna fyrir vistmenn, þ. e. til dæmis framleiðsla, sem koma m'egi í verð á markað, og í því sambandi má ef til vill nefna mesta gallann, en hann er stað- setning vistheimilisins — það ætti að vera stað- sett sem næst markaðinum, sem taka á við fram- leiðslunni. Síðast en ekki sízt skal nefna það atriði, að ég tel ósæmandi, að ekki skuli vera sérmenntað- ur forstjóri fyrir slíku vistheimili. Tilgangur þessa vistheimilis er að taka við einstaklingum, sem eru að meira eða minna leyti með sjúkt hugarfar, og reyna að bæta liugarfar þeirra — beina þeim á réttar brautir — gera þá að betri borgurum — og til þess að þetta sé mögulegt, þarf vel menntaðan sérfræðing. í sambandi við Kvíabryggju vil ég geta þess, að ég tel fráleitt að slíkt vistheimili sé einvörð- ungu notað fyrir Reykjavíkurborg — slíkt vist- heimili á að vera fyrir landið allt. Aðstoð lögreglu í 56. gr. 1. nr. 80/1947 segir: „Innheimtumaður, sem annast innheimtu á endurgreiðslukröfum vegna barnalifeyris, getur leitað aðstoðar lögreglunnar til að ná til skuld- ara.“ Löggjafanum er ljóst, að innheimta þessi er erfið og oft erfitt að ná til skuldara. Þess vegna er ákvæðið sett. Innheimtudeildin hefur lítið leitað til lögreglunnar um aðstoð. Það hefur ver- ið talið, að lögreglan væri störfum hlaðin og gæti engu við sig bætt. í Danmörku aðstoðar lögreglan í einu og öllu innheimtumenn. Lög- reglan sækir skuldara, aflar upplýsinga um hann, hefur eftirlit með honum o. s. frv. Þetta er mjög mikilvægt atriði, og er nauðsynlegt að koma á slíkri samvinnu hér milli innheimtu 241 SVEITARSTJÓRNARMÁL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.