Sveitarstjórnarmál - 15.12.1970, Side 45
Séð hetm að Kviabryggju.
bóta, sem síður er liægt, þegar innheimtusvæði
eru mörg hundruð.
í þessu sambandi vil ég aðeins minna á al-
menningsálitið og útgáfu og upplýsingastarfsemi.
Hvað snertir almenningsálitið, þá þarf með
öllum ráðum að gera það sterkara og jákvæðara
innheimtunni í vil. Það þarf að skapa það al-
menningsálit, að það sé skönnn hverjum full-
frískum og vinnandi manni að greiða ekki til-
skilin meðlög með börnum sínum. Þannig er
almenningsálitið t. d. í Danmörku, að þar þekk-
ist það ekki, að menn gorti af Jjví, að Jieir kom-
ist hjá því að greiða með börnum sínum. Það
er táknrænt í jæssu sambandi, að innheimtu-
deild borgarsjóðs er að innheimta meðlög hjá
prestum, hæstaréttarlögmönnum, verkfræðingum,
viðskiptafræðingum og læknum, auk fjölda
embættismanna. Ef almenningsálitið væri já-
kvæðara, þá myndu jjessir aðilar greiða beint.
Til J>ess að efla almenningsálitið tel ég, að
þurfi að helja mikinn áróður með öllum hugs-
anlegum ráðum gegnum fjölmiðlunartæki og
jafnframt koma á sterkara sambandi milli inn-
heimtu meðlaga og lögreglunnar og fá hana
meira til aðstoðar en nú er.
Hefja þarf útgáfn og upplýsingastarfsemi um
allt, er að meðlagsgreiðslum lýtur. Það er næsta
furðulegt, að þetta svið hefur verið algerlega
vanrækt. Það á að veita barnsmóður upplýsingar
um Jjað, hvert hún eigi að snúa sér til þess að
fá greiðslur með börnum sínum, hvaða plögg
hún Jmrfi að hafa í höndunum, hvernig lrún
eigi að sækja greiðslur, um ættleiðingar o. fl.
Það á að veita barnsföður upplýsingar um, hvar
hann eigi að greiða meðlag, hvað hann eigi að
greiða og hvað vofi yfir honum, ef liann ekki
greiði á réttum tíma. Mér finnst Jjað skylda, að
veita Jjessum aðilum Jjessar lágmarks upplýsing-
ar, en auk Jjess er Jjetta einnig áróðursatriði fyrir
innheimtuna.
Það má að lokum velta þeirri spurningu fyrir
sér, hvort það sé svo æskilegt að auka innheimt-
una og hvers vegna. Margir niunu að sjálfsögðu
láta sér nægja Jjað svar, að ríkið Jjurfi sitt og
sveitarfélögin sitt og Jjetta sé of Jjungur baggi
fyrir þau, en mér finnst Jjað svar vera ófullnægj-
andi.
Það er skoðun mín, að það sé æskilegt að inn-
heimta meðlög hjá Jjeim, sem raunverulega geta
greitt, — ekki aðeins peningalega fyrir ríkið og
sveitarfélögin — heldur einnig siðferðilega fyrir
barnið og barnsmóðurina og síðast en ekki sízt
fyrir barnsföðurinn sjálfan.
251
SVEITAKSTJ ÓRNARMÁL