Sveitarstjórnarmál - 15.12.1970, Síða 7
flokkanna fyrir þá fyrirgreiðslu, sem þeir hafa
veitt, og holl ráð í ýmsum málum.
Þannig mætti lengi áfram halda, því að sam-
bandið þarf til margra að leita og þess munu fá
dæmi eða engin, að málaleitun þess hafi ekki
verið vel tekið.
Hvert stefnir?
Þetta landsþing er háð á tímamótum. Að baki
liggur aldarfjórðungsstarf sambandsins, en fram-
undan blasa við mikil og vaxandi verkefni.
Saga sambandsins hefur verið rakin í sérstöku
afmælishefti Sveitarstjórnarmála, og verður því
ekki endurtekin. Ég vil aðeins benda á, að mér
virðist, að sambandið sé algerlega búið að skapa
sér fastan sess í þjóðfélaginu. Þaðer búið að vinna
sér töluverða tiltrú. Það er sæmilega stætt fjár-
hagslega. Fyrir þetta eigum við mikla þökk að
gjalda þeim, sem ruddu brautina, en öll vitum
við, að í þeirri vegagerð á Jónas Guðmundsson
langflest dagsverkin og rnest afköstin.
Nú er það okkar hlutverk, sem erum fulltrúar
á þessu landsþingi, að skipa svo málum sam-
bandsins, að það verði á komandi árum sem allra
bezt hæft til að sinna hinu þýðingarmikla hlut-
verki, sem það hefur að gegna í þágu sveitar-
félaganna og þar með fólksins í landinu.
Hér er um margþætt hlutverk að ræða.
Efst á blaði tel ég það, að starfssvið sveitar-
félaganna gagnvart ríkisvaldinu verði mótað
þannig, að um rökrétta og hagkvæma verka-
skiptingu verði að ræða. Sú verkaskipting, sem
við búum við, hefur þróazt á löngum tíma, án
nokkurrar heildarstefnu; hefur oftlega byggzt á
tímabundnum viðhorfum, nánast tilviljunum. A
kjörtímabili fráfarandi stjórnar hafa verið undir-
búnar tillögur að nýrri verkaskiptingu milli ríkis
og sveitarfélaga. Hafa þær tillögur þegar verið
kynntar sveitarstjórnum í landinu, en vegna
þeirra kosninga, sem nú eru nýafstaðnar, er
eðlilegt, að hinir nýju sveitarstjórnarmenn fái
aðstöðu til að kynna sér þær og fjalla um.
Verður það hlutverk næstu stjórnar að vinna
að framgangi tillagnanna í núverandi mynd eða
breyttri. Ekki ætla ég að svo stöddu að leggja
Gunnar Larsson, þingmaður í Svfþjóð, fiytur sambandinu heillaóskir
sveitarstjórnarsambandanna annars staðar á Norðurlöndum.
Hans Opstad þakkaði af hálfu norrænu gestanna við þingslit.
Dr. Gylfi Þ. Gíslason svarar fyrirspurnum um skólamál.
SVEITARSTJÓRNARMÁL