Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 15.12.1970, Qupperneq 10

Sveitarstjórnarmál - 15.12.1970, Qupperneq 10
216 egi, og færði hann sambandinu bókagjöt frá sveitarfélagasamböndunum í Noregi í tilefni af 25 ára afmæli sambandsins 11. júní. Næst fluttu ávörp Hjálmar Vilhjálmsson, ráðuneytisstjóri í félagsmálaráðuneytinu, sem flutti þinginu árnaðaróskir Emils Jónssonar, fé- lagsmálaráðlierra, sem var erlendis, og Birgir ísl. Gunnarsson, fyrsti varaforseti borgarstjórnar Reykjavíkur, sem bauð þingfulltrúa velkomna til starfa í höfuðborginni. 132 fulltrúar á þingi Kjörbréfanefnd þingsins hafði verið skipuð. Áttu sæti í henni Unnar Stefánsson, ritstjóri, Jón Ásgeirsson, sveitarstjóri, Njarðvíkurhreppi, og Sfeinunn Finnbogadóttir, borgarfulltrúi í Reykjavík. Hafði Unnar Stefánsson orð fyrir nefndinni. í áliti kjörbréfanefndar kom fram, að 257 full- trúar áttu rétt á þingsetu, 211 lrá 209 hreppum og 46 frá 14 kaupstöðum. Af 223 sveitarfélögum, sem aðild eiga að sambandinu, höfðu 150 skilað kjörbréfum fyrir samanlagt 186 fulltrúa. Til þings voru komnir 132 lulltrúar frá 106 sveitarfélögum, en 54 ókonmir af þeim, er kjör- bréfum höfðu skilað. Kjörbréf allra þingfulltrúa voru samþykkt. Kosning forseta og ritara Forseti þingsins var kosinn Páll Líndal, for- maður sambandsins, og varaforsetar Ólafur G. Einarsson, sveitarstjóri, Garðahreppi, varafor- maður sambandsins, og Birgir ísleifur Gunnars- son, fyrsti varaforseti borgarstjórnar Reykjavík- ur. Fræðslustarfsemi um sveitarstjórnarmál ber að auka og efla Landsþingið gerði svofellda álykt- un um fræðslustarfsemi: Fræðslustarfsemi um sveitar- stjórnarmál er tvískipt, þ.e. fyrir almenning og hins vegar fyrir sveitarstjórnarmenn. Báða þessa liði í starfsemi sambandsins ber að auka og efla. 1. Frœðshtstarfsemi fyrir almenn- ing þarf að auka að mun og nota þar alla þá fjölmiðla, sem völ er á. Tímaritið Sveitarstjórnarmál þarf að kynna almenningi og afla því áskrifenda sem v.'ðast. 2. Hvetja ber sveitarfélög hvert um sig til aukinnar kynningar á starfsemi sinni bæði með útgáfu bæklinga og miðlun upplýsinga til fjölmiðla. 3. Halda þarf reglulega eftir hverjar sveitarstjórnarkosjiingar 4 —5 daga skóla fyrir nýráðna eða kjörna bæjarstjóra, sveitarstjóra og oddvita, sem þess óska. Þar yrði í þröngum hópum, t. d. 12—15 manns, farið yfir valið efni, rem kynnt væri af mönnum, sem hefðu reynslu og þekkingu á þeim mála- flokkum, t.d. embættismönnum ríkisins í ákveðnum málaflokkum og starfandi bæjar- og sveitarstjór- um. 4. Halda ber áfram á þeirri braut, sem farin hefur verið, með ráðstefnuhald í ýmsum stórmálum, sem æskilegt er, að sem flestir sveitarstjórnarmenn kynnist. Fund- ir starfshópa, t. d. bæjarverkfræð- inga, byggingarfulltrúa, heilbrigð- isfulltrúa og barnaverndarfulltrúa væru og mjög æskilegir, t.d. ann- að hvert ár. 5. Erindrekstur á vegum sam- bandsins hefur og gefið góða raun. Mjög æskilegt væri, að einhver á vegum Sambands íslenzkra sveitar- félaga kæmi í öll sveitarfélög landsins einu sinni á hverju kjör- tímabili og sæti einn fund í sveit- arstjórn og ræddi við ráðamenn. 6. Útgáfa Sveitarstjórnarmála og Handbóka um sérstök málefni hef- ur gefið góða raun og er hvatt til eflingar þeirrar starfsemi. Sérstaklega eru sveitarstjórnir hvattar til að kaupa ritið fyrir starfsmenn sveitarfélaganna og varafulltrúa í sveitarstjórnum. SVEITARSTJ ÓBNAKMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.