Sveitarstjórnarmál - 15.12.1970, Síða 40
Vistmenn á Kvíabryggju stunda vinnu, eftir því sem
framast eru tök á. Þar á meðal vinna þeír að fyrir-
hleðslu vegna undirbúnings að fiskeldi. Byggður
hefur verið garður, sem orðínn er 230 metra langur,
en á að verða 370 metrar fullgerður, á myndinni
sézt aðeins óverulegur hluti af stiflu þeirri, sem
byggð verður yfir ósinn, sem sjá má á myndinni
á bls. 250.
þessarar og lögreglunnar. Það á að vera mögu-
legt hér eigi síður en í Danmörku.
Hslztu ágallar
núverandi innheimtuaðferða
Hér að framan hefur verið lýst þeim inn-
lieimtuaðferðum, sem notaðar eru hjá inn-
heimtudeild borgarsjóðs við innheimtu á með-
lagsskuldum.
Eins og fram hefur komið, tel ég helztu ágalla
jsessa:
1. Ekki er hafizt handa nægilega fljótt — ýmist
vegna innheimtutilrauna Tryggingastofnun-
ar ríkisins eða óvissu um sveitfesti.
2. Atvinnurekendur eru ekki nægilega sam-
vinnuliprir og ábyrgir.
3. Vistheimilið að Kvíabryggju kemur ekki
nema að takmörkuðum notum.
4. Lögreglan er ekki látin aðstoða við inn-
heimtuna, eins og nauðsynlegt væri.
Ef þessi fjögur atriði yrðu endurskoðuð og
endurbætt, þá er enginn vafi á því, að innlieimt-
an yrði mun betri.
Innheimtustofnun
sveitarfélaga
Ég hef verið nokkuð langorður um innheimtu
meðlaga hjá innlieimtudeild borgarsjóðs, en |)að
hefur verið af ásetningi gert, því að það skýrir,
hvers vegna ég mæli með ýmsum breytingum á
núverandi fyrirkomulagi, sem koma fram í frum-
varpi til laga um Innheimtustofnun sveitarfélaga,
og ég mun nú leitast við að skýra í stórum drátt-
um, — og eingöngu þau atriði í frumvarpinu,
sem snerta innheimtuna sjálfa.
Sameign sveitarfélaganna
1. gr.
„Setja skal á stofn In7iheimtustofnun sveitar-
félaga. Stofnunin skal vera sameign allra sveitar-
félaga landsins. Lögheimili Innheimtustofnunar-
innar er i Reykjavik.“
Á Stór-Reykjavíkursvæðinu mun vera 50—60%
af öllum meðlagsskuldurum landsins, og er því
eðlilegt, að stofnunin sé staðsett þar með lög-
heimili.
SVEITARSTJÓRNAUMÁL