Sveitarstjórnarmál - 15.12.1970, Síða 9
leika á sameiningu. Því öflugri, sem sveitar-
stjórnareiningarnar eru, því betur eru þær fær-
ar til að leysa hlutverk sitt af hendi.
Á þessu þingi munu skattamálum eða tekju-
stofnamálum gerð töluverð skil. Eitt meginverk-
elni næstu stjórnenda sambandsins verður að
móta ákveðna stefnu í tekjustofnamálum sveitar-
félaga. Þar eru ýmsar hugmyndir á lofti og þarf
vandlega að vega og meta þær. Sérstaklega er
aðkallandi, að viðhorfið til nýja fasteignamats-
ins verði kannað vel.
Það væri vissulega efni til að ræða sitthvað
fleira, sem er ofarlega á baugi og skiptir sveitar-
félögin miklu. I því sambandi nefni ég skóla-
málin, en þeim verða gerð sérstök skil á þessu
landsþingi. Ég nefni mál eins og hlutverk sveitar-
félaganna á sviði menningarmála, umhverfis-
vernd, sem ber einna hæst allra mála í dag í
veröldinni, skipulagsmál, félagsmál, heilbrigðis-
mál og æskulýðsmál. Tíminn leyfir ekki, að þessu
verði gerð skil að marki. Eitt mál vil ég þó nefna
sérstaklega, sem ég held, að sambandið verði að
taka föstum tökum. Það er aðstoð við sveitar-
félögin á sviði tæknimála. Þar er ástandið víða
mjög bágborið, svo að ekki sé meira sagt. Að-
staða þeirra til að láta vinna að tæknimálum
virðist erfið og því nauðsynlegt, að einhver
skipulagsbundin fyrirgreiðsla verði veitt.“
Formaður ræddi einnig erfitt árferði undan-
gengin ár og áhrif þess á hag sveitarfélaganna.
Að lokum vék hann að auknu tali um lýðræði
í landinu og hlutverki sveitarfélaganna í þeim
efnum og að því sameinkenni liðins kjörtímabils,
sem hann taldi vera, það er myndun og mótun
landshlutasamtakanna. Sá kafli í setningarræðu
formanns birtist sem forustugrein framar í þessu
tölublaði tímaritsins.
Að setningarræðu lokinni flutti ávarp Gunn-
ar Larsson, þingmaður, fulltrúi Sveitarfélaga-
sambandsins í Svíþjóð. Bar hann þinginu kveðj-
ur bræðrasambandanna annars staðar á Norður-
löndum og færði sambandinu að gjöf vegg-
teppi frá samtökum sínum og fundahamar frá
Sveitarfélagasambandinu í Finnlandi.
Einnig talaði úr hópi norrænu gestanna Jan
Johnsen, fulltrúi Kaupstaðasambandsins í Nor-
Páll Lindal sæmir Karl Kristjánsson heiðursmerki sambandsins.
Formaður veitir viðtöku málverki al Reykjavík úr hendi Geirs Hall-
grímssonar, borgarstjóra, I ræðustóll.
Tákn norænnar samvinnu í listvefnaði, sem sveitarfélagasambandið
í Svíþjóð færði sambandinu í afmælisgjöf.
SVEITARSTJÓKNARMÁL