Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 15.12.1970, Side 33

Sveitarstjórnarmál - 15.12.1970, Side 33
MAGNÚS ÓSKARSSON, hrl., vinnumálafulltrúi: Gerð kjarasamninga við starfsmenn sveitarfélaga Stjórn sambandsins hefur fariS þess á leit viS Magnús Óskarsson, vinnumálafulltrúa Reykjavikurborgar, aS hann verSi forráSamönnum annarra sveitarfélaga tii ráSuneytis um gerS kjarasamninga, eftir því sem ástæSur hans leyfa. Hér gerir hann grein fyrir þeim viShorfum, sem nú eru framundan aS því er varSar gerS kjarasamninga viS starfsmenn sveitarfélaga, eftir aS tekizt hefur samkomulag um laun ríkisstarfsmanna. Samkvæmt lögum um kjara- samninga starísmanna ríkisins og reglugerð um kjarasamninga starfs- manna sveitarfélaga áttu flestir kjarasamningar opinberra starfs- manna að renna út í árslok 1969 og nýir samningar að taka gildi í árs- byrjun 1970. Vegna grundvallar- breytinga á samningum og launa- kerfi ríkisstarfsmanna varð um ]jað samkomulag milli B.S.R.B. og rík- isins, að reglum yrði breytt á þann veg, að samningstímabilið fram- lengdist um eitt ár, þ.e. til árs- loka 1970. Þó var um það samið, að breyting á launastiga hinna nýju samninga gilti frá 1. júlí 1970 eftir sérstökum reglum, en önnur ákvæði þ. á m. vinnutími o. fl. giltu frá 1. jan. 1971. í flestum kaupstöðum mun hafa verið um það samið að fara i kjöl- far ríkisins að þessu leyti, og því standa bæjarfélögin frammi fyrir núna að gera nýja kjarasamninga við starfsmenn sína. Frestur til 31. janúar Vegna þess, hve samningar ríkis- starfsmanna drógust á langinn, reynist áframkvæmanlegt að ljúka samningum starfsmanna sveitar- félaga fyrir áramót. Hafa því Sam- band íslenzkra sveitarfélaga og B.S.R.B. sameiginlega farið þess á leit við félagsmálaráðuneytið, að frestur til að Ijúka samningum framlengdist til 31. jan. 1971. Var orðið við þeirri ósk með reglu- gerðarbreytingu, þannig að mál ganga ekki til Kjaradóms fyrr en 1. febr. n.k., liafi samningar ekki tekizt fyrir þann tíma. Reykjavík Opinberir starfsmenn Reykja- víkurborgar eru í þremur félögum, Lögreglufélagi Reykjavíkur, Hjúkr- unarfélagi íslands og Starfsmanna- félagi Reykjavíkurborgar, en í því er allur þorri borgarstarfsmanna. Um tvö fyrrnefndu félögin er það að segja, að þar gildir svipað og með starfsmenn kaupstaðanna, að samningar við þau voru bundnir við s.l. áramót, og frestur til að ljúka þeim er nú til 1. febr. n.k. Starfsmannafélag Reykjvíkur- borgar gerði lúns vegar nýja liamn- inga um áramótin 1969—70 oggilda þcir til ársloka 1971, nema sérstak- lega sé unr annað samið. Af hálfu Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar hefur verið far- ið fram á það við borgaryfirvöld, að nú þegar verði hafizt handa um heildarendurskoðun kjarasamn- inga aðilanna, sem byggð yrði á starfsmati svipað og ger var hjá rík- inu. Eru horfur á, að niðurstaðan verið sú, að fyrrihluta þessa árs verði unnið að slíkri endurskoðun, en um það, hvenær þeir samning- ar taka gildi, hefur enn ekki verið samið. Um það hefur þó verið rætt, að launastiginn yrði látinn gilda frá 1. janúar 1971. Óvenju mörg nýmæli Það er atliugunarefni fyrir for- ráðamenn kaupstaðanna, sem nú standa frmmi fyrir því að gera nýja kjarasamninga á tiltölulega skömmum tíma, að sá grundvöllur, sem búast má við, að hafður verði til hliðsjónar, þ.e. samningar ríkis- in, felur í sér óvenju mörg nýmæli, sem raska mörgu því, sem hingað til hefur gilt. Samræming æskileg Þótt störf séu mismunandi frá einum stað til annars, er almennt talið eðlilegt, að samræmi sé í kjör- um opinberra starfsmanna, eftir því sem unnt er. Því verður ekki náð án einhvers samstarfs og skoð- anaskipta milli kaupstaðanna, sem ættu að geta verið báðum samn- ingsaðilum til liagsbóta. Loks er rétt að geta þess, að samningstímabil þess samnings, sem nýgerður er við ríkisstarfs- menn, er til 31. des. 1973. SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.