Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Page 4

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Page 4
ER NAUÐSYNLEGT AÐ BREYTA ÆfSS AFTUR í VINSTRI UMFERÐ? vji? Að undanförnu hefur landsmönnum verið kynnt, hvað umferðarslysin kosta þjóðfélagið árlega í krón- um. Er þá ótalið annað tjón, sem enginn fær bætt. Stöðugt berast okkur fréttir af hörmulegum atburð- um í umferðinni, — bifreiðin, sem bætt hefur líf okkar á marga lund, er jafnframt mikill bölvaldur. Bent hefur verið á, að hægt er að draga verulega úr umferðarslysum. Um það vitnar reynsla okkar íslendinga fyrir 15 árum, þegar breytt var úr vinstri handar umferð í hægri umferð. Með öflugu upp- lýsinga- og áróðursstarfi ásamt ýmsum endurbótum á umferðarmannvirkjum reyndist þá unnt að draga verulega úr umferðaróhöppum og vafalaust bjarga mannslífum. Sumir hafa spurt, hvort ekki sé rétt að breyta aftur í vinstri umferð í því skyni að bæta umferðar- menninguna og síðan verði skipt um aksturskant á 10 ára fresti eða svo. Ekki er alvara í slíkri spurn- ingu, en í henni felst þörf áminning. Við gerum ekki það, sem hægt er að gera til þess að auka umfcrðar- öryggi. Þjóðir Norðurlanda hafa nú ákveðið að gera sam- eiginlegt átak til þess að draga úr hættu í um- ferðinni. Hér á landi hófst „norrænt umfcrðarör- yggisár“ með ráðstefnu, er Samband íslenzkra sveit- arfélaga, Umfcrðarráð og fleiri boðuðu til 24. febrú- ar sl. Kom margt athyglisvert fram á ráðstefnunni, sem vonandi verður upphaf að varanlegum að- gerðum. Því hefur verið haldið fram, að um 3/4 hluta umferðarslysa megi rekja til mistaka ökumanna, en 1/4 hefði mátt koma í veg fyrir mcð endurbótum á umferðarmannvirkjum. Slík skipting hlýtur ætíð að orka tvímælis, en ljóst er, að sveitarstjórnir og yfirvöld vegamála geta gert margt til þess að draga úr slysahættu. Er tvískipting þjóðvega á blindhæðum líklega bezta dæmið um þetta, en með tiltölulega ódýrum aðgerðum, sem vegaverkstjóri einn átti upptökin að, tókst að fækka slysum veru- lega við slíkar aðstæður. Með nákvæmari skráningu umferðarslysa er auðvelt að finna slysagildrur í umferðinni, og endurbætur, sem útrýma þeim, eru fljótar að borga sig fyrir þjóðfélagið. Umferðarráð mun á næstunni hefja öfluga áróð- ursherferð til þess að reyna að draga úr mistökum ökumanna. Sveitarstjórnir vilja ekki láta sitt eftir liggja, og á fyrrnefndri ráðstefnu kom fram mikill áhugi á öflugum aðgerðum sveitarfélaga gegn um- ferðarslysum. í því skyni er nauðsynlegt að virkja almenning til starfa m.a. með samvinnu við ýmis félagasamtök, svo sem Slysavarnafélag íslands og þjónustuklúbba byggðanna. Margar sveitarstjórnir hafa komið á fót ráðgef- andi umferðarnefndum, og er nauðsynlegt, að þær séu virkar og að hlustað sé á tillögur þeirra. Nú er unnið að samningu fyrirmyndar að samþykkt fyrir umferðarnefndir, en eftir því hefur verið óskað. íslendingar, eins og þjóðir í öðrum velferðarríkj- um, gefa nú aukinn gaum að umhverfi byggða. Hreint land og hættulaust umhverfi eru kröfur, sem hvarvetna eru gerðar til sveitarstjórna og annarra stjórnvalda. Við getum aldrei útilokað umferðarslys, en við getum fækkað þeim stórlega, — það sýnir reynslan frá gildistöku hægri umferðar. Ekki er nauðsynlegt að fella hægri umferð aftur úr gildi, en það er hins vegar þjóðarnauðsyn, að við nálgumst umferðina aftur með sama hugarfari og við gerðum að morgni 26.maí 1968. Bj'órn Friðjinnsson. SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.