Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Page 13
FIMMTIU ARA AFMÆLI
BYGGÐAR Á HVOLSVELLI
Samtal við Ólaf Sigfússon, sveitarstjóra
Vorið 1933 voru aðalstöðvar Kaupfélags
Hallgeirseyjar fluttar frá Hallgeirsey á bökkum
Affalls á Landeyjasandi að Hvolsvelli í
Hvolhreppi. Þessa vordaga árið 1933 kom
flutningaskip í síðasta skipti með vörur upp að
Landeyjasandi. Það var elzti Brúarfoss, sem
kom með sement, skeifnajárn, girði, þvottaduft,
þakpappír, nagla, trjávið og hrífuhausa frá
Danmörku og með brýni, ullarballa, smjörsalt
og sóta frá Englandi. Við Hallgeirsey í Austur-
Landeyjahreppi hafði kaupfélagið haft bæki-
stöð sína frá árinu 1920, en það var stofnað árið
1919. En erfitt var að flytja varninginn frá
brimströndinni upp blautar mýrar í Landeyjun-
um, og þegar árnar Þverá, Affall, Álar og Mark-
arfljót voru brúuð og akvegasamband opnaðist
um austurhluta Rangárvallasýslu og allt austur
í Vestur-Skaftafellssýslu árið 1933, gjör-
breyttust allir möguleikar til aðdrátta og sam-
skipta. Haustið 1930 hafði Kaupfélag
Rangæinga stofnað útibú á grundunum vestan
við Stórólfshvol í Hvolhreppi, en enginn starfs-
maður hafði þar búsetu. Á árinu 1932 var þar
byijað að byggja yfir kaupfélagsstjórann, og
bflstjóri hjá félaginu hóf einnig að reisa sér
íbúðarhús. Og það var síðan árið 1933, að
kaupfélagið flytur aðsetur sitt, eins og fyrr seg-
ir, frá Hallgeirsey á Hvolsvöll og hefur þar
verzlunarrekstur.
Hinn 2. september 1933 var haldinn auka-
fundur í sýslunefnd Rangárvallasýslu og kosin
byggingarnefnd fyrir Hvolsvöll. Ennfremur
var á sama fundi samþykkt, að sýslan kostaði
vatnsveitu í nýju byggðina, og árið eftir var
ennfremur ákveðið að verja Qármunum úr
sýslusjóði til vatnsveitu til hinnar nýju
byggðar.
Byggðin á Hvolsvelli óx hægt framan af. Árið
1937 var sýslumannsembætti Rangæinga flutt
frá Gunnarsholti á Hvolsvöll, símstöð reist árið
1942, en upp frá því rís hvert húsið af öðru,
kaupfélagið eykur umsvif sín jafnt og þétt, það
sameinast árið 1948 Kaupfélagi Rangæinga,
sem hafði starfað frá árinu 1930 að Rauðalæk í
Holtahreppi, og bar eftir það nafn þess.
Á árinu 1930 voru í Hvolhreppi 222 íbúar, en
tíu árum síðar, árið 1940, 225. Árið 1950 er
íbúatala hreppsins 270, og þar af 96 til heimilis
á Hvolsvelli. Árið 1960 er íbúatalan 319, þar af
142 á Hvolsvelli, árið 1970 442, þar af 242 á
Hvolsvelli, árið 1980 702, þar 532 á Hvolsvelli
og hinn 1. desember 1981 var íbúatala hrepps-
ins 711, þar af 547 á Hvolsvelli.
Við tókum tali Olaf Sigfússon, sveitarstjóra
Hvolhrepps, en hann hefur verið oddviti
hreppsins síðastliðinn hálfan annan áratug, á
þessu miklu vaxtarskeiði byggðarinnar á
Hvolsvelli. Við innum hann fyrst álits á hinum
skjóta vexti byggðarinnar.
Ólafur
Slgfússon,
sveitarstjóri.
SVEITARSTJÓRNARMÁL