Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Side 18

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Side 18
Félagsheimilið Hvoll, reist á árunum 1958-1960. Þar hefur hreppurinn rekið veltingasölu frá upphafi og reksturlnn gengið mjög vel. Þar er áfangastaður margra á leiðlnni í Þórsmörk og inn á hálendið á sumrin. hcr á sléttlcndinu, að við höfum annazt þctta sjálfir í samvinnu við Skipulag ríkisins.“ — Rekur hreppurinn dagvistarheimili barna? ,Já, og það hef'ur hreppurinn gert í tólf ár. Þcgar við reistum iðngarða og stofnuðum til reksturs saumastofu, þá var ráðizt í að kaupa hús og innrétta sem dagvistarheimili barna, einkum mcð það í huga að auðvelda húsmæðrum að komast til vinnu við hinn nýja iðnað, t.d. hluta dags. Það rúmar milli 40 og 50 börn. Og það hefur gert mörgum konum kleift að starfa úti, eins og sagt cr.“ — í Hvolhreppi hefur lengi verið aðsetur héraðslæknis? ,Já, héraðslæknir Rangæinga haíði um langt ára- bil, að ég ætla allt frá árinu 1834, aðsetur í Hvol- hreppi, á Móeiðarhvoli og síðan á Stórólfshvoli. Læknishéraðinu var skipt á árinu 1956, og eru nú í sýslunni tvö læknishéruð, og er læknir á Hellu og á Hvolsvclli. Að Hvolslæknishéraði standa, auk Hvol- hrepps, Austur- og Vestur-Landcyjahrcppar, Fljótshlíðarhrcppur og Vestur-Eyjafjallahreppur. Ný heilsugæzlustöð er í smíðum í túnfætinum á Stórólfshvoli, í útjaðri þorpsins, og verður hún tekin í notkun hinn l. ágúst næstkomandi. Þá er í smíð- um dvalarheimili aldraðra í námunda við hcilsu- gæzlustöðina. Að því standa sömu hreppar og 80 standa að heilsugæzlustöðinni nema Vcstur-Land- eyjahreppur. Fullgert mun dvalarheimilið rúma fjörutíu manns, 16 í hjónaíbúðum og 24 í einstakl- ingsherbergjum, en í fyrsta áfanga verður reist þjón- ustumiðstöð og íbúðarhúsnæði undir um það bil helming þess fjölda, sem ætlað er, að dvalarheimilið rúmi fullgert." — A ekki Hvolhreppur samstarf við þijá aðra hreppa sýslunnar um skólamál? ,Jú, Hvolhreppur, Fljótshlíðarhreppur, Austur- Landeyja- og Vestur-Landeyjahreppur hafa átt með sér samstarf um skólamál á sviði unglinga- fræðslu allt frá árinu 1966, og var fyrst kennt í félagshcimilinu Hvoli, en í núverandi húsi frá árinu 1968. Hrcpparnir reka í sameiningu efri bekki grunnskólafræðslunnar, þ. e. 7., 8. og 9. bekk grunnskóla, en yngstu árgangar barnanna sækja námið í skóla, sem hrcpparnir reka hver í sínum hreppi. Fram hefur farið á Hvolsvelli kennsla, sem svarar til 1. og 2. bckkjardeildar iðnskóla. Þá er Tónlistarskóli Rangæinga sameiginlegur fyrir alla sýsluna. Skólinn hefur fengið sem bækistöð gamla barnaskólahúsið á Hvolsvelli, en kennsla fer fram á mörgum stöðum í sýslunni. Nemendur eru um tvö hundruð að tölu. Nýtt grunnskólahús hefur verið reist, og flutti grunnskólinn starfsemi sína í það haustið 1981. Aður hafði tekið til starfa gagnfræða- skóli í hluta byggingarinnar. Þar fór fram kennsla til landsprófs í samstarfi þeirra íjögurra hreppa, sem standa sameiginlega að samstarfinu um skóla- haldið." SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.