Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Qupperneq 20

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Qupperneq 20
Leigu- og sölufbúðir, sem Hvolhreppur relsti fyrlr nokkrum árum. Samtals byggði hreppurinn sex íbúðlr, og af þeim á hann eina. Allar Ijósmyndirnar með greininni tók Gunnar G. Vigfússon, er hann og ritstjóri heimsóttu Hvolsvöll hinn 14. apríl sl. — Er ekki bókasafn til húsa undir sama þaki? ,Jú, í tcngslum við skólahúsið cr byggt áí'ast hús undir Héraðsbókasafn Rangæinga. Að því stendur öll sýslan. Einnig er með því rekið skólabókasafn. Bókasafnið hafði um árabil verið til húsa í gamla barnaskólahúsinu, cn slæm húsakynni þar höfðu lcngi staðið bókasafninu fyrir þrifum.“ — Hvernig búið þið að félagslífi unga fólksins? „Ungmennafclagið Baldur á Hvolsvclli hcfur haft svo til ótakmarkaða aðstöðu til íþróttaiðkana í fé- lagsheimilinu, en aðalsalur þess er jöfnum höndum notaður sem fimleikasalur, og fer þar fram leikfimi- kcnnsla skólanna. Lengi hefur verið á Hvolsvelli malarknattspyrnuvöllur, en nú í sumar verða hafn- ar framkvæmdir við sundlaug, sem verður 25 m á lengd. í framhaldi af því verða reist íþróttahús og sameiginlcgt ltús undir búningsaðstöðu fyrir sund- laugina og íþróttahúsið. Jafnframt verður gerður grasknattspyrnuvöllur, væntanlcga þegar á þessu sumri. Jarðvegur á svæðinu er ákjósanlegur án mikils tilkostnaðar. Þessi íþróttamannvirki verða reist á skólalóðinni.“ — Hvaðan eru íbúar Hvolsvallar komnir? „íbúarnir hafa að mestu leyti komið úr Hvolhreppi og úr nágrannabyggðunum. Þetta gcr- ist yfirleitt þannig, að ungt fólk fer að stunda vinnu á staðnum, ílendist þar, byggir og stofnar heimili þar. Nokkrir Vestmannaeyingar, sem hingað komu eftir Heimaeyjargosið, urðu kyrrir, en mjög lítið hefur verið um það, eins og margir halda, að fólk hafi komið hingað í sambandi við atvinnu við virkj- anir á hálendinu.“ — Hversu lengi hefur þú starfað að hrepps- málum í Hvolhreppi? „í fyrra voru tuttugu ár síðan ég var fyrst kosinn í hreppsnefnd Hvolhrepps, á árinu 1962, og þegar Páll Björgvinsson, þáv. oddviti, féll frá á árinu 1967, var ég kosinn oddviti og var það þangað til á seinasta ári, en þá var ég ráðinn sveitarstjóri hreppsins. Ég hefi þó verið starfsmaður hreppsins sem oddviti sl. sextán ár, og hcfur hreppurinn haft skrifstofu í félagsheimilinu Hvoli. Þar heíi ég lengst af verið einn á skrifstofu. Nú er í smíðum nýtt stjórnsýsluhús, þar sem hreppurinn fær skrif- stofuhúsnæði ásamt fleiri stofnunum hins opinbera, eins og áður segir, og verður þar aðstaða undir þessar stofnanir til nokkurrar frambúðar." — Hverjar eru framtíðarhorfur með þróun byggðar á Hvolsvelli? „Þróun byggðar á Hvolsvelli er algerlega háð atvinnumögulcikum. Við erum komnir í gott veg- arsamband, þorpið mjög vel í sveit sett og höfum í næsta nágrenni stórt atvinnusvæði með þéttbýlum sveitum. A Hvolsvelli ríkir mikil veðursæld. Þar er gott byggingarland og ódýrt að byggja. Hitaveitan breytir lífsafkomu fólksins og hlýtur að skapa atvinnumögulcika. Ég sé ekki annað en að plássið hafi góða framtíðarmöguleika. Landrými er nóg, fólkið er mjög samhent og góður andi ríkjandi." Við samningu formála og samtalsins var hafður stuðningur að því er ártöl og aðrar heimildir varðar af ritunum Rangárþing 1974, útgef. Þjóðhátíðar- nefnd Rangárvallarsýslu, grein um Hvolsvöll eftir Pálma Eyjólfsson í ritinu Sunnlenzkar byggðir, út- gef. Búnaðarsamband Suðurlands 1982, kafla um Hvolsvöll í Landið þitt, Bókaútgáfan Orn og Or- lygur 1981, og af' fleiri heimildum, ónef'ndum. Unnar Stefánsson. SVEITARSTJÓRNARMÁL
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.