Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Side 25
höfuðborgarsvæðinu — SSH — um
samruna samtakanna, svo og við full-
trúa Byggðasjóðs og félagsmálaráðu-
neytisins vegna Jöfnunarsjóðs sveit-
arfélaga varðandi framlög til hinna
sameinuðu samtaka.
Formaður gerði einnig grein fyrir
ársreikningum SASÍR. Voru þeir síð-
an bornir undir atkvæði og sam-
þykktir. Niðurstöðutölur rekstrar-
reiknings 1.9.1981—31.8.1982 voru
kr. 353.406.— og efnahagsreiknings
pr. 31.8.1982 kr. 702.530,-
Krísuvíkurskóli
Samþykkt var á fundinum að kjósa
tvo fulltrúa til þess að taka afstöðu til
fyrirliggjandi umsókna um nýtingu
Krísuvíkurskólans og að leitast við
að koma húsinu sem fyrst í notkun.
Þeim tilmælum var beint til SSS,
Hafnarfjarðarbæjar og menntamála-
ráðuneytisins að tilnefna einnig full-
trúa til þessa verkefnis.
I nefnd þessa voru kjörnir Björn
Ólafsson, bæjarfulltrúi í Kópavogi,
og Magnús Erlendsson, bæjarfulltrúi
á Seltjarnarnesi.
Eignaraðilar Krísuvíkurskóla eru
öll sveitarfélögin í Reykjaneskjör-
dæmi, 15 að tölu, svo og Vestmanna-
eyjakaupstaður, og er eignarhlutur
þeirra í skólahúsinu samanlagt 25%,
en ríkisins 75%.
Fram kom á fundinum, að raf-
magn og hita vanti í húsið, til þess að
unnt sé að koma því í notkun, og að
viðræður hefðu farið fram við fulltrúa
Hafnarfjarðarkaupstaðar um mögu-
leika á að leysa þann vanda.
Sala húseignar í Garöabæ
Þá var á fundinum samþykkt til-
laga stjórnarinnar um að selja hús-
eign SASÍR við Garðaflöt 16—18 í
Garðabæ, enda náist samningar við
bæjarstjórn Garðabæjar um viðun-
andi kaupverð. Jafnframt var sam-
þykkt að skipta söluandvirðinu milli
viðkomandi sveitarfélaga í réttum
eignarhlutföllum.
Fræðsluráö Reykjanes-
umdæmis
Á fundinum voru kjörnir í fræðslu-
ráð Reykjaneskjördæmis þeir Guð-
mar Magnússon, bæjarfulltrúi, Sel-
tjarnarnesi; Ólafur Je ns Pétursson,
tækniskólakennari í Kópavogi; Bene-
dikt Sveinsson, lögfr. og varabæjar-
fulltrúi í Garðabæ, og Sigurður
Símonarson, æfingakennari og vara-
hreppsnefndarfulltrúi í Mosfells-
hreppi.
Fræðsluráð er sameiginlegt með
Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesj-
um, fulltrúar þess í fræðsluráðinu eru
Gunnar Sveinsson, kaupfélagsstjóri í
Keflavík, Ingólfur Aðalsteinsson,
bæjarfulltrúi í Njarðvík, og Jón
Hólmgeirsson, bæjarritari í Grinda-
vík.
Samruni SASÍR og SSH
Tillagan, er samþykkt var á fund-
inum, um sameiningu SASÍR og
SSH, var svofelld:
„Aðalfundur Samtaka sveitarfé-
laga í Reykjanesumdæmi (SASÍR),
haldinn í Félagsheimili Kópavogs 11.
desember 1982, samþykkir, að frá og
með 1. janúar 1983 verði samtökin
lögð niður í núverandi mynd og við
hlutverki SASlR taki Samtök sveitar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu SSH
sem hin eiginlegu landshlutasamtök
eftirtalinna sveitarfélaga: Reykja-
víkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar,
Garðabæjar, Seltjarnarness, Mos-
fellshrepps, Bessastaðahrepps, Kjal-
arneshrepps og Kjósarhrepps.
Frá sama tíma nýtur SSH þeirra
framlaga úr Jöfnunarsjóði og
Byggðasjóði, sem SASÍR hefur
notið.“
Samningur um Skipulagsstofu
höfuðborgarsvæðisins
Um það hefur verið samið, að hin
nýstofnuðu Samtök sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu eigi aðsetur á
Skipulagsstofu höfuðborgarsvæðis-
ins, og var á fundinum lagt fram bréf
borgarstjórans í Reykjavík, þar sem
tilkynnt var, að borgarráð heíði sam-
þykkt samkomulag Reykjavíkurborg-
ar og SSH varðandi samning um
Skipulagsstofu höfuðborgarsvæðis-
Myndina tók Ljósmyndastofa Suðurnesja af þátttakendum f skoðunar- og kynnisferð sveitarstjórnarmanna úr SASÍR til
sveitarstjórnarmanna í SSS hinn 18. september 1981. Gestirnir skoðuðu skrifstofur SSS að Brekkustíg 36 í Njarðvík,
saltverksmiðjuna á Reykjanesi og Sorpeyðingarstöð Suðurnesja og sátu hádegisverðarboð SSS í Stapa í Njarðvíkum.
SVEITARSTJÓRNARMÁL