Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Page 27
FJÁRMÁLARÁÐSTEFNAN 1982
Hin árlega ráðstefna sambandsins
um íjármál sveitarfélaga og gerð fjár-
hagsáætlunar komandi árs var hald-
in í Súlnasal Hótel Sögu í Reykjavík
hinn 22. nóvember sl. Ráðstefnuna
sátu 200 þátttakendur. Var hún því
ein fjölmennasta ráðstefna sam-
bandsins.
Björn Friðjinnsson, formaður sam-
bandsins, setti ráðstefnuna og gerði
að umtalsefni þá erfiðleika, er hann
taldi fyrir dyrum í fjármálum sveitar-
félaga eins og annars staðar í búskap
þjóðarinnar. Setningarræða Björns
er birt aftan við þessa frásögn.
Bolli Bollason, hagfræðingur í Þjóð-
hagsstofnun, gerði síðan grein fyrir
þeim forsendum fjárhagsáætlana
sveitarfélaga fyrir árið 1983, sem
Hallgrímur Snorrason, hagfræð-
ingur, hafði tekið saman. Greinar-
gerðin var í höndum þátttakenda og
var birt í 5. tbl. Sveitarstjórnarmála
1982.
Guttormur Sigurbjörnsson, forstöðu-
maður Fasteignamats ríkisins, gerði
síðan grein fyrir framreikningi fast-
eignamatsins milli áranna 1982 og
1983. Einnig skýrði hann nokkur yfir-
lit úr fasteignaskrá ársins 1982.
Framsöguerindi Guttorms birtist
sem grein í 5. tbl. Sveitarstjórnar-
mála 1982.
Eggert Jónsson, borgarhagfræðing-
ur, skýrði frá helztu forsendum þeim,
sem lagðar voru til grundvallar við
samningu tillögu að fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar fyrir árið 1983, og
svaraði síðan spurningum um hana.
Ólafur Nilsson, lögg. endur-
skoðandi, flutti eftir stutt kaffihlé er-
indi, er hann nefndi fjárhagsrammi
sveitarfélaga. í því bar hann saman
rekstur, framkvæmdir og fjárhags-
stöðu svo og eignir og skuldir kaup-
staðanna á þremur undangengnum
árum, þ. e. árin 1979, 1980 og 1981.
Erindi Ólafs ásamt yfirlitum og
súluritum, er hann sýndi um fjár-
hagsstöðuna, er birt á bls. 94 í þessu
tölublaði.
Bjami Bragi Jónsson, hagfræðingur
Seðlabanka íslands, flutti næst erindi
um lánamál sveitarfélaga á tímum
hagsveiflna og verðtryggingar. Sýndi
hann með erindi sínu yfirlit um
fjárhagsafkomu sveitarfélaga árabilið
1952—1977, skuldir sveitarfélaga og
fyrirtækja þeirra árlega milli 1969—
1981 og um lán sveitarfélaga innan-
lands árabilið 1969—1981 og um er-
lend lán sveitarfélaga árabilið 1950—
1981.
Klemens Tryggvason, hagstofustjóri,
flutti að loknum hádegisverði erindi
um skil sveitarfélaga á ársreikning-
um. Gerði hann þar grein fyrir þeim
aðgerðum, sem félagsmálaráðuneytið
og Hagstofa íslands hafa talið nauð-
synlegar til að knýja sveitarfélög til
að skila ársreikningum seinustu ára
fyrir tilgreindan tíma og eftirleiðis
reglulega. Erindið er birt á bls. 101 í
þessu tölublaði.
Guðmundur B. Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri lánadeildar Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins, haföi
framsögu um lánsfjármögnun gatna-
gerðar í þéttbýli og endurkaup
Byggðasjóðs á skuldabréfum vegna
lagningar bundins slitlags. Einnig
gerði hann grein fyrir stofnun Hrað-
brautar hf., sem tók við verkefnum
þeim, er Olíumöl sf. hafði áður haft
með höndum. Með erindi sínu sýndi
Guðmundur yfirlit um ástand gatna-
kerfis í þéttbýli í einstökum lands-
hlutum annars vegar árið 1976 og
hins vegar árið 1981 og lánveitingar
Byggðasjóðs til gatnagerðar sveitar-
félaga árin 1975—1981, og er það
yfirlit birt með erindi Guðmundar á
bls. 105 í þessu tölublaði.
Magnús Pétursson, hagsýslustjóri,
flutti seinasta framsöguerindið á ráð-
stefnunni. Það var um samskipti
sveitarfélaga við Fjárlaga- og hag-
sýslustofnun, fjárveitinganefnd Al-
þingis og ríkisstofnanir á sviði fjár-
mála. Þá gerði Magnús grein fyrir
niðurstöðum lauslegrar könnunar, er
hann hafði gert nokkrum dögum fyrir
ráðstefnuna um stöðuna á hinum
helztu sviðum fjárhagslegra sam-
skipta ríkis og sveitarfélaga. Erindi
Magnúsar er birt á bls. 110 í þessu
tölublaði.
Framsögumenn svöruðu fyrir-
spurnum að loknum erindum sínum,
og í lok ráðstefnunnar urðu að vanda
almennar umræður um fjármál sveit-
arfélaga almennt. Þá voru lögð fram
ýmis gögn, s. s. yfirlit um framlög til
þjóðvega í þéttbýli á árinu 1982, yfir-
lit um álagningu útsvara og fast-
eignagjalda í hveijum kaupstaðanna
um sig svo og yfirlit um innheimtu-
hlutfall í hveijum þeirra í árslok
1981, auk gagna vegna fram-
söguerinda á ráðstefnunni.
Unnar Stefánsson var ráðstefnu-
stjóri, en fundarstjórn önnuðust
Björn Friðfinnsson, formaður sam-
bandsins, og Sigurgeir Sigurðsson,
varaformaður sambandsins.
Að lokinni fjármálaráðstefnunni
gekkst Samskiptamiðstöð sveitarfé-
laga fyrir rabbfundi með allmörgum
þátttakenda á ráðstefnunni um
möguleika fámennari sveitarfélaga til
að hagnýta tölvu við verkefni sín.
Var fundurinn einkum sniðinn við
hæfi fulltrúa þeirra sveitarfélaga, sem
ekki hafa tekið tölvu í þjónustu sína,
en hafa hug á að gera það.
89
SVEITARSTJÓRNARMÁL