Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Page 36

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Page 36
Hlutverk sveitarfélaga - fjármál í 10. og 11. gr. sveitarstjórnarlaga er hlutverk sveitarfélaga rakið, og í III. kafla laganna eru ákvæði um fjárreiður þeirra. Samkvæmt lögunum er hverri sveitarstjórn skylt að hafa nákvæmar gæt- ur á fjárstjórn sveitarfélagsins. Samkvæmt 11. gr. eru ýmsar ráðstafanir sveitarfélagsins háðar tiltekn- um takmörkunum. Þar má t. d. nefna: • að samþykki ráðuneytisins þarf til þess að reka áhættusaman atvinnurekstur, • að lántökur hreppa eru óheimilar án heimildar sýslunefndar. Telja verður með hliðsjón af ákvæðum sveitar- stjórnarlaga um fjármál, og með tilliti til hlutverks sveitarfélaga, að mcginstefnan sé sú og til þess ætlazt, að hcildarútgjöld hvers árs fari ekki fram úr heildartekjum. Lántökur til skamms tíma til að jafna sveiflur í framkvæmdum eða fjárfestingu verð- ur þó að telja heimilar, svo sem til sérstakra bygg- ingarframkvæmda, landakaupa, sérstaks átaks í gatnagerð o. þ. h. Fara verður varlega í þessu efni, því með lántökum sveitarsjóða er verið að ráðstafa tekjum næstu ára, eins og áður segir. Fari útgjöld t. d. 10% fram úr tekjum eitt ár, sem brúað er með lántöku, má reikna með, að þessi 10% verði að taka af tekjum næstu ára verðtryggð, auk vaxta af láninu (raunvaxta). Fjöldi sveitarfélaga á aðild að áhætturekstri, ým- ist með eigin rekstri og ótakmarkaðri ábyrgð eða með aðild að fyrirtækjum með öðrum, ýmist með takmarkaðri eða ótakmarkaðri ábyrgð. Slíkri atvinnurekstraraðild fylgja oft verulegar lántökur eða ábyrgðir. Um heimildir sveitarfélaga til að taka á sig skuldbindingar að þessu leyti verður ekki fullyrt, cn heimild ráðuneytisins þarf til að reka áhættusaman atvinnurekstur, eins og áður segir. Reyndin mun á hinn bóginn vera sú, að sveitarfélög reka eða taka beinan þátt í áhætturekstri, án þess að umræddu lagaákvæði hafi verið fylgt. Athugun á þátttöku sveitarfélaga í atvinnurekstri og ábyrgð þeirra í því sambandi hefur ekki verið gerð, svo ég viti, en tilfinning mín er sú, að bein SÚLURIT I. Rekstrar- og framkvæmdayfirlit kaupstaöanna 1979, 1980 og 1981 á verðlagi 1981. SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.