Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Qupperneq 36
Hlutverk sveitarfélaga - fjármál
í 10. og 11. gr. sveitarstjórnarlaga er hlutverk
sveitarfélaga rakið, og í III. kafla laganna eru
ákvæði um fjárreiður þeirra. Samkvæmt lögunum
er hverri sveitarstjórn skylt að hafa nákvæmar gæt-
ur á fjárstjórn sveitarfélagsins. Samkvæmt 11. gr.
eru ýmsar ráðstafanir sveitarfélagsins háðar tiltekn-
um takmörkunum. Þar má t. d. nefna:
• að samþykki ráðuneytisins þarf til þess að reka
áhættusaman atvinnurekstur,
• að lántökur hreppa eru óheimilar án heimildar
sýslunefndar.
Telja verður með hliðsjón af ákvæðum sveitar-
stjórnarlaga um fjármál, og með tilliti til hlutverks
sveitarfélaga, að mcginstefnan sé sú og til þess
ætlazt, að hcildarútgjöld hvers árs fari ekki fram úr
heildartekjum. Lántökur til skamms tíma til að
jafna sveiflur í framkvæmdum eða fjárfestingu verð-
ur þó að telja heimilar, svo sem til sérstakra bygg-
ingarframkvæmda, landakaupa, sérstaks átaks í
gatnagerð o. þ. h. Fara verður varlega í þessu efni,
því með lántökum sveitarsjóða er verið að ráðstafa
tekjum næstu ára, eins og áður segir. Fari útgjöld
t. d. 10% fram úr tekjum eitt ár, sem brúað er með
lántöku, má reikna með, að þessi 10% verði að taka
af tekjum næstu ára verðtryggð, auk vaxta af láninu
(raunvaxta).
Fjöldi sveitarfélaga á aðild að áhætturekstri, ým-
ist með eigin rekstri og ótakmarkaðri ábyrgð eða
með aðild að fyrirtækjum með öðrum, ýmist með
takmarkaðri eða ótakmarkaðri ábyrgð. Slíkri
atvinnurekstraraðild fylgja oft verulegar lántökur
eða ábyrgðir. Um heimildir sveitarfélaga til að taka
á sig skuldbindingar að þessu leyti verður ekki
fullyrt, cn heimild ráðuneytisins þarf til að reka
áhættusaman atvinnurekstur, eins og áður segir.
Reyndin mun á hinn bóginn vera sú, að sveitarfélög
reka eða taka beinan þátt í áhætturekstri, án þess að
umræddu lagaákvæði hafi verið fylgt.
Athugun á þátttöku sveitarfélaga í atvinnurekstri
og ábyrgð þeirra í því sambandi hefur ekki verið
gerð, svo ég viti, en tilfinning mín er sú, að bein
SÚLURIT I. Rekstrar- og framkvæmdayfirlit kaupstaöanna 1979, 1980 og 1981 á verðlagi 1981.
SVEITARSTJÓRNARMÁL