Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Side 55

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Side 55
ÓSKAR ÞÓR SIGURBJÖRNSSON bæjarfulltrúi, Ólafsfirði: OLAFSFIRÐINGAR SWS Á NORRÆNU VINABÆJAMÓTI í LOVISA í FINNLANDI Árið 1977 varð Ólafsíjörður aðili að vinabæja- samstarfi á Norðurlöndum, en aðrir aðilar að því samstarfi eru bæirnir Lovisa í Finnlandi, Karls- krona í Svíþjóð, Horten í Noregi og Hilleröd í Danmörku. í júní sl. var haldið vinabæjamót í Lovisa, en þau eru haldin annað hvert ár, til skiptis í bæjunum fimm. Um 50 manna hópur frá Ólafsfirði tók þátt í mótinu í Lovisa að þessu sinni, flestir félagar í Kirkjukór Ólafsfjarðar, makar og börn, auk þess fulltrúar bæjarins, Norræna félagsins o.fl. félaga og stofnana í Ólafsfirði. Kirkjukórinn ásamt tvöföldum kvartett innan hans sá um framlag Ólafsfirðinga til dagskrár mótsins. Siglt til Helsinki Flogið var til Stokkhólms með viðkomu í Osló 7. júní sl. Meðan beðið var brottf’arar ferjunnar, sem gengur milli Stokkhólms og Helsinki, gafst tækifæri til að ganga um Gamla Stan í Stokkhólmi og taka lagið í Storkyrkan þar í hverfmu. Siglingin með ferjunni Finlandia, sem er 26 þús. tonn að stærð og flaggskip skipafélagsins Silja Line, var hreint ævintýri. Siglingarleiðin gegnum sænska skerjagarðinn er fögur, og aðbúnaður fyrir hina 2000 farþega var eins og á beztu skemmtiferða- skipum, mörg veitingahús, verzlanir, fríhöfn, sauna og allt, sem nöfnum tjáir að nefna. Ólafsfirðingar settust flestir að veglegri veizlu- máltíð á einum veitingastaðnum um kvöldið, og margir fengu sér snúning fyrir háttinn, enda lék hljómsveit fyrir dansi fram eftir nóttu. Hríðarhraglandi í Lovisa Þegar stigið var á land í Helsinki að morgni 8. júní, beið fulltrúi vinabæjarins eftir hópnum, og var ekið sem leið liggur til Lovisa um 90 km austur af Helsinki í héraðinu Östra Nyland. Þar voru miklir og óvenjulegir kuldar, rniðað við árstíma, eftir hitabylgju tveimur vikum fyrr. Gerði oft hríðarél fyrstu dagana. Þess má geta, að við brottför hópsins Nokkrir ferðafélaganna um borð í M.S. Finlandia. Árni G. Stefánsson, fararstjóri, lengst til vinstri, og Óskar Þór Sigurbjörnsson, greinarhöfundur, lengst til hægri á myndinni. H7 SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.